Samvinnan - 01.04.1969, Side 9

Samvinnan - 01.04.1969, Side 9
„Flutningur yðar er fullt eins mikilvægur og innihald ræð- unnar, þareð fleira fólk hefur eyru sem unnt er að kitla en skilning til að meta.“ Chesterfield lávarður. „Látum oss hafa ástæðu til að hefja mál vort og látum oss ljiika því í tæka tíð. Því að leiðinleg ræða egnir aðeins til reiði.“ Heilagur Ambrósíus. „Lífið hefur kennt mér að trúa ekki góðum ræðum.“ Henrik Ibsen. „Það var bara hér rétt um daginn, að maður nokkur rit- aði mér bréf og spurði hvaða efni ætti að vera í stjórnmála- ræðu. Því svaraði ég af ágætri reynslu minni í þessum efnum, að öll kúnstin við pólitískar ræður sé sú að hafa ekkert efni í þeim. Það er miklu erfiðara en það sýnist.“ Hilaire Belloc. „Talinu er valinn staður miðja vegu milli hugsunar og at- hafnar, enda kemur það einatt í stað hvors tveggja.“ John Andrew Holmes. „Orðfæri stjórnmálamanna — og þetta á að breyttu breyt- anda við um alla stjórnmála- flokka, allt frá íhaldsmönnum til stjórnleysingja — er við það miðað að gera lygina senni- l.ega og morðið virðingarvert og að gæða vindinn ásýnd fastra efna.“ George Orwell. „Notkun orða í opinberu lífi í Bandaríkjunum er skringileg; hún er hláleg; hún er fráleit. Fjöldi opinberra embættis- manna okkar yrði skiljanlegri og tvímælalaust skemmtilegri, ef honum yrði gert að mála hugm.vndir sínar á striga.“ Christopher Morley. „Verði kona nokkru sinni stolt af elskhuga sínum, er það þeg- ar hún sér hann heilla áheyr- endur með ræðumennsku.“ Harriet Beecher Stowe. Um lesefni „Lestur er nauðsynlegur, þar- eð hann veitir okkur meira af lífi; ef hann veitti okkur aðeins fleiri bækur, gætum við hæg- lega komizt af án han?.“ John Erskine. „Til eru svo riddaralega sinn- aðar sálir, að þær reyna að gera ferð sína í bókaverzlun að riddaraævintýri. Þær fara ekki inn vegna þess að þær þarfnist einhverrar ákveðinnar bókar, heldur vegna þess að þær grun- ar að þar kunni að leynast bók scin þarfnast þeirra. Christo'pher Morley. „Hversdagslega er aðeins einn klukkutími sólarhringsins ánægjulegri en sá sem eytt er við lestur í rúminu, áður en farið er að sofa, og það er klukkutíminn sem eytt er við lestur í rúminu, áður en farið er á fætur.“ Rose Macaulay. » 9

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.