Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 2
2 27. júní 2009 LAUGARDAGUR Magnús, er hún ekki bara ein- hvers staðar að fá sér kríu? „Jú, sjálfsagt er hún að því, blessuð.“ Kríustofninn í Flatey hefur minnkað um helming á nokkrum árum. Magnús Jónsson, bóndi í Flatey, segist nær ekkert heyra í kríunni lengur. NÁTTÚRA Mikil umferð hefur verið um Dyrhólaey frá því opnað var fyrir hana síðastliðinn föstudag, segir Þorsteinn Gunnarsson bóndi á Vatnsskarðs- hólum en hann nytjar æðarvarpið í Dyrhólaey. „Þetta er mest fólk á einkabílum, það er einhverra hluta vegna minna um rútur núna,“ segir hann. Umhverfisstofnun lét meta ástand varpsins á eynni þann 8. júní og mat Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur það svo að æðar- varp væri afar lítið sérstaklega ef miðað er við ástandið þar árið 1999. Var talið að bílaumferð þar eftir 10. júní myndi ekki hafa mikil áhrif á varpið vegna þess hve lítið það væri. Í vor lagði Umhverfisstofnun fram tillögur um að leyfa umferð um eyna frá 1. maí til 25. júní í rútu frá landeigendum og gegn sérstöku gjaldi. Þessar tillög- ur mættu mikilli andstöðu fólks í ferðaþjónustunni og nokkurra sveitarstjórnarmanna og náðu því ekki fram að ganga. Þorsteinn telur þá ekkert annað koma til greina en að loka fyrir umferð á þessu tímabili á hverju ári. „Ég er hræddur um að bóndi gæti ekki nýtt tún sín ef það væri sífellt umferð um þau,“ segir Þorsteinn. „Það er það sama með æðarvarpið, það er erfitt að koma því upp og halda því við nema til þess fáist einhver friður.“ - jse Tillögur um umferð um Dyrhólaey á varptíma ná ekki fram að ganga: Mikil umferð um Dyrhólaey FRÁ DYRHÓLAEY Bæði fuglar og ferðamenn sækja í Dyrhólaey en það reynist nokkur vandi að höndla þetta tvöfalda lán. ÞORSTEINN GUNNARSSON DÓMSMÁL Karlmaður sem ákærður var fyrir stór- fellda líkamsárás í nóvember á síðasta ári, sem leiddi til dauða, var sakfelldur og dæmdur til að sæta fangelsi í fjögur ár í Héraðsdómi Suðurlands. Annar karlmaður og tvær konur voru ákærð fyrir brot gegn lífi og líkama með því að hafa látið fyrir farast að koma hinum látna undir læknishendur er hann hafði slasast lífshættulega vegna árásar- innar. Konurnar voru báðar sýknaðar af ákæru en karlmaðurinn sakfelldur og dæmdur til að sæta sex mánaða fangelsi. Atburðurinn gerðist í sumarbústað í Grímsnesi. Sá sem dæmdur var í fjögurra ára fangelsi sló annan mann hnefahögg í höfuðið, með þeim afleið- ingum að hann féll í gólfið. Því næst greip hann í fórnarlambið og ýtti honum á gólfið af stól sem hann sat á þannig að hann féll á gólfið. Þá sparkaði árásarmaðurinn í hann. Maðurinn hlaut marga alvarlega áverka og lést af völdum þeirra skömmu síðar. Árásarmanninum hafði tvisvar verið gerð refsing á síðasta ári, í bæði skiptin fyrir ölvunarakstur. Í síðara skiptið var hann einnig ökuréttindalaus. - jss SUMARBÚSTAÐURINN Sumarbústaðurinn þar sem líkamsárás leiddi til dauða. Dæmt fyrir líkamsárás í sumarbústað í Grímsnesi í nóvember í fyrra: Fjögur ár fyrir banvæna árás MENNTUN „Það er jákvætt að ekki þurfti að skera niður, en á móti kemur að engu er bætt við sem er bagalegt,“ segir Katrín Jakobs- dóttir mennta- málaráðherra. Úthlutunarregl- ur Lánasjóðs íslenskra náms- manna (LÍN) fyrir næsta skólaár voru kynntar í gær. Grunnfram- færsla verður óbreytt frá fyrra ári, eða 100.600 krónur á mánuði. Katrín segist hafa vakið athygli ríkisstjórnarinnar á stöðu náms- manna. „Grunnframfærslan er allt of lág og ég tel mjög mikil- vægt að allra leiða verði leitað til að framfærslan geti í það minnsta fylgt verðlagsþróun. Það er hins vegar ljóst að fjárlagarammi okkar í menntamálaráðneytinu leyfir ekki slíkt.“ - kg/kóp Úthlutunarreglur LÍN: Óbreytt grunn- framfærsla KATRÍN JAKOBSDÓTTIR Nýtt fylgirit, Inni og úti, fylg- ir Fréttablaðinu í dag. Í því er fjallað um ýmislegt sem tengist sumrinu á einn eða annan hátt, viðburði, ferðalög, afþreyingu, sumarhús, mat og menningu. Blaðið kemur út á laugardögum í sumar. Meðal efnis í fyrsta blaðinu er viðtal við Gunnlaug Stefán Gíslason sem opnar listasýn- ingu í gömlu fjósi í dag, viðtal við ungan brimbrettakappa, góð ráð til að hressa upp á sumarbústaðinn með litlum til- kostnaði og uppskriftir að ljúf- fengu nesti í lautartúra. - sjá Inni og úti Nýtt blað á laugardögum: Inni og úti í Fréttablaðinu STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur afgreitt frumvörp um persónukjör bæði í Alþingis- og sveitarstjórnar- kosningum. Kerfið sem lagt er til byggir á írskri fyrirmynd og felur í sér svipað kerfi og notað er við próf- kjör. Efstu sæti hvers lista, jafn- mörg þingsæta í kjördæminu, verða þannig óröðuð og eru þeir frambjóðendur boðnir fram til per- sónukjör. Afgangur listans verður raðaður eins og verið hefur. Þorkell Helgason stærðfræð- ingur hefur haft umsjón með gerð frumvarpanna tveggja. - sh Frumvörp um persónukjör: Fyrstu sætin verða óröðuð ÞORKELL HELGASON ANDLÁT Lögreglan í Los Angel- es leitar nú að lækni söngvar- ans Michaels Jackson, sem lést á fimmtudagskvöld af völdum hjartaáfalls, þar sem hún telur að hann geti gefið mikilvæg- ar upplýsingar varðandi andlát söngvarans. Lögregla ræddi við lækn- inn eftir lát Jacksons á fimmtudag en hafði ekki uppi á honum í gær þegar færa átti hann til frekari yfir- heyrslna. Samkvæmt heimildum erlendra fréttaveitna á söngvarinn að hafa fengið daglega lyfjagjöf af verkjalyfinu Demerol, sem hefur svipaða verkan og morfín. Talið er mögulegt að poppgoðið hafi fengið of stóran skammt af lyfinu. - kg Andlát poppstjörnu: Lögregla leitar læknis Jacksons MICHAEL JACKSON VARNARMÁL Tíu rússneskar sprengjuflugvélar hafa flogið um íslenskt loftrýmiseftirlitssvæði það sem af árinu. Hinn 16. júní síðastliðinn flugu tvær rúss neskar sprengjuflugvélar um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið í 24.000 til 30.000 feta hæð. Þetta kemur fram í frétt á vef Varnarmála- stofnunar Íslands. Í fréttinni kemur fram að leið vélanna hafi um tíma legið inn í íslenska efnahagslögsögu, og þær hafi verið í um 51 sjómílu fjar- lægð frá austurströndinni þegar þær fóru næst landinu. Vélarnar hafi ekki gert vart við sig fremur en endranær. Vélarnar, svokallaðir Birnir af gerðinni Tu-95, geti borið kjarnorkuvopn en ekki liggi fyrir staðfestar upplýsingar um búnað þeirra á ferðum sem þessum. Einnig kemur fram í fréttinni að 54 rússneskar sprengjuflugvélar hafi flogið um íslenska loftrýmis- eftirlitssvæðið frá því að banda- rískt varnarlið fór frá Íslandi haustið 2006. Nýlega var tilkynnt sú ákvörð- un stjórnvalda að leggja niður stofnunina í núverandi mynd. Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, segist ekki hafa sérstakar áhyggjur af flugi erlendra herflugvéla við landið þótt svo sé. „Utanríkisráðuneytið hefur sagt skýrt og greinilega að niðurskurðurinn muni ekki bitna á varnar- og öryggisskuldbindingum Íslendinga. Því hef ég ekki áhyggj- ur þótt einhverjar formbreyting- ar verði gerðar á stofnuninni. Einu áhyggjurnar eru þær að þær rekist á farþegavélar á flugi, en sú hætta hefur alltaf verið til staðar,“ segir Ellisif. Stefán Pálsson, formaður félags Hernaðarandstæðinga, segir það plagsið sem gildi um öll risaveldi að þau telji sig ekki bera skyldu til að láta einn né neinn vita um ferðir herja sinna. „Því er sjálf- sagt að fylgjast með slíkum ferð- um. En tímasetningin á þessum uppslætti á vef Varnarmálastofn- unar jaðrar við að vera krúttleg- ur. Hún ber með sér að þarna sjái menn fram á að stofnunin verði lögð niður, og reyni því á örvænt- ingafullan hátt að réttlæta þörf- ina og berja sér á brjóst, án þess að neinar nýjar upplýsingar komi fram,“ segir Stefán Pálsson. kjartan@frettabladid.is Tíu herflugvélar það sem af er ári Tvær rússneskar herflugvélar flugu inn í íslenskt loftrýmiseftirlit í síðustu viku. Forstjóri Varnarmálastofnunar hefur ekki sérstakar áhyggjur af flugi erlendra herflugvéla við landið þótt stofnunin verði senn lögð niður í núverandi mynd. RÚSSNESKUR BJÖRN Formaður Varnarmálastofnunar segir einu áhyggjur sínar varðandi flug erlendra herflugvéla við landið vera hættu á að þær gætu rekist á farþegavélar á flugi. UMFERÐ Mikil umferð var út úr höfuðborginni síðdegis í gær og fram á kvöld. Á Suðurlandsvegi var umferðarþungi mikill og var bíll við bíl í Kömbunum við Hveragerði á tímabili. Þokaðist bílalestin hægt áfram þar til um níuleytið í gærkvöldi. Sömu sögu var að segja á Vesturlandsvegi. Þar var mikil umferð langt fram á kvöld. Að sögn lögreglu á Selfossi og í Borgarnesi gekk umferðin þó vel eftir aðstæðum. Mjög góð veðurspá er fyrir helgina og hefur hún eflaust ýtt við ferðalöngum landsins. Margir á leið út úr bænum: Umferðarþungi á þjóðveginum Einu áhyggjurnar eru þær að þær rekist á farþega- vélar á flugi, en sú hætta hefur alltaf verið til staðar. ELLISIF TINNA VÍÐISDÓTTIR FORSTJÓRI VARNARMÁLASTOFNUNAR SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.