Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 32
● inni&úti
„Ég nota hvert tækifæri til að sitja
úti í náttúrunni með kaffi á brúsa og
eitthvað gott í gogginn,“ segir Sig-
ríður. „Þegar ég ólst upp fór ég sjálf
oft með foreldrum eða ömmu og afa
í sunnudagsbíltúr með nesti.“ Hún
kveðst hald þessum sið þegar hún
fari með sína krakka þó að nú séu
vegasjoppur úti um allt. „Þótt þau
hafi verið svolítið heit fyrir sjopp-
unum á unglingsaldrinum sé ég nú
þegar þau eru sjálf komin með börn
að lautarferðir með nesti er málið.
Þetta er góður siður og mikilvægt að
kenna krökkum að útbúa sjálf nesti
en ekki alltaf kaupa allt tilbúið. Það
jafnast ekkert á við það að sitja með
heimasmurt nesti í grænni lautu í
guðsgrænni náttúrunni.“ - gun
Bananabrauð á svipstundu
3 þroskaðir bananar (280-300 g)
180 g sykur
180 g hveiti
1½ tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
¼-½ tsk. múskat (má sleppa)
2 egg
3 msk. olía
½ dl mjólk
100 g súkkulaði saxað
50 g valhnetur saxaðar
Hitið ofninn í 175°C. Setjið maukaða ban-
ana í skál með sykri og hrærið saman með
sleif. Bætið öllu öðru sem fer í brauðið út í
og hrærið saman. Setjið bökunarpappír í
botninn á formi ca 10x20 cm á kant. Hellið
deiginu í og bakið í 55-60 mínútur meðan
„Það góða við þennan nestisbita er
að hann heldur sér svo vel. Þannig
er hann jafngóður daginn eftir að
hann er smurður. Ég tek þær gjarn-
an með mér í göngu, gekk til dæmis
á Búrfell og tortillurnar gáfu góða
orku og ég var södd í marga klukku-
tíma. Þær eru heldur ekki þungar
í maga, þannig að þær henta vel ef
maður ætlar að hreyfa sig eitthvað
Þetta eru allt mjög hollar upp-
skriftir og frekar auðveldar í fram-
kvæmd. Nú er svo mikið af rabar-
bara og kjörið að nýta hann í eitt-
hvað annað en sultur. Hann er til
dæmis mjög góður með fiski sem
margir veiða um þessar mundir,“
segir Sveinn Kjartansson, mat-
reiðslumeistari og eigandi Fylgi-
fiska, en hann útbjó fyrir okkur
gómsæta nestiskörfu fyrir lautar-
ferð.
„Ég skemmti mér líka við að
skreyta körfuna með sóleyjum og
blágresi og notaði rabarbarablöð
undir brauðið með salatinu,“ segir
Sveinn brosandi en hann hefur í
mörg ár útbúið salötin og haft þau
á boðstólum í verslun sinni Fylgi-
fiskum. „Ef fólk hefur ekki tíma
til að búa þau til þá er ekkert mál
að kippa þeim með tilbúnum frá
Fylgifiskum,“ segir hann.
Í nestiskörfunni er að finna
tvenns konar fiskisalöt með brauði,
rifsberjaskyr, heimalagað sóda-
vatn með myntu og heitt súkku-
laði á brúsa. „Hugmyndin að baki
þessu var sú að útbúa eitthvað létt
og gott í maga sem væri ekki of
mikil fyrirhöfn en kæmi samt
sem áður skemmtilega á óvart.
Súkkulaðið er síðan ágætis des-
ert og stundum er gott að skipta
út kaffinu og fá yl í kroppinn,“
útskýrir Sveinn og þótti honum
karfan handhæg og henta vel til
ferðalaga. „Ég fékk hana, teppið
og önnur ílát lánuð frá nágrönn-
um mínum í Heimili & hugmynd-
um en þegar maturinn lítur vel út
þá eykur það ánægjuna af að mat-
ast þar sem skilningarvitin vinna
öll saman.“ - hs
Körfuna, teppið og önnur ílát fékk Sveinn að láni hjá versluninni Heimili & hugmynd-
ir á Suðurlandsbraut 8. Hann notar rabarbarablöð undir matinn og setur það nátt-
úrulegan og gómsætan svip á veitingarnar. Í körfu Sveins má finna fiskisalöt með
brauði, rifsberjaskyr, heimalagað sódavatn með myntu og heitt súkkulaði á brúsa.
Ljúffeng lautarferð
● Þegar góðviðrisdaga ber upp er kjörið að bregða sér í lautarferð og er þá gaman að nostra svolítið við veitingarnar.
Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari útbjó fyrir okkur einfalda en þó gómsæta nestiskörfu.
Smurðar
● Valentína Björnsdóttir er þekk
hollustu en fyrirtæki hennar, Mó
orðstír. Valentína útbýr sér gjarn
Laxa-rabarbarasalat
200 g lax
80 g rabarbari
1 hvítlauksrif
1 tsk. fínt saxaður engifer
1 msk. sesamolía
Salt og pipar
20 g kapers
20 g kóríander
2 vorlaukar
Skerið lax og rabarbara í litla bita og
setjið í eldfast form. Rífið hvítlauk og
engifer og hrærið út í sesamolíu. Hellið
olíu yfir lax. Saltið og piprið. Bakið við
220 gráður í um 5 mínútur. Kælið og
blandið kapers saman við ásamt grófs-
öxuðum kóríander og sneiddum vor-
lauk. Borðið með grófu brauði.
Saltfisksalat
100 g saltfiskur
1 hvítlauksrif
Ólífuolía
1 msk. brauðraspur
2 sneiðar paprika
40 g pálmahjörtu (fást í Fylgifiskum)
10 g bergmynta
Nýmalaður pipar
Skerið saltfisk í sneiðar. Rífið hvítlauk í olíu
og hellið yfir. Veltið fiski upp úr brauðraspi
og bakið í um 10 mínútur við 200 gráður.
Skerið papriku og pálmahjörtu gróft og
blandið við fisk. Sneiðið bergmyntuna yfir,
piprið og berið fram á rúgbrauði.
Rifsberjaskyr
300 g skyr
3 msk. hunang
150 g rifsber
Um 80 g rifsber til skreytinga
Blandið saman í matvinnsluvél. Setj-
ið í skálar eða ílát sem bera á fram í og
skreytið með rifsberjum.
Rifsberjaskyr, toppað með rifsberjum, er ferskur
og góður eftirréttur sem fer vel í maga en sniðugt
er að deila skyrinu niður í falleg og hentug ílát.
Rörin skemmtilegu og karfan sem réttirnir eru í
fást í Heimili & hugmyndum.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Með eitth
● Sigríður Björk Bragadóttir, mat
um nesti. Hún smurði girnilegar
Tortillurnar eru hér vafðar
inn í smjörpappír og bundnar
saman með blaðlauk.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
27. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR6