Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 19
GOSBYRJUN OG FRAMVINDA -
FRÁSAGNIR SJÓNARVOTTA
Sautjánda gos Heklu hófst um kl. 17
fimmtudaginn 17. janúar. Það byrjaði
með nokkuð öflugu þeytigosi eins og
venja er í Heklugosum. Gosmökkur-
inn sást frá tveimur bæjum laust eftir
kl. 17 og í veðursjá Veðurstofunnar
kl. 17.10 og var þá kominn í a.m.k.
11,5 km hæð.
Frá Botnum í Meðallandi, um 80
km suðaustan Heklu, sást sver gos-
stólpi um kl. 17.05 sem hækkaði ört í
fyrstu en hægði svo á sér og breiddi úr
sér efst og fór fljótlega að halla í norð-
ur. Frá Eystra Geldingaholti, um 30
km vestan fjallsins, sást gosmökkur
skilja sig frá skýjunum kl. 17.07, hann
var ljós í fyrstu en hætti að rísa og
sortnaði eftir smástund.
í Selsundi, 11 km suðvestan Heklu,
varð fyrst vart við bjarma af gosinu kl.
17.18 og gosmökk í rofi í éljabakka.
Sverrir Haraldsson, bóndi í Selsundi,
telur að gosið hafi byrjað við Axlar-
gíginn á suðvesturöxl Heklu. Fyrst
sást til eldstróka um kl. 17.50, rétt of-
an við eða norðvestan í Axlargíg og
efst í sprungu sem opnaðist vestur af
honum (1. mynd a). Þorsteinn Gísla-
son festi þá á myndband og er ekki að
sjá að eldar hafi verið hærra uppi á
fjallinu. Næst þegar sást til eldanna,
laust eftir kl. 18, var sprungan að
lengjast til vesturs frá Axlargíg og gos
var byrjað á sprungu með norðlægri
stefnu nálægt gosstöðvunum frá 1970
(Suðurgígum). Þegar Drífa Hjartar-
dóttir á Keldum sá fyrst til gossins
upp úr kl. 17.50 gaus aðeins suðvestan
í Heklu. Að minnsta kosti 15 mínútur
liðu áður en eldar sáust á sprungu(m)
sunnan í fjallinu, en síðan var eins og
fjallið klofnaði í austurátt eftir háfjall-
inu í átt að Toppgíg og svo niður aust-
urhlíðina og kom hver strókur upp
austar en sá næsti á undan. Telur
Drífa að þetta hafi gerst á 30^15 mín-
útum. Þegar gosið var mest sáust 19
strókar í gangi samtímis frá Keldum.
Flugmenn hjá Flugleiðum sáu vel til
fjallsins úr suðri kl. rúmlega 18 og
töldu þá sprungu vera eftir endilöngu
fjallinu, gosmökk allt að 12 km háan
og hraunstrauma niður alla suðurhlíð-
ina. Þeir sáu einnig smágos austan til í
hlíð fjallsins á sama tíma.
Ekki er fullljóst hvenær gos tók að
réna á hinum ýmsu sprungum. Um kl.
22 var farið að draga úr gosinu suð-
vestan í fjallinu. Sveinn Sigurjónsson
á Galtalæk var við Tröllkonuhlaup,
skammt norðvestan Heklu, um kl.
22.30 og þá virtust honum ljórir eld-
strókar koma úr háfjallinu til suðurs
frá topphnjúknum, en ekki er vitað
hvenær gos þar hætti. Þegar Ieið á
nóttina var kraftmikið gos í austurhlíð
Heklu, þar sem virkni varaði síðan
lengst, en verulega farið að draga úr
því annars staðar.
Hraunrennsli virðist hafa byrjað
fljótlega eftir að gos hófst í suðvestur-
öxlinni og þaðan rann hraun til vest-
urs fyrsta sólarhringinn. Aðalhraun-
flæðið var þó til suðurs frá sprungum í
austurhlíðinni. Nánar er sagt frá fram-
vindu gossins og hraununum í grein
Ágústs Guðmundssonar og Kristjáns
Sæmundssonar í þessu hefti.
Af frásögnum sjónarvotta virðist
ljóst að gosið byrjaði suðvestan í
Heklu í um 1200 m y.s., við Axlargíg-
inn frá 1947. Fyrsta klukkutímann
virðist eingöngu hafa gosið á sprung-
u(m) við Axlargíginn. Ekki sást til
elds á öðrum stöðum fyrr en um eða
upp úr kl. 18, fyrst sunnan í fjallinu í
um 900 m y.s., rétt á eftir á suðvestur-
hluta Heklugjár og síðan í austurhlíð-
inni þar sem sprunga náði að lokum
niður undir 900 m y.s. Flæðigosið
virðist hafa komist í fullan gang milli
kl. 18 og 19, þegar sprungur höfðu
161