Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 8
8 27. júní 2009 LAUGARDAGUR
Opni háskólinn býður upp á hagnýtt 36 ECTS eininga DIPLÓMANÁM Í
MANNAUÐSSTJÓRNUN, nám samhliða vinnu.
Markmið námsins er að nemendur fái hagnýta þekkingu á mannauðsstjórnun og
tilgangi hennar og nægilega þekkingu og hæfni til að geta nýtt sér námið í starfi á
markvissan og árangursríkan hátt.
NÁMIÐ ER SAMANSETT AF EFTIRTÖLDUM NÁMSKEIÐUM:
Mannauðsstjórnun
Vinnuréttur
Hagnýt vinnusálfræði
Fræðsla, þjálfun og starfsþróun
Stjórnun og forysta
Lokaverkefni
KENNSLUFYRIRKOMULAG:
Námið hefst haustið 2009 og því lýkur vorið 2010.
Nám samhliða starfi – kennt er tvisvar í viku.
Námið fer einnig fram á Akureyri í samstarfi við SÍMEY.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Opið fyrir umsóknir á www.opnihaskolinn.is
DIPLÓMANÁM Í MANNAUÐSSTJÓRNUN
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Ösp Ragnarsdóttir verkefnastjóri
599 6386 / tinnao@ru.is
1 Hvaða heimsfrægi poppari
lést á fimmtudag?
2 Hvað er Holtsvöllur í Kópa-
vogi gamall um þessar mundir?
3 Hvað heitir formaður rann-
sóknarnefndar Alþingis um
bankahrunið?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu handtók á fimmtu-
dag mann sem sterklega er grun-
aður um að tengjast alvarlegu
líkamsárásarmáli. Bróðir þess
handtekna hafði áður verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
29. júní vegna málsins.
Árásin átti sér stað í Smá-
íbúðahverfinu 21 júní síðastlið-
inn. Lögregla var kvödd til og
reyndist þar vera maður, alblóð-
ugur á höfði.
Hann var fluttur á spítala til
aðhlynningar, brotinn í andliti
með marga langa og gapandi
skurði á höfðinu. Auk þess var
hann með ýmiss konar áverka á
höfði, brjóstkassa og útlimum.
Í kjölfarið fór lögregla að til-
teknu húsi í Smáíbúðahverf-
inu. Þar inni mátti glögglega sjá
merki um líkamsárás; blóð úti um
allt og blautan þvegil, blóði drif-
inn. Í ruslatunnu við húsið fannst
blautt og blóðugt handklæði.
Við yfirheyrslur kom í ljós að sá
sem nú er í gæsluvarðhaldi hefði
setið með bróður sínum og fórnar-
lambinu að drykkju í húsinu.
Fimm manns voru handteknir
vegna málsins en fjórum sleppt
fljótlega.
Sá sem tekinn var á fimmtudag-
inn var yfirheyrður samdægurs.
- jss
RUSLATUNNA Blautt og blóðugt hand-
klæði fannst í ruslatunnu við húsið þar
sem manninum var misþyrmt.
Einn situr í gæsluvarðhaldi vegna hrottalegrar líkamsárásar:
Bróðir árásarmanns tekinn
ÍTALÍA, AP Leiðtogar G8-ríkjanna
gagnrýna ofbeldið sem hefur
verið viðhaft eftir kosningarnar í
Íran og krefjast þess að því linni.
Þeir hvöttu Írana til þess að virða
grundvallarmannréttindi líkt og
tjáningarfrelsi og lýstu yfir sam-
stöðu með fórnarlömbum. Þá sagði
í yfirlýsingu þeirra að tryggja
verði að vilji írönsku þjóðarinn-
ar verði endurspeglaður og leyst
úr deilum fljótt með lýðræðisleg-
um umræðum og á friðsælan hátt.
Leiðtogar G8-ríkjanna halda nú
árlegan fund sinn í Trieste á Ítalíu.
Í yfirlýsingunni eru stjórnvöld í
Íran ekki gagnrýnd og tekið fram
að sjálfstæði Írans sé virt.
Ástandið í Íran hefur mikið verið
rætt á fundunum, en einnig hefur
áhersla verið lögð á Afganistan og
Pakistan, sem og friðarviðræður
í Mið-Austurlöndum. Uppruna-
lega höfðu Ítalir boðið Írönum að
taka þátt í fundinum sem gestir,
vegna þess að Íranar gætu gegnt
mikilvægu hlutverki við að koma
á stöðugleika í Íran. Það boð var
þó dregið til baka.
Ísraelar voru hvattir til þess að
hætta allri uppbyggingu á land-
tökusvæðum eftir fund Banda-
ríkjanna, Rússlands, Sameinuðu
þjóðanna og Evrópusambandsins
í gær.
G8-ríkin fordæmdu einnig í gær
kjarnorku- og eldflaugatilraunir í
Norður-Kóreu og hvöttu yfirvöld
Norður-Kóreu til þess að snúa
aftur að samingaborðum vegna
kjarnorkumála.
thorunn@frettabladid.is
Hvetja til
friðar í Íran
Leiðtogar G8-ríkjanna fordæmdu kjarnorkutil raunir
Norður-Kóreumanna á árlegum fundi sínum. Hvatt
er til friðsamlegra lausna í Íran sem fyrst.
ÍÞRÓTTIR Um 300 knapar og 450
hestar eru skráðir til leiks á
Íslandsmót barna, unglinga og
ungmenna í hestaíþróttum.
Mótið er haldið á félagssvæði
Harðar í Mosfellsbæ. Það hófst á
fimmtudag með keppni í fjórgangi
barna og stendur til sunnudagsins
28. júní.
Íslandsmótið er stærsti viðburð-
ur í yngri flokkunum í hestaíþrótt-
um á hverju ári. Hestakosturinn er
vart síðri en á mótum fullorðinna
og hart barist í öllum flokkum.
Líf og fjör verður um helgina
og ekki spillir góð veðurspá fyrir
stemningunni. Fyrir þá sem vilja
er boðið upp á tjaldstæði í Mos-
fellsdal sem er um fimm til tíu
mínútna akstur frá keppnissvæði.
Í félagsheimili Harðar verður
veitingasala alla daga Íslandsmóts-
ins. Í kvöld verður svo skemmtun
með lifandi tónlist. - jss
Í BRAUTINNI Einn keppenda á Íslands-
mótinu tekur hest sinn til kostanna í
brautinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Keppni barna, unglinga og ungmenna í hestaíþróttum:
Hart barist á mótinu
Bifhjólaslys á Bolöldu
Karlmaður hlaut lítils háttar meiðsl
í bifhjólaslysi sem var á Bolöldu við
Litlu kaffistofuna rétt fyrir klukkan
sjö í gærkvöldi. Tveir kepptu í mot-
ocross-akstri og virðist annar hafa
runnið til og lent á grjóti, samkvæmt
upplýsingum frá Lögreglunni á
Selfossi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Réttað aftur í morðmáli
Réttað verður á nýjan leik yfir
þremur mönnum sem voru í febrúar
sýknaðir af ákæru um að hafa drep-
ið rússnesku blaðakonuna Önnu
Politkovskaju árið 2006. Hæstiréttur
Rússlands tók ákvörðun um það í
gær.
RÚSSLAND
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært fyrir Héraðsdómi Reykja-
ness karlmann á sextugsaldri
fyrir brot gegn valdstjórninni og
fíkniefnalagabrot.
Lögreglan hafði afskipti af
manninum í desember 2007. Við
leit á honum fundust rúmlega sjö
grömm af kannabisefni. Hann
var færður á lögreglustöð, þar
sem hann hótaði tveimur lög-
reglumönnum ofbeldi; að nauðga
lögreglukonu og drepa lögreglu-
mann.
Ákæruvaldið krefst þess að
maðurinn verði dæmdur til refs-
ingar og greiðslu alls sakarkostn-
aðar. - jss
Karlmaður á sextugsaldri:
Hótaði lífláti
og nauðgun
EFNAHAGSMÁL Robert Mugabe, for-
seti Simbabve, sagði í gær að það
kæmi til greina að gera Simbabve-
dalinn aftur að eina gjaldmiðli
þjóðarinnar.
Simbabve-dalurinn hefur verið
gjaldmiðillinn frá árinu 1980 en í
janúar mældist verðbólga í land-
inu 230 milljónir prósenta. Gripið
var til þess ráðs að aflétta banni af
erlendum gjaldmiðlum í kjölfarið.
Við það fóru þegnar landsins
að notast við aðra gjaldmiðla eins
og Bandaríkjadal og suður afrískt
rand, sem leiddi til lækkandi verð-
lags. Mugabe telur þó að þetta hafi
valdið miklum skaða í sveitum
landsins þar sem fólk hafi ekki
aðgang að fjármagni.
- vsp
Robert Mugabe vill fá Simbabve-dalinn aftur:
Vill gjaldeyrishöft á ný
ROBERT MUGABE Forseti Simbabve segir
afnám gjaldeyrishafta hafa valdið skaða
til sveita, en þeim var aflétt í 230 millj-
óna prósenta verðbólgu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Á G8-FUNDINUM SEM HÓFST Í GÆR Hér að ofan er sérstök nefnd um málefni Mið-
Austurlanda, Tony Blair, Benita Ferrero-Waldner, Sergej Lavrov, Ban Ki-Moon, Javier
Solana, George Mitchell og Jan Kohout á blaðamannafundi í Trieste í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
VEISTU SVARIÐ?