Fréttablaðið - 15.08.2009, Page 54

Fréttablaðið - 15.08.2009, Page 54
6 FERÐALÖG HEITAR LAUGAR Stórbrotin náttúra Vestfjarða er ærin ástæða til að heimsækja þetta landsvæði. En líklega er fátt sem slær það út að slaka á og leggjast í heita laug hvort sem er að degi eða nóttu. Anton Brink myndaði heitar laugar fyrir vestan í sumar. Drangsnes Ófáir Strandamenn hafa dregið sig saman í pottunum á Drangsnesi,enda hefur þar löngum verið samkomustaður ungs fólks á öllum aldri. Pottarnir þrír eru fyrir neðan veg nálægt sjónum og eru þeir mjög vel sýnilegir frá þorpinu og veginum. Vatnið í pottunum er salt. Vinsældir pottanna virðast síst hafa minnkað síðustu misseri þó fyrirtaks sundlaug hafi verið byggð í plássinu fyrir stuttu. Pollurinn, Tálknafirði Pollurinn er nokkru utan við kauptúnið Tálknafjörð og uppi í hlíðinni. Pollurinn er þrískiptur en þar eru tveir setpottar og einn nokkru dýpri. Búningshús er á staðnum og er því haldið við af hreppnum. Góð aðsókn er í Pollinn, bæði af Tálknfirðingum og gestum enda er stemningin þar ótrúlega góð og ekkert jafnast á við útsýnið út á Tálkna- fjörðinn í allri sinni dýrð. Fyrstu ryðfríu pottarnir frá Rösle gjörbyltu öllu fyrir 70 árum. Í dag eru pottarnir með Multiply „samloku“-kerfi þannig að þeir eru fljótir að hitna og kólna og dreifa hitanum einnig jafnt um pottinn, alveg upp í topp. Rösle pottarnir henta á allar gerðir eldavéla, rafmagns-, gas- og spansuðuhellur . Algjörar samlokur Sundlaug í Reykjarfirði, Arnarfirði Laugin er rétt við þjóðveginn og í hana rennur allt árið. Hægt er að skipta um föt í litlum kofa sem stendur við laugarbakkann. Rétt fyrir ofan laugina er lítil hlaðin setlaug sem er nokkuð heit, þótt flestir geti baðað sig í henni í stutta stund. Krossholt, Brjánslæk Krossholt er þétt- býliskjarni skammt vestan Brjánslækjar en þar var byggð sundlaug árið 1948. Þar er afbragðs útsýni frá lauginni yfir fagran sjóinn. Krossneslaug við Norðurfjörð. Krossneslaug er í fjörukambinum fyrir opnu úthafinu norðan við Norðurfjörð og talin ein fegursta sundlaug landsins. Hún er vinsæll viðkomustaður hjá ferðamönnum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.