Fréttablaðið - 15.08.2009, Síða 88

Fréttablaðið - 15.08.2009, Síða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er laugardagurinn 15. ág- úst 2009, 227. dagur ársins. 5.19 13.32 21.43 4.53 13.17 21.38 www.tskoli.is Innritun í kvöld- og f jarnám stendur til 26. ágúst Þetta er sumarið sem Íslending-um fannst ekki lengur ákjósan- legt að fara til útlanda og ferðuðust heldur um landið sitt. Um leið varð svo undurhagsælt fyrir útlend- inga að koma hingað að sveitirn- ar fylltust líka af þeim. Þegar sú staðreynd hafði runnið upp fyrir mönnum gátu þeir farið að jagast um hversu gott það væri nú, hvort landið þyldi allan þennan ágang. Líklega þarf lengri tíma til að vita það með vissu en af ferðum mínum í sumar að dæma virðist mér nóg að sjá. Flestir vegir eru með mikl- um ágætum og svo virðist sem sums staðar hafi göng borað sér í gegnum fjöllin þar sem áður buð- ust aðeins þverhníptir fjallvegir. EITT af því sem gleður ferðalanga þó jafnan mest er þegar þeim býðst eitthvað gott að borða. Og ekki þarf það að vera flókið. Flat- brauð með hangikjöti og kjötsúpa geta verið svo miklu geðslegri en pulsurnar og hamborgararnir sem flestar vegasjoppurnar selja. Með tímanum er maður farinn að þekkja hvar hægt er að fá sæmi- legan mat og hann getur vegið þungt þegar áfangastaðurinn er valinn. Til dæmis togar humarinn á veitingahúsinu Við fjöruborð- ið mig til Stokkseyrar nokkrum sinnum á ári. SÍÐAN finnst mér líka nauðsyn- legt að bregða mér helst árlega á litla kaffihúsið í fjörunni á Hellnum þar sem útsýnið og öldugjálfrið er partur af prógramminu. Sunnu- dagskvöld nokkurt í júlí snæddi ég þvílíkan herramannsmat á veitingastaðnum Halastjörnunni í Öxnadal að lengi verður í minn- um hafður. Í forrétt var svartfugl, lamb í aðalrétt og eftirrétturinn var frumlegur en það var undur- góður hundasúruís. Undir kræs- ingunum var tónlist Johns heitins Denver leikin af hljómplötum. Í SÖMU ferð bauðst líka dýrindis fiskisúpa í Víðigerði og því engin nauðsyn lengur á að pulsa sig þar upp nema mann einfaldlega langi. Á Höfn í Hornafirði og í Stykkis- hólmi eru líka afbragðsveitinga- staðir, svo ekki sé minnst á Akur- eyri sem státar af Friðriki V og ekki er svartfuglinn á Bautanum heldur neitt slor. Það er í þágu hvers sveitarfélags að ferðamönn- um sé boðið sé upp á sæmilegar veitingar. Því ættu þau að stuðla að því að þar sé rekinn góður veit- ingastaður þar sem jafnvel er not- ast við hráefni úr sveitinni. Það má nefnilega leggja á sig kulda, kamra og jafnvel köngulær ef von er á góðri máltíð á áfangastað. Leiðin að hjarta ferðamannsins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.