Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 54
1. mynd. Séð vestur til Möðrufellsfjalls og Kerlingar. Möðrufellshraun blasir við. Annað
minna framhlaup einnig með þverhöggnu þili í bak í undirhlíðum Kerlingar en þar uppi í
brúnum situr skálarjökull í bogadreginni skál. Möðrufellsfjall in Eyjafjörður, North Ice-
land to the left and Kerling to the right viewed from east. Möðrufellshraun is at the foot of
the mountain. A smaller rockslide is seen higher up in the slopes of Kerling which also
has a small cirque-glacier near the top. Ljósm. photo Oddur Sigurðsson.
ir um 10.000 árum (Hreggviður Norð-
dahl 1990) og því hefur hann þá verið
nokkur hundruð metra þykkur inni
við Möðrufellsfjall. Allt laust efni,
sem nú liggur þar á sléttum dalbotnin-
um undir fjallinu, hlýtur því að vera
yngra þ.e.a.s. myndað eftir ísöld. Efri
skálin í Möðrufellsfjalli liggur öll neð-
an við 700 m y.s. og þarf þá jafnvægis-
lína jökuls í henni að hafa verið í inn-
an við 600 m y.s. Ekkert bendir til að
Ioftslagi eftir ísöld hafi nokkurn tíma
verið þannig háttað að jökull gæti
myndast í þessari skál. Þar á ofan er
gert ráð fyrir að jökullinn hafi haldið
áfram í fossi og náð niður í um 120 m
y.s. sem þýðir að jafnvægislínan þarf
að flytjast niður í 400 m y.s. eða svo.
Auk heldur er hér ekki um neinar
venjulegar skálar eftir jökul að ræða.
Þær vantar nefnilega skálarlagið (sbr.
2. mynd). Öll hlutföll milli skálar og
lausefnis eru önnur en við er að búast
af skálarjöklum. Lausefnahrúgaldið er
margfalt stærra að flatarmáli en sjálf
skálin og hefur ekki það jökulgarða-
lag, sem víða má sjá við skálarjökla.
Jökull í efri skálinni í Möðrufells-
fjalli, ef hann hefði getað myndast,
hlyti að hafa verið örsmár, enda skál-
in ekki stór. Að ætla honum að fæða
af sér annan jökul miklu stærri og
bera fram í lok ísaldar allt það efni
sem Möðrufellshraun er, er ofrausn í
meira lagi. Skálarjöklar eru að vísu af-
ar afkastamiklir miðað við aðra jökla,
en ekki er auðvelt að benda á nokk-
urn skálarjökul sem hefur á skömm-
108