Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 30
● inni&úti
„Frænka mín, Hulda Guðmunds-
dóttir, staðarhaldari á Fitjum í
Skorradal, kom að máli við mig í
haust og spurði hvort ég vildi ekki
sýna verk í gamla fjósinu ef hún
myndi laga það til. Mér þótti hug-
myndin prýðileg og hef síðan þá
málað og látið ramma inn fullt af
verkum sem nú eru til sýnis í Gall-
erí Fjósakletti,“ segir Gunnlaugur
Stefán Gíslason listmálari glaður
í bragði.
Gunnlaugur stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og síðan prentmynda-
ljósmyndun í Iðnskóla Hafnar-
fjarðar. Hann hefur starfað sem
myndlistar maður og einnig sem
myndlistarkennari við Myndlista-
og handíðaskóla Íslands, Mynd-
listaskóla Reykjavíkur, Miðstöð sí-
menntunar í Hafnarfirði og haldið
námskeið og fyrirlestra um mynd-
list í yfir þrjá áratugi. „Ég hef
málað frá því um fermingu og er
einna þekktastur fyrir vatnslita-
verk. Myndlist hefur alltaf verið
mér mikil ástríða og er gaman að
geta sýnt svona á æskuslóðum því
þótt ég sé fæddur í Hafnarfirði
þá var ég oft í sveit á Fitjum og
er ættaður þaðan,“ segir Gunn-
laugur sem hefur vissar taugar
til nýja gallerísins. „Fjós eru svo-
lítið merkilegir staðir. Sagt er að
Nýja testament Odds Gottskálks-
sonar hafi verið ritað í fjósi. Síðan
er gaman að segja frá því að móðir
mín lærði í fjósinu á Fitjum af því
að hún þurfti að fá frið frá bræðr-
um sínum sem voru með læti og
þá var friðurinn hjá kúnum. Ég
hafði líka gott af því að umgangast
frænda minn, Guðmund Tryggva
Stefánsson, föður hennar Huldu,
sem sagði mér ýmislegt sem
ungur maður, tíu til tólf ára, þurfti
að vita fyrir lífið. Við vorum oft
í fjósinu að mjólka og ganga frá,“
segir hann glaðlega.
Rétt við fjósið er klettur sem
galleríið heitir eftir og er hann að
sögn Gunnlaugs athyglisverður
staður. „Þar býr huldukona. Móður
minni dreymdi oft sérkennilega
drauma þar sem hún spjallaði við
huldukonuna og var henni víst gef-
inn matur við hátíðleg tækifæri.
Fyrir um 15 til 20 árum síðan átti
að hylja klettinn með torfum og
mold en þá lét huldukonan til sín
taka og sótti að mönnum í svefni
og togaði af þeim brekánið, eða
sængina, og lét vita af því að þetta
vildi hún ekki. Þá var drifið í því
að taka þetta burt aftur og nú blas-
ir fjósakletturinn við hverjum sem
vill sjá,“ segir hann.
Þema sýningarinnar er úr
Borgar firði þótt hraunið í Hafn-
arfirði slæðist með. „Ég er raun-
sæismaður í myndlist og á sýn-
ingunni má meðal annars finna
myndir af Skessuhorni, eyðibýl-
um og hrauninu í Hafnarfirði en
sveitin er mér ofarlega í huga,“
segir Gunnlaugur en um sölusýn-
ingu er að ræða. Sýningin verður
opnuð í dag klukkan 14. Hún stend-
ur yfir til 6. júlí en opið er daglega
frá klukkan 13 til 18. - hs
Skessuhorn er listamanninum kært.
Listagallerí í gömlu fjósi
● Gunnlaugur Stefán Gíslason listmálari opnar sýningu á vatnslitamyndum í Gallerí Fjósa-
kletti á Fitjum í Skorradal í dag. Galleríið var áður fjós og er málarinn ættaður frá svæðinu.
Gunnlaugur opnar í dag sýningu á vatnslitamyndum sínum í Gallerí Fjósakletti á Fitjum í Borgarfirði og er þema sýningarinnar
sveitin. MYND/HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR
Hraunið í Hafnarfirði kemur við sögu.
PÖNKSLÁTTUR TÓTU Elísa-
bet Sveinsdóttir, sem flestir kalla
einfaldlega Tótu, er með einkasýn-
ingu á myndlist sinni í Gallerí Lista-
menn að Skúlagötu 32 í Reykjavík.
Sýninguna kallar hún Hjartslátt en
hún kveðst eins hefði getað kallað
sýninguna „Pönkslátt sálar minnar“.
Kveðst hún hafa fengið risastóra
ástríðu fyrir lífinu í Guðs gjöf og
sú ástríða hafi alltaf valdið henni
óþreyju fyrir listinni. „Þetta er eins
og að fá endalaust að fara út að
leika í öllum veðrum, tæma sig af
orku og fá vellíðan í staðinn,“ segir
hún og kveðst afar hamingjusöm og
lánsöm manneskja. Þess má geta að
þetta er síðasta sýningarhelgi Tótu
í Gallerí Listamenn.
ÁST OG TESTÓSTERÓN FYR-
IR AUSTAN Ást í 100 ár heitir
sumarsýningin í Minjasafni Austur-
lands á Egilsstöðum. Hún fjallar um
ástir, rómantík og kynlíf í sveitum og
þéttbýli síðastliðin hundrað ár. Safnið
lét setja ástarljóð eftir Pál Ólafsson
á ýmsar byggingar á
Egilsstöðum með
bleikum og fjólu-
b láum l i tum.
Rosa rómó. Auk
þ e s s s t e n d -
u r s ý n i n g i n
Test osterone
yfir í menningar-
miðstöðinni Slátur-
húsinu á Egilsstöðum.
Það er samsýning fimm
karlkyns listamanna og er
blanda ljósmynda og högglistar þar
sem íslenska landslagið, rekaviður,
hreindýr, járnkindur og draugaleg
portrett af kynþokkafullum aust-
firskum ungmennum fylla hringlaga
rýmið.
ÍRSK STEMNING Á
AKRANESI
Skagamenn
minnast
hinnar írsku
arfleifðar sinn-
ar á hátíð um
næstu helgi
og gera sér
glaðan dag
um leið. Þá
fer Akranes
í sparibúning sem er
að sjálfsögðu í írsku fánalitunum.
Þetta er fjölskylduhátíð með fjöl-
breyttri skemmtun og jafnan er
keppt um rauðhærðasta Íslending-
inn. Grillveislur eru víða um bæinn
en aðal hátíðarsvæðið er á Jaðars-
bökkum og á Langasandi. Í ár verður
sótt til heimamanna um þátttöku
og skemmtilegheit í meiri mæli en
áður og áhersla lögð á hófstillta
umgjörð og heimatilbúin atriði.
Leiðarstef hátíðarinnar þetta árið
er maður er manns gaman!
MEÐ AFA Á IÐNAÐARSAFNIÐ
Afadagar eru á Iðnaðarsafninu á
Akureyri þessa helgi og allir krakkar
eru hvattir til að koma með afa sínum
í fræðslu- og skemmtiferð á safnið.
Afar eru hafsjór af fróðleik
og skemmtilegum
sögum eins og
allir vita. Flestir
afar þekkja líka
betur en marg-
ur annar þá gripi
sem er að finna
á Iðnaðarsafninu;
sumir afarnir hafa
jafnvel unnið í verk-
smiðjunum sem eru
uppistaðan að safninu.
Frítt verður á safnið fyrir alla afa.
Ömmurnar eru að sjálfsögðu hjart-
anlega velkomnar líka enda er ekki
minni fróðleik að finna hjá þeim.
Iðnaðarsafnið er opið alla daga frá
13-17.
Um að vera …
27. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR4