Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 53
Oddur Sigurðsson
Möðrufellshraun, berghlaup
eða jökulruðningur?
Fyrir skömmu kom út hjá Erni og
Örlygi „íslandshandbókin. Náttúra,
saga og sérkenni“ í tveim bindum.
Þetta er handbók byggð á ritverkinu
„Landið þitt ísland". f bókinni eru
m.a. hvers konar upplýsingar um ís-
lenska náttúru og, eins og óhjákvæmi-
lega verður í bók um ísland, mikið
um jarðfræði enda 6 jarðfræðingar
skráðir meðal heimildamanna í verk-
inu en t.d. aðeins einn líffræðingur og
sá var 87 ára er bókin kom út.
Þær upplýsingar um jarðfræði, sem
birtast í bókinni eru flestar gamal-
grónar og viðurkenndar hugmyndir
eins og vera ber, en svona bækur eru
vart vettvangur fyrir fræðilegar deilur.
Þó er svo að einhver hefur komið hér
á framfæri skoðun sinni um svokölluð
framhlaup eða berghlaup, sem víða er
að finna á landinu, og kallar þau mörg
ruðning eftir skálarjökul. Um þetta
hefur lítið verið fjallað meðal fræði-
manna en það er þó ljóslega mjög um-
deilanlegt.
Árið 1976 kom út bókin „Berg-
hlaup“ eftir Ólaf Jónsson, mikið verk
og vandlega unnið. Ólafur var einn af
þessum aðdáunarverðu mönnum, sem
sjálfmenntaðir afköstuðu heilum
ósköpum í fræðum utan sinnar starfs-
greinar. Nákvæmni Ólafs var við
brugðið og má lesa í „Berghlaupum“
stórmikinn fróðleik um þau fyrirbrigði
bæði almennt og í einstökum tilvik-
um. Hann getur þess m.a. í bókinni
hvenær hann skoðaði tiltekinn stað og
hversu vel.
Einn af þeim stöðum sem Ólafur
Jónsson athugaði sérstaklega vel er
Möðrufellshraun í Eyjafirði (1.
mynd). „Skoðað 15/5 1954, 29/8 1956
og oft og ýtarlega fyrr og síðar“ stend-
ur í „Berghlaupum“. Hann telur það
„eitt merkasta berghlaup í Eyja-
firði. . . ., bæði vegna þess hve sér-
kennilegt það er, glöggt afmarkað og
stílhreint.“ Þar gerir hann einnig grein
fyrir hvar jökulruðningsefni sé að
finna við berghlaupið og er ekki að
efa, að hann hefur kunnað að greina
þar á milli.
Nú víkur svo við, að í „íslandshand-
bókinni“ á bls. 447 er Möðrufells-
hraun talið „. . . .myndað við gröft
skálarjökla úr tveim skálum er liggja
hvor upp af annari...............Hefur
jökull fyrst myndast í efri skálinni og
flætt fram úr henni í neðri skálina, líkt
og Morsárjökull fellur fram af hömr-
um í Morsárdal í Öræfasveit.“ Á
sömu opnu í bókinni við mynd er
þessi texti:„MöðrufellsfjaIl með tvö
djúp spor er skálarjöklar hafa grafið
hvort upp af öðru undir lok ísaldar."
Sitt hvað er við þessa skoðun að at-
huga. Nú er talið að Eyjafjarðarjökull
hafi staðið a.m.k. úti undir Hrísey fyr-
Náttúrufræðingurinn 60 (2), bls. 107-112, 1990.
107