Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 20
ELDFJÖLLIN Á HAWAII
Megineinkenni eldvirkninnar á Hawaii er að þar gýs nær eingöngu basalt-
kviku. Eyjan er því byggð upp úr hraunlögum, líkt og mestur hluti íslands.
Hawaii er einungis um 11.000 km2 að flatarmáli. Þar eru fimm eldfjöll. Aðeins
eitt þeirra er talið vera útdautt, en það er Kohala, sem síðast gaus fyrir um
60.000 árum. Rof hefur þegar sett einkenni á útlit Kohala. Næst elst er Mauna
Kea. Þar gaus síðast fyrir 3.000 árum. Hualalai, sem sést á meðfylgjandi mynd,
er hið þriðja í aldursröðinni. Þar hefur gosið einu sinni síðan eyjarnar fundust
af hvítum mönnum fyrir rúmum tveim öldum. Það gos var árin 1800-1801. Næst
yngst er Mauna Loa og yngst og syðst er Kilauea. Þau eru bæði mjög virk.
Mauna Kea (Hvítafjall) og Mauna Loa (Langafjall) eru stærst þessara eldfjalla.
Þau rfsa bæði upp af rúmlega 5 km djúpum sjávarbotni og skaga þar til viðbótar
rúma 4 km upp í andrúmsloftið. Þau reiknast því vera stærstu eldfjöll jarðarinn-
ar. Kilauea er talið vera virkasta eldfjall á jörðinni. Þar hefur á síðustu tveim
öldum mun oftar verið gos í gangi eða önnur kvikuvirkni nærri yfirborðinu, en
að þar hafi allt verið með kyrrð og spekt.
Sjötta virka eldfjallið er reyndar til staðar, en það er neðansjávar, rétt undan
suðurströnd eyjunnar. Það kallast Loihi. Þetta eldfjall er að byggja sig upp af
hafsbotninum og er enn einungis tiltölulega lítið, vantar enn um 1000 m í að ná
til yfirborðs. Það á því langt í land með að verða slíkur risi meðal eldfjalla sem
nágrannar þess eru.
Öll hawaiiísku eldfjöllin eru dyngjur, sem byggst hafa upp við síendurtekna
gosvirkni. Gosin eru basaltgos og eiga sér stað á sprungum sem skerast í gegn
um dyngjurnar sem sprungurein eða þrí- til ferarma sprungustjarna. Þessi gos
verða bæði úti á flönkum dyngjanna og inni í öskjunni, sem er í toppi dyngj-
anna á meðan þær eru virkastar. Ljósm. Páll Imsland.
Páll Imsland
Náttúrufræöingurinn 60 (2), bls. 74, 1990.
74