Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 60
32 27. júní 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Prestur með
skyggðar
rúður …
Tvo bjóra! Þrjá jarðarberja
Mojito!
Ég er nokk-
uð viss um
að ég var
næstur!
Það kann vel að
vera. En ég er
með þessar líka
rosalegu
júllur!
Það er
satt!
Átta Breezera!
Jól
agj
afa
list
i:
Ma
mm
a
Pab
bi
Sar
a
Kíttibyssur
Nei.
Suma daga á
maður bara
að vera undir
sæng.
Skák og mát.
Ha?
Skák og mát.
Ég mátaði
kónginn þinn.
Taktu hann
bara. Ég á
fleiri kalla.
Það skiptir ekki máli, ef ég næ
kónginum þínum er leikurinn
búinn. Ég vann.
Ó.
Ef ég hefði vitað þetta hefði
ég falið hann í vasanum
mínum.
Þú
manst
það
næst.
Michael Jackson er án efa ein dáðasta stjarna minnar kynslóðar. Sjálf man ég ekki eftir honum svörtum, enda
of ung til að ná Thriller árið 1982 almenni-
lega. Í mínum huga var Michael Jackson því
hvítur með fínlegt nef og svertinginn fram-
an á Thriller var ókunnugur maður
fyrir mér.
Sem dæmi um hve heitt
hann var dýrkaður þá var mér
afskaplega illa við litla bróð-
ur minn þegar ég var að alast
upp og reyndi oft sinnis að týna
honum í verslunarferðum í stór-
mörkuðum þegar ég átti að
vera að passa hann. Eitt skipt-
ið heppnaðist ætlunarverkið
og hann, fjögurra ára gamall,
týndist í alvörunni. Ég fékk
svo mikið samviskubit þegar
ég uppgötvaði að hann var í
alvörunni villtur og löggan væri að leita að
honum (hann fannst, þökk sé árvökulum
vegfaranda) að það eina sem mér datt í hug
var eftirfarandi: „Ef hann finnst, góði guð,
lofa ég því að gefa honum stóra veggspjald-
ið mitt af Michael Jackson.“ Umrætt vegg-
spjald sýndi þann Jakcson sem ég þekkti – í
„Bad“-leðurgallanum.
Bróðir minn fannst, heill og alsæll í
göngutúr í hverfinu, og ég reyndi aldrei
aftur að týna honum eftir þetta. Mér til
mikillar gleði hafði hann svo, fjögurra ára
gamall, engan áhuga á veggspjald-
inu og það hékk því áfram í herberg-
inu. Mér er ljóst hve stóran part
Jackson átti í hjarta mér þar sem
ég var tilbúin að fórna honum og
skipta fyrir bróður minn sem
mér leiddist meira en lífið sjálft á
þessum tíma. Megi snillingurinn
hvíla í friði.
Skipt á bróður og Jackson
NOKKUR ORÐ
Júlía Margrét
Alexandersdóttir