Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 62
34 27. júní 2009 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Ath kl. 15.00 Kvartett danska kontrabassaleik- arans Andreas Dreier kemur fram á þriðju tónleikum Jómfrúarinn- ar við Lækjargötu í dag. Fyrsta geislaplata kvartettsins nefnist „Stew“ og inniheldur að mestu lög Dreiers en líka lög eftir gítarleik- arann, Andrés Þór Gunnlaugsson. Á Jómfrúnni spila þeir ásamt Sig- urði Flosasyni á saxófón og Þor- valdi Þór Þorvaldssyni á trommur. > Ekki missa af Brákarhátíð í Borganesi í dag. Bernt Ogrodnik hefur með krökkum gert risastóra brúðu af Brák og er margt við að vera á staðnum. Ganga verður kl. 13.30 og í framhaldi hennar fjölskylduskemmtun í Skalla- grímsgarði. Þá lýkur í kvöld sýningu á vatnslitamyndum eftir þrettán kunna myndlistar- menn í Brákarey sem eru málaðar síðustu daga víða um héraðið. Í eftirmiðdaginn verða tónleikar í Áskirkju og hefjast kl. 16. Gítarleikarinn Kristinn Árnason heldur tónleikana og leikur þar verk eftir Narva- ez, Sans, Kapsberger, Bach, Aguado, de Falla og Albeniz auk þess að frumflytja eigið tónverk. Kristinn lauk burtfararprófi í klassískum gítarleik frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar árið 1983. Kennarar hans voru Gunnar H. Jónsson og Joseph Fung. Hann stundaði framhaldsnám hjá Gordon Crosskey í Englandi og í New York við Manhatt- an School of Music þaðan sem hann lauk prófi árið 1987. Þaðan lá leiðin til Spánar þar sem hann var tvo vetur við nám hjá José Tomás. Hann hefur leikið á námskeiðum meðal annars fyrir Andrés Segovia, Manuel Barrueco og Hans Werner Henze. Kristinn hefur komið víða fram sem einleikari hérlendis sem erlendis og leikið kammertónlist af mörgu tagi. Hann hefur leikið inn á fjölda hljómdiska og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, meðal annars starfslaun listamanna, verðlaun úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns árið 2007, Íslensku tónlistarverðlaunin árið 1997 fyrir klassískan hljómdisk ársins og tilnefningu til Menningarverðlauna DV. Strengir slegnir í Áskirkju TÓNLIST Kristinn Árnason gítarleikari. Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju hefst á morgun og er það nú haldið í sautjánda sinn. Á orgel- sumri er því fagnað hversu mikið og merkilegt orgel er í kirkjunni á Skóla- vörðuhæð og þangað koma orgelleikarar á heimsmæli- kvarða. Hátíðinni tengist svo margvíslegt annað starf en tónlistarlíf og hefur listastarf verið mikilvægur þáttur í kirkjustarfinu í Hallgrímssókn. Tónleikaröðin er haldin undir merkjum Listvinafélags Hall- grímskirkju og hefur verið árleg- ur viðburður frá því að Klais-orgel kirkjunnar var vígt 1992. Alþjóðlegt orgelsumar og Klais- orgel Hallgrímskirkju hafa ávallt laðað að sér framúrskarandi lista- menn og svo er einnig í sumar. Org- anista, sem koma víða að og flytja okkur fjölbreytta orgeltónlist, bæði frá heimalandi sínu og einn- ig þekktar orgelperlur. Meðal flytj- enda í ár má nefna Andreas Siel- ing, dómorganista í Berlín, Roger Sayer, dómorganista í Rochester í Englandi, og Susan Landale, sem er meðal virtustu konsertorganista í heiminum í dag. Að þessu sinni er tónskáldið Felix Mendelssohn- Barth oldy í öndvegi. Mendelssohn fæddist í Hamborg í Þýskalandi 1809 og er þess minnst víða um heim að 200 ár eru liðin frá fæð- ingu hans. Í Hallgrímskirkju verða öll helstu verk hans fyrir orgel flutt á Alþjóðlega orgelsumrinu 2009. Orgelhátíðin hefst á morgun með með opnunartónleikum Björns Steinars Sólbergssonar organista í Hallgrímskirkju kl. 17. Tónleik- arnir verða svo haldnir á hverj- um sunnudegi kl. 17 til og með 16. ágúst. Á fimmtudögum kl. 12.15 í sumar verða tónleikar í Dómkirkjunni í Reykjavík þar sem íslenskir org- elleikarar koma fram ýmist einir eða með gestum. Tónleikarnir eru á vegum Félags íslenskra organleik- ara í samvinnu við Listvinafélag Hallgrímskirkju. Fyrstu tónleik- arnir eru haldnir 2. júlí og síðan verða tónleikar á hverjum fimmtu- degi til 6. ágúst. Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur einnig fyrir hádegis- tónleikum í kirkjunni á miðviku- dögum kl. 12 í júlí og ágúst í sumar. Þar kemur fram hinn margrómaði kammerkór Schola cantorum, sem mun flytja íslenska og erlenda kór- tónlist. pbb@frettabladid.is Hátíð í Hallgrímskirkju TÓNLIST Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju, hefur orgelsumarið í kirkjunni á morgun kl. 17. MYND/LISTAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU Enn halda áfram opinber mót- mæli vegna afstöðu fulltrúa Bandalags íslenskra listamanna í Menningarmálanefnd Reykja- víkur sem fettu fingur út í þá ákvörðun nefndarinnar að velja Steinunni Sigurðardóttur sem Borgarlistamann 2009. Nú hefur borist yfirlýsing frá stjórn Tón- skáldafélags Íslands varðandi útnefninguna. „Að gefnu tilefni vill stjórn Tónskáldafélags Íslands koma eftirfarandi á framfæri varðandi útnefningu Steinunnar Sigurðar- dóttur fatahönnuðar sem borgar- listamanns Reykjavíkurborgar árið 2009. Stjórn BÍL hefur aldrei fjallað um útnefningu borgarlistamanns 2009. Sú yfirlýsing sem áheyrnar- fulltrúar BÍL í Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborg- ar – þau Ágúst Guðmundsson, forseti BÍL, og Áslaug Thorlaci- us, formaður SÍM, hafa sett fram varðandi útnefningu Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar í nafni BÍL – nýtur því ekki stuðn- ings Tónskáldafélags Íslands. Þá harmar stjórn Tónskálda- félagsins að íslenskir listamenn séu dregnir inn í slíkar umræður með þessum hætti. Að lokum óskar stjórn Tón- skáldafélags Íslands Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuði til hamingju með útnefninguna sem borgarlistamaður Reykjavíkur- borgar árið 2009. F.h. stjórnar, Kjartan Ólafsson, formaður.“ - pbb Tónskáld mótmæla MENNING Steinunn Sigurðardóttir, hönn- uður og þrætuepli. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H A R I H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 9 -0 5 9 1 WWW.101TOKYO.IS 1 1 TOKYO 13.06.09–13.07.09 SNERTING VIÐ JAPAN Í NORRÆNA HÚSINU REYKJAVÍK Japönsk-íslensk tónsmiðja: Tónlistarmenn og tónsmiðir frá Listaháskólanum í Tokyo (Geidai) og Listaháskóla Íslands frumflytja klassískt- ofurnútímalegt verk sem er sérstaklega samið í tilefni af Japansdagskrá Norræna hússins. Sunnudagsbíó: The Burmese Harp frá 1956 eftir Kon Ichikawa. Tilnefnd til Óskarsverðlauna 1957 sem besta erlenda kvikmyndin. SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ KL. 16.00: LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ KL. 17.00: AÐGANGUR ER ÓKEYPIS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.