Samvinnan - 01.06.1971, Síða 5
að því .sem birt er, að mér
finnst. Það eru sérstaklega
þessir ungu langskólamenn,
sem skrifa mest af fyrsta hefti
þessa árs, sem þú kallar „Nýja
penna“, sem ég kann ekki að
meta. Þar er mest áherzlan
lögð á að rífa niður það sem
eldri kynslóðin hefir byggt upp,
en lítið um raimhæfar tillögur
til uppbyggingar, en óspart
vitnað til ýmissa þátta í þjóð-
lífi miljónaþjóðanna, sem fátt
eitt er sambærilegt við aðstæð-
ur okkar hér á íslandi, og þó
mjög einhliða. Það á þar við
sem Grímur Thomsen segir
fyrir munn séra Snorra á
Húsafelli: „Til ofanveltu er
ykkar kraftur,/ en ei til þess að
byggja upp aftur.“ Þetta unga
fólk, sem heldur á hinum „nýju
pennum“, er sennilega flest
eftirlætisbörn eins og raunar
meginhlutinn af kynslóð eftir-
stríðsáranna, sem hefir alizt
upp i því andrúmslofti að
heimta mikið af öðrum, en lítið
af sjálfum sér, og hefir reynsl-
an ekki vitnað um það sem
góðan undirbúning undir
manndóms- og starfsárin í
þjóðfélaginu. Annað hefti þessa
árs, „ísland árið 2000“, er frá
mínum bæjardyrum það au-
virðilegasta, sem út hefir kom-
ið, þar sem verið er að gera
tilraun til að spá og sjá langa
framtið í ljósi nútímans, annaö
er ekki hægt ófreskum mönn-
um. Þetta rabb er svo verið að
reyna að færa í gamansaman
;
búning, sem mistekst að mestu
og verður úr endileysa, því
enginn megnar að lesa þau
blöð sögunnar, sem óskrifuð
eru. Ég held að reynslan hafi
hingað til í ýmsum efnum og á
flestum sviðum sannað hin
fleygu og sígildu orð Jónasar
Hallgrímssonar: „Mönnunum
VELTIR HF
Volvo
'71
ÞAÐ ER KOMIÐ
í TlZKU AÐ FÁ MIKIÐ
FYRIR PENINGANA!
5