Samvinnan - 01.04.1930, Blaðsíða 108
Pjárstjórn Sovjet-ítússlands
Eftir Alzada Comstock.
Bolsjevíkar hafa nú í tólf ár farið með stjórn á Rúss-
landi. Og svo virðist sem Rússaveldi hafi aukizt styrkur
og fjörtök þess sé nú meiri en áður.
Fyrir áratug síðan var illa spáð fyrir Rússum. Menn
trúðu því ekki, að bolsjevisminn ætti langt líf fyrir hönd-
um. Menn héldu, að úti væri um Rússland, verzlun
Rússa biði óbætanlegt tjón, gullforða þeirra þryti. —
Spárnar hafa ekki rætzt.
Sjálfur Lenin átti meira af hugrekki en vonum, ef
trúa má sögn úr Moskva. Vinur hans á að hafa komið
inn til hans einn morgun, skömmu eftir að bolsjevíkar
höfðu tekið við stjórn. Var Lenin þá óvenju kátur og
sagði við vin sinn: „Sjáðu, líttu í almanakið. Stjórn okkar
er orðin einum degi langlífari en P a r í s a r C o m-
mune*). Því hefði eg ekki trúað“.
Vikur, mánuðir og ár hafa liðið. Verksmiðjur hafa
risið upp umhverfis Moskva, Leningrad og Kharkov. Há-
spennuþræðir liggja yfir sléttum Rússlands og nýjar
jámbrautir tengja saman baðmullarakra Túrkestans og
hveitilönd Síberíu. Rússnesk olía flýtur á heimsmarkað-
inn. Þýzkar, enskar og amerískar vélar flytjast unnvörp-
um til Rússlands og eru starfræktar þar. Bandaríkin,
sem í orði kveðnu eru erki-óvinur Rússlands, hafa -nú meir
en helmingi meiri viðskipti við Rússland heldur en fyrir
stríð.
*) í fransk-þýzka stríðinu 1871 náðu kommunistar París á
sitt vald og réðu þar lögum og lofum stutta hríð. P ý ð.