Samvinnan - 01.04.1969, Blaðsíða 62
sýnist vera .... Draumurinn
er eðlilegur viðburður, og ég
fæ ekki séð nein skynsamleg
rök fyrir því, að við ættum að
ganga út frá að hann sé lodrl-
arabragð til að leiða okkur af-
vega.“
— Carl Gustaf Jung.
„Okkur dreymir, og að morgni
gleymum við að jafnaði
draumum okkar. Ekkert er
eftir skilið. En er það rétt? Er
alls ekkert eftir skilið? Eitt-
hvað er eftir — við sitjum
eftir með þær kenndir sem
draumarnir hafa vakið okkur.
. . . Draumurinn er einungis
leiðin, tækið til að vekja upp
tilfinningarnar. Markmið
draumsins er tilfinningarnar
sem hann skilur eftir.“
-— Alfred Adler.
„Enginn sem fellst á það sjón-
armið, að siðgæzla sé helzta
orsök skrumskælingar í
draumum, mun undrast þá
niðurstöðu draumatúlkunar,
að flestir draumar fullorðins
fólks eru af sálkönnuðum rakt-
ir til ástarlangana.“
— Sigmund Freud.
„Draumar eru einkum ofnir úr
efnum sem verið hafa í huga
dreymandans að deginum.“
— Heródótos.
„Veröld draumanna er raun-
veruleg veröld okkar meðan
við sofum, því þá beinist at-
hygli okkar frá skynheiminum.
Því er öfugt farið í vöku, því
þá beinist athyglin að jafnaði
frá veröld draumanna og hún
verður óraunveruleg. En ásæki
draumur okkur og haldi at-
hygli okkar að deginum til, þá
er honum gjarnt að halda
áfram að dvelja í meðvitund
okkar sem einskonar „undh'-
heimur“ við hliðina á heimi
vökunnar.“
— William James.
„í svefni, þegar hinn skynsami,
gæfi og ríkjandi partur sálar-
innar blundar, reynir hinn
dýrslegi og villti partur, stút-
fullur af mat og víni, að vappa
af stað til að fullnægja eðlis-
hvötum sínum. Ekki er til
Um drauma
„Draumurinn sjálfur er skugg-
inn einn.“
— Shakes-peare.
„Draumarnir eru prófsteinar á
persónuleika okkar.“
— Tlioreau.
„Draumur, sem skilst ekki, er
einsog bréf, sem er ekki opn-
að.“
— Talmud-ritin.
„Draumar eru sextugasti part-
ur af spádómi.“
— Hehreskur málsháttur.
„Hversvegna séraugað hlutina
skýrar í draumum heldur en
ímyndunaraflið í vöku?“
— Leonardo da Vinci.
„I draumum etum við eggja-
mjólk dagsins.“
— Alexander Pope.
„Því það sem maður hefur haft
hugann við að deginum, þá
hluti sér maður í sýnum á
nóttunni.“
— Menander.
„Enginn vafi er á því, að
taugaveiklað fólk felur óþægi-
legar staðreyndir, sennilega í
engu minna mæli en venjulegt
heilbrigt fólk. En það er mikið
vafamál, hvort hægt sé að
beita þessum hugtökum við
jafneðlileg og almenn fyrirbæri
einsog drauma. Ég efast um að
við getum gert ráð fyrir því,
að draumur sé annað en hann
• Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pea with Smoked Ham
• Chicken Noodle
• Cream of Chicken
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• 11 Vegetables
• 4 Seasons
• Spring Vegetable
Bragðið leynir sér ekki
MAGGI súpurnar frá Sviss
eru hreint afbragð
MAGGI súpurnar frá Sviss eru búnar til eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meginlandinu,
og tilreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hinum
átján fáanlegu tegundum.
MAGGI
SÚPUR
FRÁ
SVISS
62