Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 52
● inni&úti
FORTÍÐARÞRÁIN
Ó víða hefur uppbyggingin verið meiri en í Kópavogi á síðustu áratugum. Þessi mynd er tekin af ungu at-hafnafólki í húsbyggingum á smíðavelli þar í bæ í september árið 1968. Mörg stórhýsin hafa risið þar síðan.
MYND/365 – LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
S norri Helgason, tónlistarmaður og söngvari Sprengjuhallarinnar,
er að eigin sögn mikið borgarbarn en
kann þó ágætlega við sig í sveitinni
og á sér að minnsta kosti tvo uppá-
haldsstaði.
„Ég held mikið upp á Akureyri, þótt
sá bær falli nú kannski ekki undir sveit,
en þar finnst mér gaman að vera. Um-
hverfið er fallegt og fólkið skemmti-
legt. Sveitinni kynntist ég hins vegar
eiginlega ekki fyrr en ég fór að fara í sumarbústað
tengdaforeldranna með kærustunni minni fyrir tveim-
ur árum en foreldrar mínir hafa aldrei átt sumarbústað
og höfum við eytt mestum okkar tíma í borginni,“ segir
Snorri, sem ólst upp í Reykjavík en hefur ferðast svolítið
um landið með Sprengjuhöllinni.
Sumarbústaðurinn sem um ræðir er í nágrenni Laug-
arvatns og er Snorri afskaplega hrifinn af því svæði. „Um-
hverfið er fallegt og það er lítil á rétt hjá þar sem hægt er
að fara á kanó og veiða, þannig það er mjög skemmtilegt
að vera þarna,“ segir hann glaðlega og bætir við: „Þetta er
samt frekar nýtt svæði þannig að þarna er ágætis næði
en þó stutt í alla þjónustu og stutt að fara frá Reykjavík.“
Í gær kom út fyrsta lag Snorra, Freeze-Out, á fyrstu
sólóskífunni sem hann vinnur að um þessar mundir.
„Lagið fjallar að einhverju leyti um útskúfun og að vera
utanveltu en það tengist þó ekkert sveitinni,“ segir hann
og hlær. „Platan er væntanleg með haustinu en lagið er
hægt að sækja án endurgjalds á bloggsíðuna www.breid-
holt.blogspot.com. Síðan mun ég fagna útgáfu lagsins
með tónleikum á skemmtistaðnum Karamba á morgun
klukkan 21. Þar ætla ég að leika lög af væntanlegri plötu,“
segir hann spenntur. - hs
SVEITIN MÍN
Borgarbarn á Laugarvatni
Snorri Helgason,
tónlistarmaður.
Tengdaforeldrar Snorra eiga bústað í nágrenni Laugar-
vatns en þar er meðal annars hægt að fara á kanó.
Akureyri er í miklu uppáhaldi hjá Snorra sem þykir umhverfið
fallegt og fólkið skemmtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
...flísar...parket
teppi...dúkar...
Allt á gól ð á góðu verði !
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
27. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR10