Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 87
Árni B. Stefánsson
Þríhnúkagígur
INNGANGUR
Þríhnúkar standa á hálendisbrún-
inni um 4 km norðvestan skíðaland-
anna í Bláfjöllum. Norðaustasti hnúk-
urinn er afar sérstæð gosmyndun. í
toppi hans er gígop og þar undir er
feiknamikið gímald. Fyrst var sigið í
gíginn 1974 og reyndist sigdýpt vera
120-130 m og þvermál í botni um 50 m.
Tæpum áratug síðar fannst þröng rás
niður til suðvesturs og nokkrum árum
síðar kom í ljós strompur upp af þeirri
rás neðarlega. Vorið 1991 var gerður
út leiðangur til að kanna og mæla upp
gosmyndun þessa eins og frekast væri
unnt. Ásamt greinarhöfundi, sem
reyndar seig manna fyrstur í gíginn,
voru þarna að verki Björn Olafsson,
Einar K. Stefánsson og Einar Daníels-
son. Greinarhöfundur er augnlæknir
og allkunnugur íslenskum hraunhell-
um. Hefur hann kannað þá og fylgst
með þeim í áratugi. Björn og Einar
eru reyndir fjallgöngumenn. Einar
Daníelsson er kvikmyndagerðarmað-
ur og tók hann leiðangurinn upp á
myndband. Margir lögðu hönd á plóg-
inn við að gera þetta mögulegt. Fé-
lagar úr hjálparsveitum skáta í
Reykjavík og Kópavogi aðstoðuðu.
Tæki og búnaður voru fengin að láni
hjá báðum þessum hjálparsveitum.
Skátabúðin lagði til þann búnað sem á
vantaði. Jóhann Rönning h/f lagði til
raflínur og ljósabúnað.
I leiðangrinum voru gosrásirnar
mældar eins og unnt var með áttavita,
klínómeter, málbandi og 5 m langri
mælistiku. Langt er til veggja og
stærðir slíkar að nokkuð er um ágisk-
anir, bæði í aðalgosrásinni og rásinni
niður til suðvesturs. Dýpt gígketilsins*
var mæld með lítt teygjanlegri nælon-
línu og hún síðan mæld með málbandi
og er skekkjan ±1 m. Heildardýpt er
sennilega með skekkju ±2-3 m. Mæl-
ingar á yfirborði voru gerðar nökkru
síðar með geódímeter og þeódólíti.
LANDLÝSING OG JARÐFRÆÐI
Þríhnúkar eru á hálendisbrúninni
um 20 km suðaustan Reykjavíkur.
Þeir standa u.þ.b. 300 m hærra en
Húsfellsbruninn og Heiðmörk þar fyr-
ir neðan (1. mynd a og b). Eru þeir
alláberandi og er þaðan hið besta
útsýni til höfuðborgarinnar. Hnúkarn-
ir þrír eru fremur lágir og rísa 30-50 m
yfir flatlendið sem við tekur ofan við
fjallsbrúnina. Hlíðin neðan þeirra er
að miklu leyti þakin hraunum sem
fallið hafa fram af brúninni. Fjalls-
brún þessi og flatlendið fyrir ofan er
úr grágrýti og stór gamall dyngju- eða
stapagígur sést um 1 km suðvestur af
Þríhnúkum (2. og 3. mynd). Gíg
* Með gígkatli, er átt við ketillögun
myndunarinnar (sbr. skessuketill). Upp-
haflega er hér um ílanga gossprungu að
ræða, sent verður ketillaga þegar hrynur
úr langhliðunum.
Náttúrufræðingurinn 61 (3-4), bls. 229-242, 1992. 229