Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 15. ágúst 2009 23
Jóhanna: „Þessi skoðun mín felur
auðvitað margt í sér, þannig að ég
er hér um bil búin að nefna öll þrjú
atriðin með henni. Annars hugsa ég
að þú sért líka nokkuð vandfýsinn
á hverja þú hefur í kringum þig. Þú
vilt ekki láta fólk gleypa þig. En ég
veit ekki hvort þú látir endilega á
því bera.“
Hugleikur: „Ég er dálítið meðvirk-
ur. Ég þoli ekki leiðinlegt fólk. En
ég vil samt ekki vera leiðinlegur
við leiðinlegt fólk.“
Jóhanna: „Annars velti ég því fyrir
mér, þegar ég gluggaði í bækurnar
þínar, hvernig í ósköpunum svona
ungur maður eins og þú virðist átta
sig á öllu mögulegu. Þessar hug-
myndir eru svo fullorðinslegar.
Mér sýnist þú hugsa margt sem ég
hefði haldið að þú værir of ungur
til að gera.“
Hugleikur: „Já, takk fyrir það. Ég
tek þessu sem hrósi.“
Í miðju alheimsins
Eruð þið eitthvað að hugsa um
að flýja land, eins og svo margir
Íslendingar?
Jóhanna: „Nei, því skyldi ég gera
það? En mér finnst hins vegar
alveg nauðsynlegt að ferðast og
geri mikið af því.”
Hugleikur: „Nei, þvert á móti.
Stuttu eftir hrun var eins og maður
byggi í miðju alheimsins. Maður
vill auðvitað bara vera þar. Ég fór
reyndar út á hápunkti búsáhalda-
byltingarinnar og missti af henni.
En kannski fæ ég bara að sjá hana
éta börnin sín í staðinn.“
Jóhanna: „Mér fannst búsáhalda-
byltingin að sumu leyti verulega
merkilegt fyrirbrigði. Og mér
fannst merkilegt að sjá hvernig fólk
brást við þessu öllu saman, af því
við höfum alltaf verið svo þæg.“
Hugleikur: „Já, ég tel mér trú um
að ég hafi einhvern ákveðinn vink-
il á þetta eftir að hafa séð þetta
úr fjarlægð. Oft sé ég samt ekki
hvernig hlutir virka á mig fyrr en
eftir á. Ég gerði til dæmis bók um
eineygða köttinn Kisa sem kom út
í desember, rétt eftir að kreppan
skall á. Framhaldið kemur út núna
á næstu dögum sem tekur á því sem
gerðist seinna.“
Jóhanna: „Ég fæ mér hana, mér
finnst eineygði kötturinn guðdóm-
legur.“
„Í nýju bókinni skrifa ég um
kreppuna eins og maður sem veit
ekkert um hana. Enda veit ég ekk-
ert um hana því ég skil ekki frétt-
ir. Ég fæ þessar upplýsingar, skil
þær ekki en melti þær og úr verð-
ur Kisi.“
Jóhanna: „Það er mjög gott að
leysa þær þannig. Þú ert heppinn
að hafa Kisa. Ég viðurkenni fús-
lega að mér finnst voðalega erfitt
að skilja fréttir. En fréttir eru líka
svo óskaplega illa skrifaðar, allir
þessir frasar og stofnanamál sem
er borið í okkur. Stundum er það
svo leiðinlegt að það er næstum því
fyndið.“
Hugleikur: „Mér finnst þetta svo-
lítið eins og kvikmyndin Pirates of
the Caribbean 3. Ég sá númer eitt
og náði henni alveg. Númer tvö náði
ég ekki alveg. En sú þriðja var alveg
óskiljanleg með allt of mörgum
persónum. Endaði svo með hring-
iðu í sjónum sem mörg skip voru
að sogast ofan í og sjóræningjar að
skylmast á öllum skipunum. Svona
finnst mér kreppan vera.“
Jóhanna: „Þetta er svolítið góð
lýsing á ástandinu. En skýrir
hins vegar ekki af hverju þetta
fór svona. Hvað varð til þess að
skipin eru að sökkva og allir eru
að skylmast?“
Hugleikur: „Þetta er bara allt svo
illa skrifað.“
Jóhanna: „Já, alveg óskaplega illa
skrifað, alveg ægilega.“
seinni bók Hugleiks um eineygða köttinn Kisa og ástandið er væntanleg
í verslanir á næstu dögum?
Jóhanna hefur skrifað nokkrar skáldsögur, ljóðabækur og ferðabækur?
Margar þeirra fjalla á einn eða annan hátt um Mið-Austurlönd.
Hugleik dreymdi um að búa við Loch Ness-vatn í Skotlandi þegar hann var
yngri? Nú langar til að búa í Japan um hríð enda landið Mekka myndasagna.
Jóhanna bjó í nokkur ár í Sýrlandi, Egyptalandi og Jemen þar sem hún
lagði stund á arabískunám?
Hugleikur og Jóhanna búa bæði í Vesturbæ Reykjavíkur?
Jóhanna unir sér vel í sínu húsi, enda fylgir því gömul kona á peysufötum
sem bakar pönnukökur í gríð og erg?
Hugleikur ætlar að færa sig nær hringiðunni á næstu dögum og flytja á
miðpunkt Reykjavíkur?
VISSIR ÞÚ AÐ ...
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þjálfun, heilsa og
vellíðan. Vinnubók
Félagsfræði 1
Einstaklingar og samfélag
Killing Mr Grif n
3.599
1.290
1.499
NÝ
BÓK
NÝ
BÓK
NÝ
BÓK