Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 4
4 27. júní 2009 LAUGARDAGUR
Verð á mann í tvíbýli:
99.900kr.
Sérferð
20.–25. ágúst 2009
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting á góðu hóteli í miðborginni í 5 nætur með
morgunverði og akstur til og frá flugvelli.F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Rüdesheim við Rín
Fleiri dagsetningar og nánari upplýsingar
á expressferdir.is eða í síma 5 900 100
Ógleymanleg upplifun!
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
29°
24°
23°
25°
25°
27°
26°
24°
27°
22°
26°
26°
27°
33°
27°
25°
30°
25°
14
16
18
16
14
Á MORGUN
8-13 m/s sunnan til
annars 3-8
5
15
MÁNUDAGUR
Hæg, austlæg átt.
20
15
18
12
16
15
1 5
5
1
5
5
1
1 1
1
20
20
20
20
1816
15 19
20
1818
22
HELGARHORFUR
Blíðskaparveður
verður þessa helgina
víða um land. Í dag
verður hægviðri en
hafgola við strendur
landsins, einkum
norðanlands. Þar má
búast við þokulofti og
í því verður svalt. Hiti
til landsins gæti náð
20 stigum allvíða. Á
morgun verður hins
vegar dálítil væta
syðra með vindi allra
syðst en þá verður
bjart nyrðra og hiti
um 20 stig.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
MENNTUN „Stelpur taka oft fyrr
út þroska en strákar. Það gæti
verið ástæðan,“
segir Eiríkur
Jónsson, for-
maður Kenn-
arasambands
Íslands, spurð-
ur hverja hann
telji ástæðu
þess að stúlkur
eru með hærri
einkunnir en
drengir í grunnskóla og eru nú í
miklum meirihluta í vinsælustu
framhaldsskólum landsins. Hann
segir að KÍ hafi ekki rætt þetta á
fundum.
Aðspurður telur Eiríkur ástæð-
una ekki vera að meirihluti
kennara sé konur. Þó segir hann
áhugavert rannsóknarefni að
athuga hvað hafi breyst á undan-
förnum áratugum frá því að karl-
menn voru meirihluti kennara.
Þá hafi drengir verið með hærri
einkunnir. - vsp
Ástæðan gæti verið þroski:
Strákar hærri
þegar karlar
kenndu
EIRÍKUR JÓNSSON
Jóhanna G. Harðardóttir Kjalnesinga-
goði sá um þrjár af fjórum vígslu-
athöfnum á Þingblóti Ásatrúarfélags-
ins, en ekki Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði eins og sagt var í
Fréttablaðinu í gær.
LEIÐRÉTTING
ÆFING Tvær björgunaræfingar
fara fram um helgina. Annars
vegar ætla Björgunarsveit Hafn-
arfjarðar og Björgunarsveitin
Súlur frá Akureyri að æfa björg-
un úr Gullfossi. Þar verður látið
sem svo að ferðamaður hafi fallið
niður í fossinn og flotið að klöpp
sem klýfur fossinn í tvennt. Síðan
verður línu skotið yfir á hinn
bakkann, sem björgunarmaður
hyggst klifra eftir og síga niður
í gilið.
Þá mun umfangsmikil æfing
fara fram á hálendinu, þar sem
margar björgunarsveitir munu
æfa viðbrögð við umferðarslys-
um fjarri byggð. - sh
Tvær björgunaræfingar:
Æfa mannbjörg
úr Gullfossi
STJÓRNMÁL Innan Framsóknar-
flokks hefur verið rætt hvort
birta eigi yfirlit um styrki til
einstakra aðildarfélaga og ráða
flokksins fyrir árið 2006, líkt og
Samfylking gerði í lok maí.
Lítill tími hefur þó gefist til
þess háttar fundarhalda í mán-
uðinum, sérstaklega vegna anna
á Alþingi. Birting gagnanna er
því enn til umræðu en óvíst hvort
hefst fyrir mánaðamót að ljúka
henni.
Fjáröflun félaga og ráða stend-
ur fyrir utan yfirlit um fjáröflun
flokkanna á landsvísu. - kóþ
Styrkir til flokka árið 2006:
Framsókn er að
íhuga birtingu
ATVINNUMÁL Fyrirtækið Loftorka í
Borgarnesi lagði í gær inn beiðni
til Héraðsdóms Vesturlands um
að félagið yrði tekið til gjald-
þrotaskipta. Hjá fyrirtækinu
starfa 70 manns. Það er stærsti
vinnustaður Borgarness. Skipta-
stjóri verður nú settur yfir búið.
Haft er eftir Óla Jóni Gunnars-
syni, framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins, á vef Skessuhorns, að
Glitnir, viðskiptabanki Loftorku,
hafi ekki séð grundvöll fyrir
áframhaldandi rekstri. Því muni
menn ekki mæta til vinnu á ný
eftir helgi. Þegar best lét, árið
2007, störfuðu um 300 manns hjá
Loftorku. - sh
70 missa vinnu í Borgarnesi:
Loftorka óskar
eftir gjaldþroti
GJALDÞROT Stjórn Íslenskrar afþrey-
ingar óskaði eftir því í gær að
félagið yrði tekið til gjaldþrota-
skipta.
Félagið hét áður 365 og Dags-
brún en nafni þess var breytt í
Íslenska afþreyingu í nóvember
síðastliðinn þegar fjölmiðlahluti
félagsins var seldur.
„Stefnan var frá upphafi að selja
allar eignir og ljúka starfsemi
þessa félags,“ segir Ari Edwald,
stjórnarformaður Íslenskrar
afþreyingar.
Ari segir að engar eignir séu til
staðar í félaginu og að ákvörðun-
in hafi ekki áhrif á rekstur Senu,
Saga Film og 365 miðla. Þessi félög
voru seld út úr Íslenskri afþrey-
ingu í vetur.
Hei ldarkröfur á hendur
Íslenskri afþreyingu nema um
fimm milljörðum króna. Stærsta
krafan er skuldabréfaflokkur upp
á rúmlega 2,5 milljarða króna sem
Íslensk afþreying og Teymi voru
ábyrg fyrir. Aðrir kröfuhafar eru
Landsbankinn og 365 miðlar.
Ari segir að ástæður þess að ekki
fékkst meira upp í kröfur vera að
mun minna hafi fengist fyrir eign-
ir félagsins en gert var ráð fyrir í
nóvember. Sem dæmi nefnir Ari að
einungis hafi fengist 500 milljónir
fyrir Senu en félagið hafi verið
keypt á 3,6 milljarða árið 2006.
Einnig hafi lítið fengist fyrir EFG
sem rekur meðal annars Saga Film
og önnur sambærileg fyrirtæki á
Norðurlöndunum. - bþa
Minna fékkst upp í kröfur en vonir stóðu til að sögn stjórnarformannsins:
Íslensk afþreying gjaldþrota
STJÓRNARFORMAÐURINN Ari Edwald,
stjórnarformaður Íslenskrar afþreyingar,
segir að minna hafi fengist upp í kröfur
en vonir stóðu til.
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðherra
boðar 30 til 40 prósenta hækkun
á áfengis- og tóbaksgjaldi á næstu
mánuðum í nýrri skýrslu um jöfn-
uð í ríkisfjármálum sem gerð var
opinber í gær. Áætlað er að slík-
ar hækkanir gætu skilað ríkinu
fjórum milljörðum í auknar tekj-
ur. Hægt væri að hækka gjöldin í
áföngum út næsta ár.
Skýrslan var lögð fyrir Alþingi í
gær en ekki rædd. Í henni er farið
yfir nauðsynlegar aðgerðir til að
brúa fjárlagagatið - en þær skipt-
ast í tekjuöflunarleiðir, aðallega
skattahækkanir, og leiðir til niður -
skurðar.
Viðurkennt er í skýrslunni að
„jafnvel þótt leitast verði við að
hlífa félagslega og samfélagslega
viðkvæmum sviðum og vinnu-
aflsfrekri starfsemi [náist] ekki
mikill árangur án þess að stig
félags legrar þjónustu svo sem í
tryggingamálum og heilbrigðis-
málum lækki umtalsvert, dreg-
ið verði úr menntunarframboði
og starfsfólki á vegum ríkisins
fækki.“
Meðal skattahækkana sem boð-
aðar eru í skýrslunni eru skattur
á komufarþega og hótelsgistingu,
sem kynnu að afla ríkissjóði um
700 milljóna á ári, frekari hækkun
á bensín- og olíugjaldi og sérstakt
kolefnisgjald sem lagt yrði á alla
vöru og hráefnisnotkun sem veldur
kolefnislosun, meðal annars álver.
Kolefnisgjald er talið geta skilað
allt að 7,5 milljörðum í ríkiskass-
ann árlega. Tekið er fram í skýrsl-
unni að slíkt gjald kynni hins
vegar hugsanlega að hafa áhrif á
þá sem hug hafa á að reka álverk-
smiðjur hér á landi.
Einnig er tæpt á því að æskilegt
gæti verið að hækka tekjuskatt frá
og með næstu áramótum, en slík
hækkun gæti aflað ríkinu 30 til
40 milljarða á ári. Þá er það nefnt
sem möguleg leið að hækka lægra
skattþrep virðisaukaskatts úr sjö
prósentum í tólf, sem myndi auka
tekjur ríkissjóðs um sjö milljarða,
eða jafnvel í fjórtán prósent, sem
myndi skila tíu milljörðum í aukn-
ar tekjur.
Enn fremur er tekið fram að til
álita komi að huga að breyting-
um á sköttum eins og eignaskatti
og erfðafjárskatti. Í tilviki eigna-
skatta yrði eingöngu um að ræða
skatt á mjög mikla eign, það er
eins konar stóreignaskatt á tekju-
gefandi eignir.
Eignaskattur var afnuminn árið
2006 og hafa hugmyndir um endur-
upptöku hans til þessa vakið hörð
viðbrögð samtaka eldri borgara,
sem telja slíkan skatt helst bitna á
eldra fólki. „Rétt er að taka fram
að engar mótaðar hugmyndir
liggja fyrir um breytingar á þess-
um tveimur skattstofnum,“ segir í
skýrslunni. stigur@frettabladid.is
Boða stóreignaskatt
og hækkun á áfengi
Óhjákvæmilegt er að niðurskurður leiði til skertrar félags- og heilbrigðisþjónustu
og minna námsframboðs, segir í nýrri skýrslu um jöfnuð í ríkisfjármálum. Frek-
ari hækkanir á áfengis- og tóbaksgjaldi eru boðaðar og rætt um stóreignaskatt.
DÓMSMÁL Tæplega fimmtugur
karlmaður hefur verið dæmdur í
þrjátíu daga skilorðsbundið fang-
elsi fyrir fjárdrátt. Jafnframt til
að greiða Innheimtustofnun sveit-
arfélaga hálfa milljón króna.
Sá dæmdi hélt tæplega 350
þúsund krónum eftir af launum
starfsmanns fyrirtækis, þar sem
hann starfaði sem framkvæmda-
stjóri og stjórnarformaður. Pen-
ingana, sem ganga áttu upp í
meðlagsskuldir starfsmannsins,
notaði hann í rekstur fyrirtæk-
isins.
Fjárdráttur framkvæmdastjór-
ans stóð yfir mánaðarlega frá jan-
úar og fram í ágúst árið 2007. - jss
Maður dæmdur fyrir fjárdrátt:
Stal meðlagi og
notaði í rekstur
DÝRT AÐ DREKKA Áfengi og tóbak gæti
hækkað verulega í verði á næstu misserum
ef áform ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
H
Ö
R
Ð
U
R
GENGIÐ 26.06.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
217,6938
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,88 127,48
209,25 210,27
178,68 179,68
23,992 24,132
19,726 19,842
16,234 16,330
1,3270 1,3348
196,68 197,86
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR