Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 50
1---------1--------1--------1--------1--------1--------1--------1--------1---------1--------1
24" 22' 20" 18 16° 14 V
l.mynd. Líkindi á stefnu gjósku úr eldstöðvum á íslandi, miðað við tíðni vinda í 500 mb
fletinum yfir íslandi. Ársmeðaltal 500 mb hæðarinnar er um 5370 m. Hér er miðja „vind-
rósarinnar“ lögð á Heklu, en að sjálfsögðu má leggja hana yfir hvaða eldstöð sem er.
Tephra fall probabilities from 500 hPa wind direction estimates 1958-1977. The prevailing
wind direction at the 500 hPa level over Iceland is from the WSW and the most likely fall-
out direction is towurds the eastern and northern sectors. The average height of the 500
hPa level over Iceland is 537 gdm. The figure is centered on the volcano Hekla but is in-
tended for use at all volcanoes in Iceland.
meira en svo að heildarmynd talning-
arinnar breytist ekki þannig að skakki
mörgum prósentum.
Geta má þess að í síðustu Heklu-
gosum (1947,1970 og 1980) gaf vindátt
í 500 mb fletinum góða mynd af
stefnu gjóskugeiranna.
A myndinni má greinilega sjá að
eðlilegt er hversu fáir gjóskugeirar
liggja til vesturs og suðvesturs, þrátt
fyrir að algengasta vindátt við yfir-
borð sé austan og norðaustanátt (sbr.
t.d. kort á bls. 113 í bókinni „Veðurfar
á íslandi“ (Markús Á. Einarsson,
1976)). Úr þessu mætti e.t.v. búa til
líkindakort um gjóskufall á landinu,
þar sem miðja vindrósarinnar er sett á
hinar ýmsu eldstöðvar auk upplýsinga
um magn o.s.frv. Ef upplýsingar um
nógu marga gjóskugeira eru til staðar
mætti athuga hvort dreifing þeirra er í
einhverju samræmi við myndina. Ef
svo er ekki gæti sitthvað komið til.
Fimm atriði má nefna, missennileg
þó: í fyrsta lagi séu þessi 20 ár sem
hér eru lögð til grundvallar ekki góðir
104