Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 78
50 27. júní 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. niður, 6. í röð, 8. ham-
fletta, 9. tækifæri, 11. fyrir hönd,
12. toga, 14. ráðagerð, 16. verslun,
17. eyða, 18. munda, 20. ætíð, 21.
ferðast.
LÓÐRÉTT 1. sía, 3. tveir eins, 4.
plöntutegund, 5. lík, 7. barningur, 10.
gifti, 13. sódi, 15. korn, 16. nafar, 19.
ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ofan, 6. áb, 8. flá, 9. lag,
11. pr, 12. draga, 14. áform, 16. bt, 17.
sóa, 18. ota, 20. sí, 21. rata.
LÓÐRÉTT: 1. sáld, 3. ff, 4. alparós, 5.
nár, 7. barátta, 10. gaf, 13. gos, 15.
maís, 16. bor, 19. at.
Marentza Poulsen rekur Kaffi
Hljómskálann í sumar.
Aldur: Ég er fædd 1950.
Starf: Veitingakona.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Reykjavík.
Fjölskylda: Ég á mann, tvö börn,
tengdason og tvö yndisleg barna-
börn.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Michael Jackson.
2 50 ára.
3 Páll Hreinsson.
„Jú, þetta er rétt, þetta er í samvinnu við
Guðna Th. Jóhannesson og verður byggt á
bókinni hans,“ segir sjónvarpskonan Þóra
Arnórsdóttir sem er að fara að gera heimildar-
þáttaröð um íslenska efnahagshrunið. Þóra
neitar því ekki að þetta sé krefjandi verkefni
en hún sé full tilhlökkunar að takast á við það.
Ráðgert er að tökur og vinnsla hefjist í ágúst
en þangað til mun sjónvarpskonan liggja yfir
bók Guðna í sólinni á Ítalíu þar sem hún er nú
í sumarfríi.
Um er að ræða fimm þátta röð. Fjórir
fyrstu þættirnir verða byggðir á bókinni en
sá fimmti fjallar um hvað hefur gerst síðan
bókin kom út. Þóra segir stefnt að því að
frumsýna fyrsta þáttinn hinn 6. október en
þá verður nákvæmlega ár liðið síðan Geir H.
Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bað Guð
að blessa þjóðina í eftirminnilegu ávarpi.
Guðni sjálfur var ákaflega hrifinn af þess-
ari hugmynd og telur bráðsnjallt
að fá sjónrænan vinkil á bók-
ina. „Hún er náttúrlega mikið
byggð á sjónvarpsviðtölum,
fréttamannafundum og ávörp-
um. Það var náttúrlega dálítið
dramatísk atburðarás í kring-
um þetta og mikið af mynd-
efni til,“ segir Guðni. Hann
var að sjálfsögðu ákaflega
ánægður með söluna á bók-
inni en sagðist þó ekki vera
stoppaður í Hagkaupum
af fólki sem vildi deila með
honum kenningum sínum
um hrunið. „Ef maður
vill verða heimsfræg-
ur á Íslandi er sagn-
fræði ekki rétta
leiðin.“ - fgg
Þóra gerir sjónvarpsþætti um Hrunið
„Þetta er búin að vera löng nótt,
ég er búinn að vera í símanum
frá því að fréttirnar bárust,“
segir Shmuley Boteach rabbíni,
einn nánasti vinur poppkóngs-
ins Michaels Jackson, í samtali
við Fréttablaðið. Í viðtölum við
erlenda fréttamiðla hefur Shmu-
ley sagt að þetta sé amerískur
harmleikur en honum hafi alltaf
fundist eins og þetta yrðu örlög
Jacksons, að deyja ungur.
Shmuley er staddur hér á landi í
fríi með fjölskyldu sinni og hefur
verið hér í tvo daga. Hann var
staddur í bíl sínum þegar frétt-
irnar um sviplegt fráfall Jack-
sons bárust og greinir frá því á
vefsíðu sinni að hann og fjölskyld-
an öll hafi fengið áfall. Tár hafi
fallið í aftursætunum þegar börn-
in fengu að vita að Jackson væri
farinn yfir móðuna miklu.
Shmuley og Jackson unnu
saman að góðgerðarsamtökunum
Heal the Kids. Frægur er fund-
urinn sem Shmuley skipulagði í
Oxford 2001 með Jackson en þá
fylltist svæðið af þúsundum aðdá-
enda sem vildu ólmir heyra goðið
tala. Ræða Jacksons þótt hjart-
næm og hrífandi en hann sagði
meðal annars að hvert einasta
mannsbarn ætti skilið að heyra
sögu fyrir svefninn. Sumir fjöl-
miðlar hafa haldið því fram að
Shmuley hafi snúið baki við Jack-
son þegar hann var sakaður um
að hafa áreitt börn á heimili sínu,
Neverland, en rabbíninn hefur
ávallt vísað því á bug. - fgg
Syrgir poppkónginn á Íslandi
SHMULEY OG JACKSON Rabbíninn og
poppkóngurinn koma til Oxford 2001.
Shmuley var staddur á Íslandi þegar
Jackson dó. NORDIC PHOTOS/AFP
„Menn eru ekki ánægðir. Og þetta
er ekki bara einhver afmarkaður
hópur bókaútgefenda heldur er
breið samstaða meðal bókaútgef-
enda um þetta,“ segir Kristján B.
Jónasson. Hann er þarna að vísa
í endursöluherferð Pennans þar
sem viðskiptavinum gefst kost-
ur á að koma með kiljur frá árinu
2007 til 2009, selja hvert stykki
fyrir 200 krónur og kaupa aðrar
skilabækur á 400 krónur. Inneign-
arnótur er síðan hægt að nota til
að fjárfesta í nýjum bókum eða
öðrum varningi sem Penninn
selur. Bókaútgefendur telja að
með þessu sé Penninn að gefa
bóksölu sumarsins langt nef.
Kristján segir þetta átak óskilj-
anlegt í augum útgefanda. Þeir
hafi ekki einu sinni verið látnir
vita. „Rétt er að taka það fram
að þetta átak stendur yfir í einn
mánuð, júlí. Í þeim mánuði selj-
ast hins vegar flestar kiljur því
Íslendingar eru á faraldsfæti þá,
júlí er hálfgerður kiljumánuð-
ur. En nú mun enginn kaupa sér
kilju heldur koma allir með þær
gömlu og skipta þeim fyrir ein-
hverja aðra gamla. Á meðan ryk-
falla nýju kiljurnar við hliðina,“
Kristján segir jafnframt óskilj-
anlegt að fyrirtæki sem sé í eigu
ríkisins sé að standa í svona loft-
fimleikum. „Maður spyr sig hvort
ekki væri réttara að það styddi við
samfélagið í stað þess að varpa
einhverri sprengju inn á þennan
markað sem neytendur hafa verið
svo ánægðir með,“ segir Kristján
og bendir á að verð á kiljum hafi
lítið sem ekkert hækkað.
Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri
Pennans, telur ótta bókaútgef-
enda ástæðulausan. „Þetta hefur
vakið alveg stormandi lukku, fólk
hefur verið að nýta sér þetta sem
góðan afslátt upp í nýjar bækur,“
segir Bryndís og bætir við að
menn ættu bara að bíða og sjá.
„Við vitum það alveg að fólk sæk-
ist eftir nýjum bókum og þetta
átak á eftir að örva þann markað
til muna,“ heldur Bryndís áfram
og bendir jafnframt á að þetta
gæti hugsanlega orðið til þess að
starfsfólkið sjái jafnvel Íslendinga
í bókabúðum yfir sumartímann.
„Við erum ofsalega ánægð með
viðtökurnar og fólk er ekki síður
þakklátt, það getur nú hreins-
að út úr hillunum og rýmt fyrir
nýju lestrarefni. Þetta er einhver
óþarfa taugatitringur hjá bókaút-
gefendum.“ freyrgigja@frettabladid.is
KRISTJÁN B. JÓNASSON: RÍKIÐ AÐ RÚSTA JÚLÍ-BÓKSÖLUNNI
Bókaútgefendur æfir yfir
endursöluherferð Pennans
FIMM HEIMILDARÞÆTTIR UM HRUNIÐ
Þóra Arnórsdóttir gerir fjóra heimildar-
myndaþætti eftir Hruni Guðna Th.
Jóhannessonar. Bók stjörnusagn fræð-
ingsins hefur selst eins og heitar
lummur og hefur setið í efsta sæti
bóksölulista Eymundsson í þrjár
vikur.
Eins og sjá má framar í blaðinu
höfðu ansi margir sterkar skoðanir
á poppgoðinu Michael Jackson
sem lést, langt fyrir aldur fram,
fimmtudaginn 25. júní. En svo
virðist að nokkur fjöldi Íslendinga
hafi haft persónuleg kynni af
goðinu. Meðal þeirra má nefna
stuðmannabarnið Bryndísi
Jakobsdóttur sem var leyst út
með gjöfum frá Neverland, meðal
annars áritaða gripi frá Jackson
sjálfum sem vafalítið eiga eftir að
hækka í verði þegar frá
líður. Og ekki má
gleyma Sigurjóni
Sighvatssyni kvik-
myndaframleið-
anda sem horfði
meðal annars
á Simpsons-
þætti með
tónlistar-
mannin-
um.
Og íslenska áfengisvarnarauglýs-
ingin Láttu ekki breyta þér í svín
var valin besta almannaheilla-
herferðin á auglýsingahátíðinni
í Cannes sem nú stendur yfir.
Auglýsingin hefur vakið feikilega
mikla athygli og þykir
nokkuð kraftmikil.
Höfundurinn er þó
þekktastur fyrir grín
en það er sjálfur
Jón Gnarr sem nú
er á fullu við að
leika í kvik-
myndinni
Bjarn-
freðar-
son.
Greint var frá því í vikunni á
þessum stað að Silju Hauksdóttur
hefði verið falið að leikstýra fram-
haldinu af Rétti þar sem Magnús
Jónsson fór á kostum í hlutverki
harðskeytts lögfræðings. Þetta ku
alls kostar ekki vera
rétt því sá sem mun
sitja í leikstjóra-
stólnum er Sævar
Guðmundsson en
hann leikstýrði
einnig fyrri þátta-
röðinni. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKIÓSÁTT OG SÁTT Kristján B.
Jónasson, formaður Félags bókaútgef-
enda, segir Pennann og þar með ríkið
vera að varpa sprengju inn á markað
sem neytendur hafi verið ánægðir
með. Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri
Pennans, telur ótta bókaútgefenda
óþarfan, flestir nýti gömlu bækurnar
sem afslátt upp í nýjar.
Rafmagnspottar og hitaveituskeljar
Í MIKLU ÚRVALI.
VERÐ FRÁ 198.000,-