Fréttablaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 26
26 27. júní 2009 LAUGARDAGUR
„Ég set mig alls ekki í neinar sérstakar
stellingar þegar ég er að semja eða
útsetja tónlist fyrir börn. Aðalmálið
er bara að koma þessu til skila, og
að það virki,“ segir Gunnar Þórðar-
son, sem á stóran þátt í tveimur af
barnaplötunum fimm á listanum yfir
hundrað bestu plöturnar. Gunnar
útsetti lögin á Eniga Meniga og spilaði
undir, og samdi svo ásamt fleirum ný
popplög við ljóð úr Vísnabókinni, sem
var til á flestum heimilum landsins
árið 1976. Gunnari til fulltingis á
Einu sinni var, eða Vísnaplötunni eins og hún
er gjarnan nefnd, voru þeir Björgvin
Halldórsson söngvari og Tómas
Tómasson bassaleikari.
Í bókinni
Eru ekki
allir í stuði?
- Rokk á
Íslandi á síð-
ustu öld eftir
Dr. Gunna segir
að mörgum hafi
þótt meðferð
popparanna á
hinum sígildu
vísum jaðra við
helgispjöll. Nokkrir
barnaskólakennarar
hafi krafist þess að
Ríkisútvarpið bannaði
spilun á plötunni því
hún ruglaði börnin í
ríminu, en útvarpið hafi
ekki viljað það af þeirri
ástæðu að bannfæring yrði of góð auglýsing fyrir plötuna.
Gunnar dregur heldur úr slíkum lýsingum. „Ég varð
var við einhverja gagnrýni, en ekki mikla. Það var helst af
einhverjum fyndist að ég hefði frekar átt að semja ný lög
við nýja texta, en það var ekkert alvarlegt.“
Platan sló eftirminnilega í gegn hjá almenningi. Alls
seldust 20.000 eintök fyrir jólin 1976, sem voru rosalegar
tölur í þá daga, og lengi vel var platan talin sú söluhæsta
í Íslandssögunni. „En það er ekki svo mikið að marka
sölutölur hér á Íslandi,“ segir Gunnar og hlær.
„Þær eru svolítið eins og í Búlgaríu, lítið að
marka þær. En þetta er ágætis
plata og það var gaman að vinna
að henni.“
Ári síðar, 1977, gaf þríeykið út
aðra vísnaplötu, Út um græna
grundu, sem vakti hvarvetna
viðlíka ánægju og hin fyrri.
„Báðar plöturnar voru ágæt-
ar og það var sérstaklega
gaman að gera þær,“ segir
Gunnar Þórðarson.
B
urtséð frá því hvaða skoðun fólk hefur á niðurstöðum
nýlegrar kosningar um hundrað bestu plötur Íslands sög-
unnar hlýtur tiltölulega mikill fjöldi barnaplatna á list-
anum að vekja athygli. Líkleg skýring er að téðar plötur
hafi á einhvern hátt smogið inn í þjóðarsálina, sem gerir
það að verkum að hlustun á þær einskorðast fráleitt við
yngstu kynslóðina heldur hafa plöturnar mun víðari skírskotun.
Það sem öðru fremur einkennir þessar fimm fínu barnaplötur er að
augljóslega var vandað til verks við gerð þeirra. Þær státa af, í mis-
miklu magni, frumleika, fagmannlegum flutningi og glúrinni texta-
gerð og yfir þeim er illskýranlegur, gleðilegur andi. Mest er þó um
vert að í öllum tilfellum hefur verið lagt af stað með virðingu fyrir
viðfangsefninu að leiðarljósi. Listi yfir bestu plötur Íslandssögunnar
er vel sæmdur að innhalda slík gæðaverk.
Krakkar mínir, krakkar mínir …
Fimm barnaplötur komust á listann yfir hundrað bestu plötur Íslandssögunnar eftir kosningu sem Rás 2, Félag hljómplötu -
framleiðenda og tónlist.is stóðu fyrir nýverið. Kjartan Guðmundsson ræddi við höfunda og flytjendur þessara vinsælu verka.
EINU SINNI VAR - VÍSUR
ÚR VÍSNABÓKINNI
- GUNNAR ÞÓRÐAR-
SON OG BJÖRGVIN
HALLDÓRSSON Kom
út árið 1976. Meðal
vinsælla laga:
Komdu kisa mín/
Þambara vamb-
ara, Ég á lítinn
skrýtinn skugga,
Stóð ég úti í
tunglsljósi.
„Þetta er eina
platan sem ég á
á þessum topp
hundrað-lista, og
það kemur mér
dálítið á óvart.
Ég vil meina að
ég hafi gert að
minnsta kosti
þrjár betri plötur
en Abbababb! En
það þýðir ekkert
að væla yfir því,“
segir Dr. Gunni um barnaplötuna sem
hann gaf út árið 1997.
Að sögn doktorsins fékk hann
hugmyndina að plötunni þegar
hljómsveitin hans Unun freistaði þess
að gera garðinn frægan í útlöndum
um miðjan tíunda áratuginn. „Ég
nennti ekki að bíða endalaust eftir
því að þessir meikdraumar rættust,
svo ég dreif bara í þessu. Þegar ég
bjó í Frakklandi um áratug áður hafði
ég verið að fikta við að semja og
spila barnalög sem ég sendi frænd-
systkinum á Íslandi á spólu. Abba-
babb! var hugsuð sem útvíkkun á því,
en á endanum notaði ég lítið sem
ekkert af þeim lögum.“
Mesta athygli á Abbababb! vakti
án efa lagið um Prumpu-
fólkið. Lagið varð
geysivinsælt, en
fékk þó ekki jafn
góð viðbrögð alls
staðar að sögn
Dr. Gunna. „Ég fór
í gang með mjög
metnaðarfulla mark-
aðssetningu þegar ég
var að gera plötuna.
Ég sendi spólur með
lögum á alla leikskóla
landsins, sem voru
þá um tvö hundruð
talsins, og stílaði bréfin á börnin
á viðkomandi leikskólunum. Ég fékk
ekki eitt einasta svar,“ segir Gunni og
skellir upp úr. „Eftir að Prumpufólkið
varð svona vinsælt heyrði maður af
því að einhverjar leikskólastýrur hefðu
bannað spilun lagsins á sínum leik-
skólum. Þetta þótti of viðkvæmt mál
og stýrurnar vildu ekki æsa krakkana
upp.“
Að mati Dr. Gunna er Eniga Meniga
besta barnaplata allra tíma. „En allar
barnaplöturnar sem komust inn á
listann eru góðar. Flippplatan með
Hrekkjusvínum er frábær og líka Einu
sinni var. Þegar þessar tvær plötur
voru endurútgefnar skrif-
aði ég gagnrýni um þær
og gaf Hrekkjusvínunum
miklu fleiri stjörnur, en
nú hef ég gjörsamlega
endurskoðað hug
minn og myndi gefa
þeim báðum fimm
stjörnur af fimm
mögulegum.“
Gunni segist lítið
velta uppeldis-
gildi barnaplatna
fyrir sér. „En
þessar plötur
á listanum
hafa kannski
óvenjulegt
uppeldisgildi
að því leyti að
þær eru ekki að
segja krökkunum að bursta tennurnar
og líta fjórum sinnum til beggja hliða
áður en þau fara út á gangbraut. Þær
sýna miklu frekar viðleitni til þess að
búa til almennilega þjóðfélagsþegna,
sjálfstæða og framsækna, í staðinn
fyrir einhverja tannburstandi hjörð.
Það felst merkilegri boðskapur í því
en einhverjum stanslausum umvönd-
unartóni,“ segir Dr. Gunni.
Leikskólastýrur bönnuðu prumpið
Sérstaklega gaman að gera plötuna
„Hver kynslóðin
af annarri virðist
kunna vel að
meta Eniga
Meniga. Þegar
börnin mín voru
í menntó var
platan spiluð
í partíum hjá
vinum þeirra
og nú, rúmum
þrjátíu árum eftir
útkomu hennar,
verð ég enn mjög vör við vinsældir
hennar. Platan er greinilega orðin
klassík,“ segir Olga Guðrún Árnadóttir
rithöfundur, sem söng og lék á píanó
á plötunni Eniga Meniga árið 1976.
Annar rithöfundur, Ólafur Haukur
Símonarson, samdi öll lögin á plöt-
unni og einnig alla texta nema einn.
Gunnar Þórðarson sá um útsetningar.
„Óli átti talsvert af lögum í fórum
sínum sem hann vildi koma á plötu
og bað mig um að vera með, þar sem
við þekktumst vel og ég hafði verið
að raula þetta með honum í heima-
húsum,“ segir Olga Guðrún um tilurð
Eniga Meniga. „Ég hafði enga reynslu
á þessu sviði og vissi ekkert út í hvað
ég var að fara þegar ég hélt á fund
Gunnars til London, þar sem platan
var tekin upp, en allt gekk mjög vel
og platan varð strax ofboðslega vin-
sæl. Ég var fengin til að syngja lögin
á sveitaböllum og fleira í þeim dúr,
þannig að þau höfðuðu greinilega til
allra aldurshópa þótt þau væru aðal-
lega ætluð börnum. Það kom okkur
dálítið skemmtilega á óvart.“
Blaðamaður er á því að Eniga
Meniga innihaldi marga pólitíska
texta og þjóðfélagsádeilu. Olga
Guðrún vill ekki taka alveg svo djúpt í
árinni. „Það er kannski ekki svo mikið
um grjótharða pólitík í textunum, en
platan einkennist hins vegar af mjög
frjálslegum húmor með mislúmskum
broddi, hún sneri út úr borgaralegri
hugsun og ögraði viðteknum gildum,
sem var algjört nýmæli í barnatónlist
á þessum tíma. Í því liggur að mínum
dómi hið raunverulega pólitíska gildi
hennar.“
Hún segist hafa heyrt gagnrýn-
israddir vegna plötunnar fyrst eftir
útkomu hennar. „Ýmsum fannst
textarnir ekki nógu hátíðlegir fyrir
börn, þetta væri bara eitthvert bull
og vitleysa, og einhverjir létu meint-
an pólitískan áróður plötunnar fara í
taugarnar á sér. Ég var líka sjálf mjög
umdeild persóna á þessum tíma,
hafði séð um barnaefni í útvarp-
inu sem olli gríðarlegu fjaðrafoki í
þjóðfélaginu af pólitískum ástæðum,
þannig að margir voru á varðbergi
þegar barnaplata tengd mínu nafni
kom út.“
Það kom þó ekki niður á vinsæld-
um plötunnar, sem seldist eins og
heitar lummur. „Platan féll í kramið
og það er gaman að hún skuli hafa
komið fyrir eyru svona margra í
gegnum tíðina,“ segir Olga Guðrún
Árnadóttir.
Ögruðum viðteknum gildum
DR. GUNNI
Á SVIÐ Abbababb!-platan ól af sér barnasöngleik sem settur var upp í Hafnafjarðarleikhúsinu árið 2007. Sýningin naut fádæma
vinsælda, rétt eins og platan áratug fyrr.
OLGA GUÐRÚN
ÁRNADÓTTIR
ENIGA MENIGA - OLGA GUÐRÚN
ÁRNADÓTTIR Kom út árið 1976, Meðal
vinsælla laga: Eniga meniga, Ryksugu-
lagið, Það vantar spýtur.
ABBABABB! -
DR. GUNNI OG VINIR
HANS Kom út árið
1977. Meðal vinsælla
laga: Prumpufólkið,
Systa sjóræningi, Hr.
Rokk og fýlustrák-
urinn.
GUNNAR
ÞÓRÐARSON
HITTARI Björgvin Halldórsson, Tómas Tómasson og Gunnar Þórðarson fagna útkomu
Vísnaplötunnar árið 1976. Platan seldist í yfir 20.000 eintökum fyrir jólin þetta ár.