Samvinnan - 01.08.1969, Page 60
HEIMIUS&
„ _ H
Bryndis ^ >
Steinþórsdóttir /—h
S SIIIWIHH
Ávaxta- og grænmetisdrykkir.
ískaldir drykkir eru svalandi í sumarhitanum, einnig hressandi og
nærandi á hvaða árstíma sem er.
Saftpressur fylgja oft hrærivélum eða eru sérstök vél, sem pressar
safa úr grænmeti og ávöxtum. Þannig fáum við á fljótlegri hátt
sömu næringar- og bætiefnin og í hráum salötum. Hollast er að
pressa drykkinn beint í glösin og ef vill er gott að kæla hann með
ísmolum.
Margir hafa þá ágætu matvenju að byrja morgunverðinn með græn-
metis- eða ávaxtasafa þó ekki sé' nema jafneinfaldur drykkur og
glas af volgu vatni með einni tsk af hunangi og safa úr hálfri
sítrónu.
Blandaður appelsínudrykkur.
1—2 appelsínur
1 epli
1 meSalstór gulrót
Þvoið gulrótina og ávextina. Flysjið appelsínuna og gulrótina (ef
þörf er). Skerið í meðalstóra bita og pressið.
Agúrkudrykkur.
i/i agúrka
1—2 epli
Þvoið gúrku og epli, skerið í bita og pressið. Bragðbætið með
sítrónusafa ef vill.
Tómatdrykkur.
1 stór tómatur
1 appelsína
14 sítróna
Flysjið appelsínu og sítrónu, þvoið tómata og skerið í bita ásamt
ávöxtunum, pressið.
Sveskjudrykkur.
1 epli
5—10 sveskjur
Leggið sveskjurnar í bleyti og fjarlægið steinana. Þvoið eplið,
skerið í bita og pressið ásamt sveskjunum. Drykkurinn er mjög
góður fyrir meltinguna.
Aprikósudrykkur.
2 appelsínur
10 aprikósur
Leggið aprikósurnar í bleyti yfir nótt og pressið ásamt flysjuðum
sundurskornum appelsínum.
Melónudrykkur.
14—14 melóna
1 sitróna
100 g jarðarber, ribsber eða saft
Flysjið melónuna og fjarlægið kjarnana. Flysjið sítrónuna og skerið
í bita. Pressið ásamt berjunum eða blandið saftinni saman við.
Miólkur- og ísdrykkir
e'-u vinsælir t. d. í barnaafmæli. Þá eru hafðar skeiðar með löngu
skafti eða sogrör í glösunum.
í' ítrónudrykkur.
2 dl súrmjólk
2 msk sitrónusafi
1 tsk sykur
(jarðarber, niðursoðin eða frosin)
Allt þeytt saman.
Bananadrykkur.
1 banani
1 tsk hunang
1 dl appelsinusafi
2 dl mjólk
Flysjið bananann, merjið og bætið hunangi saman við, ásamt appel-
sínusafa og mjólk.
Grapedrykkur.
1 lítið grapealdin
1 msk vanilluís
2 dl mjólk
Pressið ávöxtinn, blandið vanilluís og mjólk saman við.
60