Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 27. júní 2009 3
„Leikurinn er mjög einfaldur,“
segir Hilmar Sigurjónsson hjá
Nings. „Það eina sem fólk þarf að
gera er að koma og versla á Nings
og þá fær það þátttökumiða sem
fylla þarf út og setja í kassa. Svo
er dregið út á föstudögum í allt
sumar í morgunþætti Ívars Guð-
mundssonar á Bylgjunni.“
Nú þegar hafa átta vinnings-
hafar verið dregnir út en það eru
þau Erna Vestmann, Sigurveig
Sara Björnsdóttir, Birgir Sigur-
jónsson, Silja Rún Gunnlaugsdótt-
ir, Guðrún Inga Sívertsen, Jón B.
Jónsson, Linda Dögg Jóhannsdótt-
ir og Ingólfur Guðmundsson.
Vinningar í leiknum eru ekki af
verri endanum en þeir eru 15.000
króna matarkarfa frá Bónus,
þriggja mánaða kort í World Class
Laugum, 10.000 króna bensín-
úttekt frá Olís, gos frá Ölgerð-
inni, Tempur-heilsukoddi frá
Betra baki, frítt í Laugarásbíó í
allt sumar og frítt frelsi frá Tal
í allt sumar.
Hilmar segir að á Nings sé
keppst við að allir fái eitthvað við
sitt hæfi. „Á Nings er lögð áhersla
á að allt hráefni sé ferskt og eldað
við mikinn hita í stuttan tíma,
sem tryggir ferskleika og gæði.
Á Nings getur þú fengið flestallt
sem þig langar í þegar kemur að
austurlenskum mat.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.bylgjan.is.
Sumarleikur Nings
Sumarleikur Nings og Bylgjunnar er nú haldinn í fjórða skipti í ár
og stendur út júlí.
Fimmtán Hvergerðingar hafa
stofnað gallerí í gamla KÁ-
húsinu við Breiðumörk 24. Þar
stunda þeir iðju sína og selja
afurðirnar.
Margs konar heimagerðir munir
eru á markaðinum við Breiðumörk.
Allt frá eyrnalokkum úr fagurlit-
uðu flöskugleri til gítara. Skart-
gripir og ullar- og silkisjöl vekja
athygli svo og útskornir listmun-
ir. Markaðurinn heitir Handverk
og hugvit og ber nafn með rentu.
Hann verður opinn alla daga í
sumar og hefur heimasíðuna hand-
verkgalleri.is - gun
Gallerí í
gamla KÁ
Bjartar nætur eftir Sigrúnu S. Jónsdóttur.
Jón B. Jónsson er einn af vinnings-
höfum í sumarleik Nings.
Kynning
Vinningshafar A Vinningshafar B
1. Vika 24 5. júní Erna Vestmann, Reynigrund 3, Akranesi, S: 8661892 Sigurveig Sara Björnsdóttir, Víðimel 56, S: 8661873
2. Vika 25 12. júní Birgir Sigurjónsson, Dvergabakka 8, S: 8985153 Silja Rún Gunnlaugsdóttir, Hólmasundi 4, S: 8958863
3. Vika 26 19. júní Guðrún Inga Sívertsen, Keilugranda 4, S: 6997808 Jón B. Jónsson, Kelduhvammi 14, Hfj., S: 5652136
4. Vika 27 26. júní
5. Vika 28 3. júlí
6. Vika 29 10. júlí
7. Vika 30 17. júlí
8. Vika 31 24. júlí
9. Vika 32 31. júlí
Vinningur A
50 lítrar af gosi frá Ölgerðinni, þriggja mánaða kort hjá World Class, 10.000
kr. úttekt frá Olís, Frítt frelsi frá Tal í allt sumar.
Vinningur B
50 lítrar af gosi frá Ölgerðinni, 15.000 kr. gjafabréf í Bónus, Frítt í Laugarás-
bíó í allt sumar, Tempur-heislukoddi frá Betra bak.
Hilmar Sigurjónsson segir að á Nings sé lögð áhersla á að allt hráefni sé ferskt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýr markaður hefur verið opnaður í
Hveragerði. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.