Fréttablaðið - 27.06.2009, Page 53

Fréttablaðið - 27.06.2009, Page 53
inni&úti ● ● Dýr sem hafa verið veidd, skoptvopn og veiðitengdir mun- ir eru Veiðisafninu á Akureyri. Á Stokkseyri er veiðisafn sem er ein- stakt á landsvísu vegna þess að þar er að finna fjölbreytt úrval uppstopp- aðra veiðidýra, skotvopn og veiðitengda muni. Á safninu er hægt að fræðast um veiðidýr, skotvopn, veiðar og náttúru- vernd. „Hér erum við með fasta sýningu í tveimur sölum og uppistaðan er veidd og uppstoppuð dýr frá Íslandi, Ameríku, Græn- landi og Afríku en það eru til dæmis gíraffar, selir, apar og hreindýr,“ segir Páll Reynisson, veiðimaður í Veiðisafninu á Stokkseyri. „Hér er fullt af skotvopnum líka, íslenskum og erlend- um.“ Páll segir að Afríkudýrin veki mikla eftirtekt. „Ég veiddi dýrin meira og minna öllsömul. Ég hef farið til Afríku nokkrum sinnum þannig að safnið er byggt upp á mínu einkasafni og var opnað 2004 en nýr salur var opn- aður árið 2007. Þetta er stærsta safn landsins af uppstoppuðum dýrum sem opið er almenningi.“ Aðspurður segir Páll safnið vera mjög vinsælt. „Hingað koma, merki- legt nokk, mest Íslendingar, alla vega sem komið er.“ - mmf Fjölbreytt úrval uppstoppaðra dýra er meðal annars að finna á safninu. MYND/VEIÐISAFNIÐ Á AKUREYRI Ljón, apar og gíraffar til sýnis Konung ljónanna má finna á Veiðisafninu. Stórmarkaður á netinu! Grettislaug er fínn áningarstaður fyrir þá sem eiga leið um Skaga- fjörð. Fyrir utan hversu gott er að láta fara vel um sig í lauginni, er gaman að rifja upp frásögnina af henni í Grettisögu. Þar segir af því að Grettir hafi eftir mikinn sund sprett komið þar að landi í leit að eldi og ákveðið að ylja sér ofan í lauginni, sem hafði myndast vegna jarðhita. Eftir það gekk hann í hús skammt frá og fékk, eftir kostuleg samskipti við kvenfólkið á bænum, eld til að flytja út í Drangey þar sem hann viðhafðist. Þess skal getið að laugin hvarf í hafróti árið 1934 og var grafin upp 58 árum síðar og þá endurgerð og -bætt. Bað í Grettislaug ● Tilvalið er að ylja sér í þessari sögufrægu laug í Skagafirði. Almennt er vel látið af lauginni. MYND/ÚR EINKASAFNI LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 11

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.