Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 53
inni&úti ●
● Dýr sem hafa verið veidd,
skoptvopn og veiðitengdir mun-
ir eru Veiðisafninu á Akureyri.
Á Stokkseyri er veiðisafn sem er ein-
stakt á landsvísu vegna þess að þar
er að finna fjölbreytt úrval uppstopp-
aðra veiðidýra, skotvopn og veiðitengda
muni. Á safninu er hægt að fræðast um
veiðidýr, skotvopn, veiðar og náttúru-
vernd.
„Hér erum við með fasta sýningu í
tveimur sölum og uppistaðan er veidd og
uppstoppuð dýr frá Íslandi, Ameríku, Græn-
landi og Afríku en það eru til dæmis gíraffar,
selir, apar og hreindýr,“ segir Páll Reynisson,
veiðimaður í Veiðisafninu á Stokkseyri. „Hér
er fullt af skotvopnum líka, íslenskum og erlend-
um.“
Páll segir að Afríkudýrin veki mikla eftirtekt.
„Ég veiddi dýrin meira og minna öllsömul. Ég hef
farið til Afríku nokkrum sinnum þannig að safnið
er byggt upp á mínu einkasafni og var opnað 2004 en nýr salur var opn-
aður árið 2007. Þetta er stærsta safn landsins af uppstoppuðum dýrum
sem opið er almenningi.“
Aðspurður segir Páll safnið vera mjög vinsælt. „Hingað koma, merki-
legt nokk, mest Íslendingar, alla vega sem komið er.“ - mmf
Fjölbreytt úrval uppstoppaðra dýra er meðal annars að finna á safninu.
MYND/VEIÐISAFNIÐ Á AKUREYRI
Ljón, apar og
gíraffar til sýnis
Konung ljónanna má
finna á Veiðisafninu.
Stórmarkaður
á netinu!
Grettislaug er fínn áningarstaður
fyrir þá sem eiga leið um Skaga-
fjörð. Fyrir utan hversu gott er að
láta fara vel um sig í lauginni, er
gaman að rifja upp frásögnina af
henni í Grettisögu. Þar segir af
því að Grettir hafi eftir mikinn
sund sprett komið þar að landi í leit
að eldi og ákveðið að ylja sér ofan í
lauginni, sem hafði myndast vegna
jarðhita. Eftir það gekk hann í hús
skammt frá og fékk, eftir kostuleg
samskipti við kvenfólkið á bænum,
eld til að flytja út í Drangey þar
sem hann viðhafðist. Þess skal
getið að laugin hvarf í hafróti árið
1934 og var grafin upp 58 árum
síðar og þá endurgerð og -bætt.
Bað í Grettislaug
● Tilvalið er að ylja sér í þessari sögufrægu laug í Skagafirði.
Almennt er vel látið af lauginni. MYND/ÚR EINKASAFNI
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 11