Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 50
● inni&úti
1. Forstofa bústaðanna vill
oft gleymast en hægt er að setja
mjög fallegan svip á hana á ein-
faldan hátt. Finnið gamalt af-
gangstimbur sem þið eða ein-
hver fjölskyldumeðlimur á. Smíð-
ið ykkur einfalt fatahengi og hér
gildir það að því „heimagerðari“
hlutföll og frjálslegri, því fallegri
verður hluturinn. Einnig er hægt
að nota við sem er til frá því að
síðast þurfti að fella tré og nota í
hengið eða lítinn sætan koll eins
og hér.
2. Einfalt tjald er hægt að
hengja upp og stúka forstofuna af
til að skilja á milli ef bústaðurinn
er lítill. Gardínulengja dugar vel,
til að mynda úr IKEA.
3. Mismunandi leirtau í einum
bunka getur verið mjög fallegt.
Ef þig vantar sumarbústaða-
stell skaltu ekki kaupa það held-
ur biðja alla vini og ættingja að
gefa þér einn disk og safna saman
í stell. Flestir eiga disk afgangs
úr gömlu safni sem aldrei er not-
aður eða einhvern sem tínst hefur
með.
4. Stillið leirtauinu upp í opnu
rými en felið ekki inni í skápum.
Bústaðurinn er ekki til þess að
vera mínimalískur í. Aldrei.
5. Heimatilbúð veggblóma-
ker! Hér gildir hugmyndaflug-
ið. Finnið gamalt leikfang, svo
sem skip eða annað sem ykkur
finnst kannski ekkert sérstaklega
fallegt. Málið í fallegum litum,
fyllið af sumarblómum og heng-
ið á vegg!
6. Málið sumarbústaða-
panelinn. Það er séríslenskur
villudómur að ekki megi mála
sumar bústaðapanel. Hér er hann
málaður hvítur og hvatningarorð
sumarsins eru: Málið gula panel-
inn í litum.
7. Stór krukka, sem þið eigið
utan af einhverju (getur þess
vegna verið krukkan sem þið
geymið pastað í eða annað slíkt),
er falleg undir gamaldags límon-
aði. Drykkurinn dugar fram eftir
degi (6 sítrónur, 3 og 1/2 bollar
vatn, 3/4 bollar sykur. Leysið syk-
urinn upp í vatninu, pressið sítr-
ónurnar út í, hrærið vel saman).
8. Litsterk blóm úr villtri nátt-
úru eða garðinum ykkar eru ekki
síður fögur þurrkuð. Blómin
koma vel út þar sem vantar líf –
til dæmis yfir dyrunum að kompu
bústaðarins. Lykillinn er að hafa
blómin ekki litlaus.
9. Vantar þig gluggatjöld í bú-
staðinn? Finndu gamla snotra
hvíta dúka eða sængurföt og fald-
aðu aðeins. Hengdu svo fyrir
sumarbústaðagluggana. Hér
eru til dæmis tveir mismunandi
mynstraðir dúkar hengdir upp.
10. Alls kyns krukkur sem þú
átt utan af súrum gúrkum, rauð-
káli og slíku skaltu geyma. Þvoðu
og settu svo hvít kubbakerti í
og kveiktu á ágústkvöldum í bú-
staðnum. Ótrúlega fagurt og róm-
antískt. - jma
ódýr ráð fyrir krúttlegri
sumarbústað
● Það þarf ekki að kosta formúu að flikka upp á bústaðinn og gera hann huggulegan í
sumar. Það er líka fátt skemmtilegra en að dunda sér við einhver smáverkefni í sumarsæl-
unni í Biskups tungum eða á Flúðum. Ykkur fer fljótt að leiðast að liggja í leti allan tímann.
1
2
5
6
10
10
7
8
9
3
4
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
27. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR8