Fréttablaðið - 27.06.2009, Síða 37

Fréttablaðið - 27.06.2009, Síða 37
 Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 Viltu vera í okkar liði? Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 5. júlí nk. Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis starfa um 10 þúsund einstaklingar í 40 löndum sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði að koma Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja. Lyfjafræðingur og sérfræðingur í framleiðslugildingum Störfin tilheyra gæðatryggingadeild Actavis hf. og fela í sér gerð gildingaráætlana, samantekt og yfirferð á rannsóknar- og framleiðsluskrám og ritun gildingarskýrslna. Gildingar á lyfjaframleiðslu fela í sér að sýnt er fram á að framleiðsluferill leiði á endurtakanlegan hátt til framleiðslu sem stenst allar kröfur sem gerðar eru. Störfin fela í sér umtalsverð samskipti við starfsmenn í ýmsum deildum Actavis. Unnið er í teymi með fimm starfsmönnum. Við leitum annars vegar að einstaklingi með háskólamenntun á sviði raunvísinda og hins vegar lyfjafræðingi. Gerð er krafa um nákvæm og öguð vinnubrögð og góð ensku- og tölvukunnátta er skilyrði. Samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum eru einnig mikilvæg. Starf við lyfjablöndun Í lyfjablöndun hjá Actavis fer fram vigtun, blöndun og frumvinnsla hráefna. Í starfinu felst einnig samsetning á vélum, skýrslugerð og skjalfesting. Við leitum að duglegum og samviskusömum einstaklingum sem geta tileinkað sér nákvæm vinnubrögð. Reynsla eða þekking á vinnu í framleiðslu er kostur, sem og hæfni til að tileinka sér starfsemi vélbúnaðar. Grunnþekking í ensku er æskileg. Í lyfjablöndun er um að ræða vaktavinnu. Unnið er á þrískiptum vöktum, viku í senn á dag- og kvöldvöktum og sjöttu hverja viku á næturvakt. Starf við lyfjapökkun Um er að ræða almenn störf við lyfjapökkun sem fela í sér vélakeyrslu í kartona- og þynnupökkun, uppgjör eftir vinnslu og skjalfestingu. Einnig tæknilega umsjón/aðstoð við uppsetningu auk breytinga og stillinga á pökkunarlínum. Við leitum að nákvæmum og samviskusömum einstaklingum með góða almenna menntun og einnig einstaklingum með iðnmenntun og/eða reynslu af vinnu við vélar. Grunnþekking í ensku er æskileg. Í lyfjapökkun er unnin vaktavinna. Unnið er á þrískiptum vöktum, viku í senn á hverri vakt fimm daga vikunnar en fjóra þegar um er að ræða næturvaktir. Markaðsfulltrúi lausasölulyfja hjá Actavis Group Markaðssvið Actavis Group leitar að markaðsfulltrúa lausasölulyfja. Markaðsfulltrúi fyrir lausasölulyf er meðlimur í teymi sem ber ábyrgð á markaðssetningu vara frá Actavis á Íslandi. Markaðsfulltrúi ber ábyrgð á kynningum og samskiptum Actavis við starfsfólk apóteka og almenning er varðar lausasölulyf, húð - og heilsuvörur í samvinnu við verkefnastjóra teymisins. Starfið felur í sér að taka þátt í uppbyggingu á ímynd fyrirtækisins gagnvart þessum aðilum ásamt því að sinna öðrum verkefnum tengdum markaðsstarfi fyrirtækisins. Gerð er krafa um þekkingu á sölu- og markaðsmálum. Reynsla af smásölumarkaði lyfja er kostur sem og reynsla af verkefnastjórnun. Við leitum að lyfjatækni eða einstaklingi með sambærilega menntun. Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt almennri tölvukunnáttu er skilyrði. Nánari upplýsingar veitir Hildur Arnars Ólafsdóttir, holafsdottir@actavis.com. Actavis Group Dalshrauni 1 220 Hafnarfirði t 535 2300 f 535 2301 @ actavis@actavis.com w www.actavis.com Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.