Samvinnan - 01.04.1969, Blaðsíða 71
út til Capri. Flogið aftur til Kaupmannahafnar og dvalið þar síðustu
dagana áður en heim er haldið. Fararstjóri Thor Vilhjálmsson.
KAUPMANNAHÖFN — BÚLGARÍA
16. ágúst og 30. ágúst — 15 dagar, kr. 19.800.—
Flogið til Kaupmannahafnar og þaðan til Búlgaríu. Dvalið á nýju hóteli
á fögrum stað við Svartahafið í eina viku. Tíminn notaður til hvíldar
og stuttra ferða, m. a. til höfuðborgarinnar Sofiu. Flogið til Kaup-
mannahafnar og dvalið þar nokkra daga áður en ferðinni lýkur. Farar-
stjóri: Klemens Jónsson, leikari.
DANMÖRK — ÞÝZKALAND — TÉKKÓSLÓ-
VAKÍA — AUSTURRÍKI — UNGVERJALAND
24. júní — 22 dagar — kr. 24.800.—
Þessi ferð er sérstasð vegna þess að hún gefur fólki kost á að ferðast
mikið um á þremur vikum. Flogið til Kaupmannahafnar. Farið þaðan
landleiðina til Berlínar (Austur- og Vestur-Berlínar). Þaðan til Prag,
höfuðborgar Tékkóslóvakfu, sem marga fýsir að sjá nú, þaðan liggur
leiðin um tékknesku fjallahéruðin til hinnar fornu, glæstu höfuðborgar
Habsborgara, Vínarborgar, borgar gleði og söngs við Dóná. Þaðan er
skroppið til Búdapest og svo haldið norður til Hamborgar og þaðan
til Kaupmannahafnar. Dvalið er 2—5 daga í hverri borg. Tilvalin sum-
arleyfisferð fyrir fólk, sem ferðast vill mikið, og sérlega ódýr ferð.
Fararstjóri: séra Frank M. Halldórsson.
NORÐURLANDAFERÐIR
NOREGUR — DANMÖRK — SVÍÞJÓÐ
5. júlí — 19. júlí og 16. ágúst. 15 dagar kr. 21.800,00.
Flogið til Kaupmannahafnar og dvalið þar um sinn, áður en siglt er
með glæsilegu nýju stórskipi til Osló. Þar er farið I nokkurra daga bíl-
ferðalag um hinar undurfögru norsku fjalla- og fjarðabyggðir. Komið
m. a. til Rjúkan, Þelamörk. Ekið með og siglt á Harðangursfirði. Dvalið
í Osló, áður en aftur er siglt til Kaupmannahafnar og dvalið þar síð-
ustu daga ferðarinnar. Farið í eins og tveggja daga ferðir yfir til Sví-
þjóðar og til Hamborgar. Tilhögun annars frjáls í Danmörku en sitt-
hvað á dagskrá. Fararstjóri: Jón Helgason.
ÆSKULÝÐSFERÐIR SÉRA ÓLAFS
SKÚLASONAR
Eins og undanfarin ár verða farnar sérstakar æskulýðsferðir til Norður-
landa, Þýzkalands og Spánar. Séra Ólafur Skúlason skipuleggur þess-
ar ferðir og fararstjórarnir eru auk hans kennimenn, sem kunnir eru
að miklu og góðu starfi fyrir æskufólkið innan Þjóðkirkjunnar. Nánari
upplýsingar um þessar ferðir sem eru ódýrar fást á skrifstofu SUNNU.
Fer mjög í vöxt að gefa fermingarbörnum slika ferð í staðinn fyrir
umfangsmikla fermingarveizlu.
NOREGS- OG DANMERKURFERÐ
5. júlí — 15 dagar, kr. 14.800.—
Dvalið er á kirkjulegu æskulýðsheimili við Oslófjörð, örskammt frá
Osló, og síðan nokkra daga f Kaupmannahöfn. Ferðin tekur tvær vikur.
Fararstjóri verður séra Sigurður Haukur GuSjónsson.
MALORCA — LONDON
9. júlí — 17 dagar, kr. 14.800.—
Dvalið verður í tvær vikur á hóteli við ströndina í Can Pastilla, en á
þeim stað er einmitt mikið um hliðstæða æskulýðshópa frá hinum
Norðurlöndunum, þar sem þjónandi prestar eru gjarnan fararstjórar,
enda eru margir foreldrar sem óska eftir því að unglingarnir fari einmitt
í sínar fyrstu skemmtiferðir til útlanda undir stjórn og leiðsögn góðra
fararstjóra, sem þekkja hjarta og hug æskufólksins og vita hvað æsk-
unni er fyrir beztu varðandi skemmtanir og holla leiki. Bað og svalir
eru með öllum herbergjum. Fararstjóri er séra Ólafur Skúlason.
DANMÖRK OG ÞÝZKALAND
30. ágúst — 15 dagar — VerS kr. 14.800.—
Flogið til Kaupmannahafnar og farið þaðan með járnbrautarlest til
Þýzkalands með viðkomu á Fjóni og Jótlandi. Dvalið í æskulýðsbúðum
í Þýzkalandi, sem eru í tengslum við æskulýðsstarf þýzku kirkjunnar.
Síðustu daga ferðarinnar dvalið í Kaupmannahöfn. Tíminn notaður til
skemmti- og skoðunarferða um borgina og nágrenni, heimsóttur dýra-
garðurinn, Tivoli, söguslóðir íslendinga, fornar og nýjar, í Borginni við
sundið. Fararstjóri er séra Björn Jónsson.
LONDON — AMSTERDAM —
KAUPMANNAHÖFN.
Brottfarardagar: 6. júlí, 20. júlí, 3. ágúst, 17. ágúst, 31. ágúst, 7. sept-
ember og 14. september. 12 dagar. — Verð kr. 20.800.—
Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur
vinsælum stórborgum Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. Milijóna-
borgin London, tilkomumikil og sögufræg höfuðborg heimsveldis, með
sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heillandi og fögur
með fljót sfn og skurði, blómum skrýdd og létt ískapi. Og svo „Borgin
við sundið“, Kaupmannahöfn, þar sem (slendingar una sér betur en
viðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tivoli og ótal aðra
skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta
og ódýra ferð hefir átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári.
í fyrra voru farnar sex slíkar ferðir og komust færri með en vildu. Far-
arstjórar: Klemens Jónsson, Jón Sigurbjörnsson og Gunnar Eyjólfsson.
PARÍS — RÍNARLÖND — SVISS
Brottför 24. ágúst. 17. daga ferS. — VerS kr. 26.800.—
Þessi vinsæla ferð hefir verið farin svo til óbreytt í níu ár, og jafnan
við miklar vinsældir, enda fólk komið heim með óbrotgjarnar endur-
minningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kynnast nokkrum fegurstu
stöðum Evrópu í rólegri ferð. Flogið er til Luxemborgar og ekið þaðan
til Parísar og dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríkra sumardaga.
Þar er margt sem hugann heillar. Frá París er ekið til Sviss. Leiðin
liggur síðan um fögur héruð, þar sem vötn og háir fjallatindar setja
svip á umhverfið. Ekið til eins fegursta af mörgum fögrum bæjum
Sviss, Luzern, sem varð frægur ferðamannastaður fyrir meira en
hundrað árum. Þar, í þessu fagra umhverfi Alpanna, er dvalið i fáeina
daga. Siglt um vötnin og farið á tannhjólabrautum upp á fjöll til að
SUNNUFERÐIR