Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 33

Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 33
ig þeir veittu Fúlalæk hvor á annan og landeyðinguna sem af því hlaust, kunni að standa í sambandi við jökul- hlaup undan Sólheimajökli og mynd- un Skógasands síðla á landnámstíð. Þriðja dæmið er af Molda-Gnúpi landnámsmanni í Álftaveri og Hrafni hafnarlykli. „Molda-Gnúpr seldi mörgum mönnum af landnámi sínu ok gerðist þar fjölbyggt, áðr jarðeldr ratin þar ofan, en þá flýðu þeir vestr til Höfðabrekku . . . “ Hrafn hafnarlykill nam land norðan við Molda-Gnúp „milli Hólmsár ok Eyjarár ok bjó í Dynskógum; hann vissi fyrir eldsupp- kvámu ok fœrði bú sitt í Lágey“. (Isl. fornrit I, bls. 330). Guðrún Larsen (1979) og Hammer (1984) hafa fært að því rök að jarðeldurinn sem þarna er nefndur hafi verið stórgos í Eldgjá samfara miklu hraunrennsli við end- aða landnámstíð. Það er athyglisvert hve náttúruham- farir virðast oft réttilega tímasettar í fornum ritum og annálum. Þessi dæmi úr Landnámu segja sína sögu. Haukur Jóhannesson og Sigmundur Einarsson (1988) hafa nýlega bent á gott sam- ræmi fornra annála og náttúruham- fara á Reykjanesi. Sjálfur hef ég at- hugað nokkuð slíkar tímasetningar einkum hvað varðar eldgos og stjarn- fræðileg fyrirbrigði á Sturlungaöld en þar kemur góð nákvæmni fram. (Árni Hjartarson 1989). Meðal fræðimanna hefur áreiðanleiki þessara rita þó löngum verið deilumál. RÚST í HAUGAHÓLUM Bærinn að Haugum stendur utar- lega í Haugahólum við jaðar hlaupsins úr Hallbjarnarstaðatindi. Ef frásögn Landnámu af framhlaupinu í Skriðdal er rétt má ljóst vera, að bærinn getur ekki hafa staðið, þar sem hann stend- ur nú, á fyrstu öldum íslands byggðar því þá hefur ógróin urð þakið svæðið að mestu. Mér er ekki kunnugt um hvenær Hauga er fyrst getið í rituðum heimildum. Bæjarnafnsins er ekki get- ið í Landnámu eða fornsögunum og hvorki í Sturlungu, Biskupasögum, fornum annálum né í íslenska forn- bréfasafninu. Þrátt fyrir það hefur ef- laust lengi verið búið að Haugum. Jón Hrólfsson bóndi á Haugum (fæddur 1918) getur þess í jarðarlýsingu að rústir innst í Haugahólum bendi til að bærinn hafi staðið þar fyrr á öldum en verið fluttur síðar á núverandi stað (Jón Hrólfsson 1975). Ég skoðaði þessar rústir í júlí 1989. Þær eru syðst í Haugahólahlaupinu, 70 m ofan Múlaár (1. mynd). Síki gengur upp frá ánni rétt sunnan tóft- anna. Handan við síkið er Fimmmela- tún ræktað á aurum Vatnsdalsár. Fimm samvaxnir framhlaupshólar, Fimmmelar, eru sunnan við túnið. Tóftirnar eru á lágu meltagli sem gengur austur úr stökum urðarhól við ána (4. og 5. mynd). Lag tóftanna bendir til þess að um bæjarhús sé að ræða. Ekki er víðsýnt frá þessu bæjar- stæði, Haugahólar byrgja sýn út dal en Fimmmelar inn til lands. Könnunarskurður var grafinn um miðjan norðurvegg tóftarinnar og jarðvegur og gjóskulög skoðuð (4. mynd). Lagið frá Öskjugosinu 1875 er alstaðar neðst í grasrótinni og undir því er 8-10 cm óhreyfður jarðvegur. Þá kemur 30-50 cm lag af rótaðri mold með leifum af gjóskulögum hér og hvar. Þetta eru gamlar torflileðslur úr veggjum o.þ.h. Þar undir er 1-2 cm lag af óhreyfðri mold. Síðan koma tvö gjóskulög, auðþekkjanleg og ágæt leiðarlög á þessum slóðum. Þau eru ljósa lagið frá Öræfajökli 1362 og þykkt svart gjóskulag sem fylgir því eins og skugginn aðeins ofar í jarð- vegi. Það er talið upprunnið í gosi í norðanverðum Vatnajökli eða Kverk- 87

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.