Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 27. júní 2009 27 „Lög unga fólksins er ein af þeim plötum sem hafa öðl- ast svokallaðan „költ-status“ meðal menntaskólanema og fleiri. Það er mjög góður árangur fyrir plötu að ná,“ segir Valgeir Guðjónsson, sem samdi og flutti öll lögin á plötunni Lög unga fólksins með Hrekkjusvín- unum ásamt Leifi Haukssyni útvarpsmanni og fleiri valin- kunnum andans mönnum og konum árið 1977. Meðal þeirra sem koma fram á plötunni eru Eggert Þorleifsson, Diddú, Egill Ólafsson og Magnús Einarsson, en Pétur Gunnarsson skáld samdi alla textana. Tilurð Hrekkjusvínanna var sú að hópur sem kallaði sig Gagn og gaman ákvað að gefa út plötur sem væru ekki venjulegar poppplötur. „Þetta var mikið hugsjónastarf og til að mynda lagði ein góð kona námslánin sín í púkkið til að platan gæti komið út. Hún fékk svo lánið endur- greitt fjörutíu árum síðar,“ segir Valgeir. Hrekkjusvínin samanstóðu að miklu leyti af meðlimum úr Spilverki þjóðanna og Þokkabót, tveimur hljómsveitum sem voru heldur „á vinstri kantinum“, eins og Valgeir orðar það. „Í gegnum tíðina hef ég lýst Lögum unga fólksins sem barnaplötu fyrir foreldra barna sem eiga foreldra sem eru kommúnistar. Það voru hreinar línur í pólitík á þessum tíma og menn voru annað- hvort eða. En fyrst og fremst byggðust textarnir upp á góðum húmor og græskulausu gamni. Mér finnst margt af því sem fram kemur á plöt- unni hafa öðlast nýtt líf í seinni tíð. Línan „hvert mannsbarn skuldar heila milljón“ á til dæmis afar vel við í dag.“ Valgeir segir nokkuð flókið að gera góðar barnaplötur. „Sumir hafa bara gert einhverjar rokkplötur og skrúfað, að þeir héldu, aldurs- kvarðann niður á textunum. En það má aldrei tala niður til barna, því þau sjá í gegnum allt. Þau vita hvað þeim þykir skemmtilegt, og ef þeim þykir það ekki skemmtilegt þá nenna þau því ekki. Þess vegna þarf að setja sig dálítið í þeirra spor, og það er mjög skemmtilegt viðfangsefni.“ Að sögn Valgeirs hefði hann ekkert á móti því að gera aðra barnaplötu. „En við skulum orða það þannig að það sé ekki í Outlookinu mínu. Þess vegna lýsi ég eftir góðu barnaefni til sjávar og sveita,“ segir Valgeir Guðjónsson. GILLIGILL - BRAGI VALDIMAR OG MEMFISMAFÍAN Kom út árið 2008. Meðal vinsælla laga: Gilligill, Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn, Skrýmslin í skápnum. LÖG UNGA FÓLKSINS - HREKKJUSVÍN Kom út árið 1977. Meðal vinsælla laga: Afasöngur, Grýla, Gestir út um allt. Gilli gill, barna- plata Braga Valdi- mars Skúlasonar, kom út fyrir síðustu jól og var því rétt um hálfs árs gömul þegar hún var valin ein af hundrað bestu plötum Íslands- sögunnar. „Það kemur mér dálítið á óvart að platan hafi náð að sanna sig svona snemma, en þetta er auðvitað tímamótaverk. Ég vissi það allan tímann,“ segir Bragi, sem semur öll lög og texta á plöt- unni. Memfismafían sér um undirleik og meðal söngvara eru Egill Ólafsson, Björgvin Halldórsson, Magga Stína og Sigtryggur Baldursson. Bragi segir engan tónlistarmann með tónlistarmönnum nema hafa gert að minnsta kosti eina barna- plötu. „Guðmundur Kristinn Jóns- son upptökumaður setti mér þetta verkefni fyrir þegar við áttum dauðan tíma. Ég hlustaði sjálfur á plötur eins og Eniga Meniga og Lög unga fólksins með Hrekkjusvínunum þegar ég var barn og langaði að gera svona gæða- plötu. Það var eiginlega útgangs- punkturinn að gera fullorðinsplötu fyrir börn. Við leyfðum einhverjum börnum að heyra nokkur lög áður en platan kom út, en annars var ekkert tillit tekið til þess hvað börnum þykir skemmtilegt,“ segir Bragi og hlær. Lagið „Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn“ vakti töluverða athygli þegar platan kom út rétt eftir bankahrunið, enda raunsærri lýsing á vitfirringu góðærisins vandfundin. „Á þessum tíma dundu á manni útrásarsögur og fréttatilkynningar greiningardeildanna og lagið var samið í rökréttu framhaldi af því öllu saman. Vænst þykir mér um síðasta lagið á plötunni, Vögguvísu, en ann- ars eru þetta allt góð lög,“ segir Bragi Valdimar Skúlason. Vissi alltaf að platan væri tímamótaverk Margt á plötunni hefur öðlast nýtt líf Esjudagurinn er í dag! Pokasjóður styrkir uppbyggingu göngustígs á Esjuna Nánari upplýsingar um Esjudaginn er að finna á fi.is og heidmork.is P & Ó / po.is VALGEIR GUÐJÓNSSON BRAGI VALDIMAR SKÚLASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.