Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 72
44 27. júní 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson segist í viðtali við
staðarblaðið The News í Portsmouth alls ekki vera að íhuga að
leggja skóna á hilluna frægu í bráð en hann framlengdi sem
kunnugt er samning sinn við Portsmouth á dögunum.
„Mér líður frábærlega. Ég er örugglega í betra formi núna
en ég hef nokkurn tímann verið áður og mér líður alls
ekki eins og ég sé að verða 35 ára gamall. Mér finnst
ég líka enn vera að taka framförum. Ég held að ég
eigi því örugglega góð þrjú ár eftir og sé fyrir mér
að ég geti alveg spilað áfram þangað til ég verð 38
ára gamall,“ segir Hermann.
Hermann samþykkti samningstilboð frá
Portsmouth um eitt ár, með möguleikanum á að
framlengja um annað ár ef hann spilar ákveðið
marga leiki á næsta keppnistímabili.
„Ég hef verið heppinn að sleppa við meiðsli
hingað til á ferli mínum og ef ég verð áfram
heppinn á næstu leiktíð ætti ég vonandi að ná
þeim leikjum sem til þarf til þess að ég framlengi
samninginn um annað ár við Portsmouth. Ég gæti svo jafnvel
verið þar enn lengur en það,“ segir Hermann.
Hermann spilaði stóra rullu þegar Portsmouth bjargaði sér
frá falli á síðustu leiktíð og skoraði mikilvæg mörk á lokaspretti
deildarinnar. Hann hlakkar til þess að hefja nýtt tímabil en liðið
mætir aftur til æfinga 9. júlí og deildin hefst svo í ágúst.
„Þegar maður horfir til baka gerðum við mjög vel
að bjarga okkur frá falli, því staðan var alls ekki góð
á tímabili. Það er líka til marks um það hvað enska
úrvalsdeildin er gríðarlega sterk þegar félög eins og
Newcastle og Middlesbrough, sem hafa verið í efstu
deild í fjöldamörg ár, falla. Við erum áfram í úrvals-
deildinni og ég get ekki beðið eftir því að þetta byrji
aftur,“ segir Hermann að lokum.
Miklar breytingar eru fram undan hjá Portsmouth
þar sem milljarðamæringurinn Sulaiman Al-Fahim
er að klára yfirtöku á félaginu og búist er við því að
félagið eigi eftir að kaupa sex til sjö nýja leikmenn í
sumar.
HERMANN HREIÐARSSON: HEFUR SJALDAN LIÐIÐ BETUR OG PLANAR AÐ SPILA ÁFRAM NÆSTU ÁRIN
Get alveg spilað áfram þangað til ég verð 38 ára
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
www.rainbow.is
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow
með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000
meðan byrgðir endast.
FÓTBOLTI Óhætt er að segja að
Elísabet Gunnarsdóttir og lið
hennar, Kristianstad, hafi ekki
fengið óskabyrjun í upphafi tíma-
bilsins í sænsku úrvalsdeildinni í
vor. Liðið tapaði fyrstu tíu leikj-
um sínum í deildinni og datt þar
að auki úr leik í bikarkeppninni.
Þetta er fyrsta tímabil Elísabet-
ar með félaginu en hún gerði Val
að margföldum Íslandsmeisturum
áður en hún hélt utan.
Kristianstad hefur þó náð að
snúa genginu við og unnið síðustu
tvo leiki sína og þar með lyft sér
upp úr fallsæti.
„Það var gríðarlega góð til-
finning og afar mikilvægt,“ sagði
Elísabet um sigurleikina. „En ann-
ars hefur þetta verið í bland hrika-
legt en líka góð reynsla. Ég hafði
mest tapað tveimur leikjum í röð á
ævinni,“ sagði hún og hló.
Hún sagði að það hafi vissulega
stundum verið erfitt að takast á
við mótlætið.
„Ég var í baráttu við sjálfa mig
vikuna á milli leikja. Ég get við-
urkennt nú að það flugu alls kyns
hugsanir í gegnum kollinn og
spurði ég mig þeirrar spurningar
hvort ég ætti að stíga til hliðar og
láta einhvern annan taka við. Ég
hræddist það líka að mér yrði sagt
upp á þessum tíma.“
En Elísabet fann þó fyrir mikl-
um stuðningi og hélt því áfram.
„Það var meira verið að hugsa til
þess að ég myndi ekki hætta sjálf,“
sagði hún í léttum dúr. „Ég hef líka
fundið fyrir miklum stuðningi úr
leikmannahópnum og það er dýr-
mætt.“
Hún segir að gengið hafi ekki
gefið rétta mynd af frammistöðu
leikmanna á vellinum. „Það sem
vann mjög á móti því að ég labb-
aði út var að liðið spilaði alls ekki
illa þegar við vorum að tapa öllum
þessum leikjum. Það hljómar
kannski fáránlega en það er engu
að síður staðreyndin. Við fengum
ekki færri dauðafæri en andstæð-
ingurinn og ég get fullyrt að ekk-
ert lið í deildinni hefur misnotað
fleiri færi en við. Þegar svo er fer
sjálfstraustið að minnka og er ekk-
ert verra fyrir íþróttamenn en að
missa trúna á sjálfum sér.“
Elísabet fékk mikið breytt lið í
hendurnar í vetur en liðið missti
til að mynda alla varnarlínu sína
frá síðasta tímabili. „Ég hafði lít-
inn pening til að styrkja hópinn og
varð að púsla því saman sem ég
hafði. En við höfum verið að bæta
okkur mikið allt tímabilið.“
Hún segir að sjálf hafi hún lært
gríðarlega mikið af Svíþjóðar-
dvölinni. „Hér þekkti maður engan
og þarf að standa á eigin fótum
hvað allt varðar. Það er þó mjög
sérstakt að það er reynsla mín úr
Vestmannaeyjum sem hjálpar mér
mikið hér,“ sagði hún en Elísabet
þjálfaði ÍBV fyrir nokkrum árum.
„Það skiptir miklu máli að passa að
samskipti við leikmenn, stjórnar-
menn, stuðningsmenn og alla sem
að þessu koma séu í lagi þegar illa
gengur.“
Elísabet bætir því við að hún
sjálf hafi vissulega gert mistök í
vor. „Meðal annars vegna þess að
ég gerði mér ekki alveg grein fyrir
styrkleikanum á deildinni. Hún er
sterkari en ég í raun og veru hélt
og leikirnir eru miklu jafnari.
Hér eru allir leikir spennandi. Við
eigum til að mynda útileik gegn
meisturunum í Umeå í næstu viku
og þrátt fyrir allt hef ég trú á því
að við getum tekið stig úr öllum
leikjum.“ eirikur@frettabladid.is
Velti fyrir mér að hætta
Elísabet Gunnarsdóttir og lið hennar, Kristianstad í Svíþjóð, tapaði fyrstu tíu
leikjum sínum í sænsku úrvalsdeildinni en hefur nú unnið tvo í röð. Elísabet
segir að sú spurning hafi vaknað hjá sér hvort hún ætti að hætta þjálfun liðsins.
ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR Hefur stýrt Kristianstad til sigurs í tveimur leikjum í röð.
FÓTBOLTI Mikið hefur verið fjallað
um Eið Smára Guðjohnsen í ensk-
um fjölmiðlum að undanförnu enda
hefur hann verið sagður á leið frá
Barcelona. Arnór Guðjohnsen,
faðir og umboðsmaður Eiðs
Smára, segir þó að sér vit-
anlega sé lítið hæft í þeim
fregnum sem hafa borist
af hans málum í erlend-
um fjölmiðlum síðustu
daga og vikur.
„Ég get alveg lofað
því að það er ekkert
nýtt að frétta af þess- um
málum,“ sagði Arnór við
Fréttablaðið. „Það er í það
minnsta ekkert nýtt komið
inn á borð til okkar. Ég hef
ekkert heyrt nema það
sem ég les í fjöl-
miðlum.“
Arnór segir
að þeir séu
rólegir yfir
öllu saman
þrátt fyrir mikla athygli fjölmiðla.
„Svona er þetta á hverju ári og
menn eru því öllu vanir. Júní er
heldur ekki liðinn og félagaskipta-
glugginn er opinn til 1. september.
Ég á þó von á öllu.“
Þar að auki segir Arnór að Eiður
Smári og hans fjölskylda séu ekki
enn búin að ákveða hvort þau vilji
fara frá Barcelona. „Þau eru enn
að hugsa sín mál til hlítar og allir
möguleikar sem koma upp verða
grandskoðaðir. Hann er heldur
ekki búinn að loka á neinn mögu-
leika – það kemur allt til greina.“
- esá
Arnór Guðjohnsen segir Eið Smára enga ákvörðun hafa tekið um framhaldið:
Engin tilboð borist til okkar enn
EIÐUR SMÁRI
Hefur verið
hjá Barcelona
í þrjú ár.
NORDIC PHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Landsliðsmað-
urinn Jakob Örn Sigurð-
arson hjá KR stefnir á
að spila erlendis á næsta
tímabili. Hann hefur
þegar fengið samningsboð
frá liðum í Svíþjóð, Dan-
mörku og Belgíu en er enn
óviss um hvar hann muni
spila.
„Það er eitthvað í gangi
en ég er enn að bíða eftir
samningsboði sem ég er
sáttur við. Félög frá Sví-
þjóð, Danmörku og Belgíu
eru búin að setja sig í sam-
band við mig en ég hef ekki
viljað taka samningsboð-
um þeirra fram að þessu.
Ég ætla ekkert að hlaupa
að neinu og taka bara
því fyrsta sem býðst.
Það er því í raun
enn allt opið og það
getur líka vel verið
að þessi félög eigi eftir
að koma með önnur og
betri samningstilboð,“
segir Jakob Örn.
Hann spilaði á
sínum tíma með Bayer
Leverkusen í Þýska-
landi og Gestiberi-
ca de Vigo á Spáni
og viðurkennir
að hann væri til-
búinn að fara aftur
til Spánar.
„Það er verið að skoða fyrir
mig hvernig landið liggur á
Spáni og ég er dálítið að bíða
eftir því hvort eitthvað komi
út úr því. Ég veit samt ekki
hvað ég get beðið lengi með
það því ég vil helst fara að
klára þetta á næstu
v ikum,“ segir
Jakob Örn.
H a n n sner i
aftur í KR síð-
asta vetur og
varð Íslands-
meistari með
félaginu og ef sú
staða kemur upp
að hann fari ekki út
verður hann áfram
hjá Vesturbæjar-
félaginu.
„Stefnan er að fara
út og það er fyrsti
kostur hjá mér. Ef það
gengur ekki spila ég
pottþétt með KR. Það
er allt í góðum málum
þar og Páll [Kolbeins-
son] er tekinn við þjálf-
uninni og svona. Maður
leit nú alltaf upp til hans
þegar maður var yngri
enda spilaði hann sömu
stöðu og ég á vellinum,“ segir
Jakob á léttum nótum. - óþ
Jakob Örn ætlar að reyna fyrir sér erlendis:
Neitaði þremur liðum
EFTIRSÓTTUR Jakob Örn hefur fengið
samningstilboð víða að.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> Riley endar ferilinn í Eyjum
Knattspyrnudómarinn víðkunni Mike Riley hefur ákveðið
að leggja flautunni og taka við starfi sem yfirmaður
dómara hjá enska knattspyrnusambandinu en tilkynnt
var um ráðningu hans í dag. Riley er mikill Íslandsvinur
og er nú staddur í Vestmannaeyjum þar sem hann mun
dæma úrslitaleik Shell-mótsins í dag og samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins verður þetta
hans allra síðasti leikur sem hann
dæmir á ferlinum. Riley byrjaði að
dæma í ensku úrvalsdeildinni árið
1996 og á að baki marga stórleiki,
þar á meðal úrslitaleik FA-bik-
arsins árið 2002 og úrslitaleik
deildarbikarsins árið 2004.