Samvinnan - 01.06.1971, Side 13

Samvinnan - 01.06.1971, Side 13
Guðmundur Ingi Kristjánsson Rósa Björk Þorbjarnardóttir Þorsteinn Helgason Skjöldur Eiríksson Sigurður Ó. Pálsson Kristmundur Hannesson Helga Kristjánsdóttir Hjörleifur Guttormsson Vilhjálmur Einarsson Heimavistarbamaskólinn á FinnbogastöSum í Trékyllisvík, Strandasýslu. yngstu börnin í sveitunum íái á réttum tíma þá lestrar- kennslu, sem nauðsynleg er. Sumir nefna sumarskóla í þessu sambandi, þar sem vetr- arsamgöngur eru erfiðastar. Hér má ekki horfa í aukakostn- að, og greiðslurnar verða að koma beint úr ríkissjóði. Sveitaskólarnir hafa til þessa flestir verið 7 mánaða skólar, sumir 6 mánaða og yfirleitt með skiptikennslu. Það, sem nú er kallað kennslumagn, hefur því verið miklu minna í þess- um skólum en í kaupstaðaskól- um. Hins vegar eru sveitabörn- in yfirleitt vel sett á sumrin að því leyti, að þau eiga völ á heppilegum störfum í nánu sambandi við gróður og dýr. Tvimælalaust er slik starfsemi þroskavænleg. Vafalaust eykur hún námsþroskann, þótt þar sé ekki gott um mælingar, en greinilega eflir hún þann lífs- þroska, sem allir þurfa á að halda. Ég er ekki viss um, að það sé rétt að skerða útilíf þessara barna, en lengja skólagönguna og halda þeim að bókum yfir sauðburð og haustsmalanir með það fyrir augum, að þau geti endilega meðtekið hvern kennsluskammt á sama aldurs- ári og borgarbörnin. Það er vafasamt að reyra allt í eitt kerfi án tillits til aðstæðna. Ástandið á Vestfjörðum í minni sveit, Mosvalla- hreppi, hefur starfað lítill heimavistarskóli í 16 ár, ævin- lega með skiptikennslu. Hann hefur verið „undanþáguskóli", þar sem börnin hafa lokið fullnaðarprófi á því ári, sem þau verða J4 ára. í þessi 16 ár hefur 61 barn tekið fullnaðar- próf, þar af 11 á því ári, sem þau urðu 13 ára, en það eru 18% barnanna. Þessi 18% hafa því getað haldið áfram ungl- inganámi samhliða jafnöldrum sínum í þéttbýlinu, og þau hafa ekki þurft að tefjast í sínu framhaldsnámi. Þess má geta, að fleiri börn hefðu getað náð fullnaðarprófi 13 ára, en þess hefur ekki verið óskað, að þau héldu þá þegar áfram í ungl- inganám. Það var fremur kos- ið, að þau fengju einn vetur enn lítið kennslumagn í tengsl- um við heimili sitt, heldur en að sækja mikið kennslumagn í fjarlægan skóla með fjórföld- um tilkostnaði. Flest börn, sem hér ljúka prófi, hefja síðan unglinganám, venjulega í hér- aðsskólum. Flestar sveitir, sem þess eiga nokkurn kost, reyna að láta unglinga ljúka skyldunámi í heimahögum. Sumir notast þar við skiptikennslu, þótt erfitt sé á unglingastigi. í Barðastrand- arhreppi er heimanakstur. Þar er börnum kennt annan dag- inn, en unglingunum hinn. í Rauðasandshreppi er heima- vistarskóli. Þar eru ungling- arnir hálfan mánuð í skóla og hálfan mánuð heima. í báðum þessum sveitum eru nemendur svo fáir, að ekki verður haldið uppi kennslu með eðlilegri deildaskiptingu. Sömu sögu er reyndar að segja úr flestum þorpum á Vestfjörðum. Eigi að fylgja þeim ákvæðum, að með- alfjöldi nemenda í unglinga- deild verði ekki minni en 15, geta ekki orðið fleiri en 3 heimangönguskólar með slíkum deildum á Vestfjörðum; á ísa- firði og Patreksfirði og í Bol- ungarvík. Einn af forystumönnum í Rauðasandshreppi segir í bréfi til mín: „Unglinganám það, sem hér hefur verið starfrækt s.l. tvo vetur, eða árangur þess, er varla hægt að dæma um eftir svo skamman tíma. Má segja að það sé neyðarráðstöfun, sem er skilgetið afkvæmi þess, að fjárhagsafkoma foreldra unglinganna leyfir ekki að þeir séu sendir á skóla, þar sem þeir njóta óslitinnar kennslu allan veturinn. Hygg ég samt, að meðalnemendur og betri kom- ist af með þetta til þess að ná tilskildri framhaldseinkunn. En lausn er það engan veginn. Að vísu hefur það þann kost, að unglingarnir slitna seinna úr tengslum við heimili sín en ella og þar af leiðandi orðnir þroskaðri, er þeir kynnast ó- líku og misjöfnu umhverfi annars staðar.“ ÁbyrgÖarhluti Þarna eru vandamálin séð í réttu ljósi. Það er ábyrgðar- hluti að taka öll 13 ára börn og setja þau í óslitinn 9 mán- aða skóla utan heimasveitar sinnar. Það getur vel hentað sumum, sérstaklega þeim sem hafa mikinn námsáhuga. Öðr- um getur það valdið verulegu tjóni, sem kennslumagnið get- ur engan veginn bætt upp. Hitt er svo augljóst, að þegar börn og unglingar fara að heiman í skóla, þá verður ríkið að bæta þann mismun, sem er á skólakostnaði þeirra og heim- angöngubarna. Þetta er viður- kennt á þann hátt, að ríkis- sjóður greiðir laun starfs- stúlkna í eldhúsi við heima- vistarskóla fyrir skyldunáms- stigið. Þetta kemur vel út í bamaskólum, en síður í héraðs- skólum, og geta legið til þess ýmsar ástæður. Á fjárlögum hefur nú verið tekin upp fjárveiting til að jafna aðstöðu nemenda í strjál- býli til framhaldsnáms. Enn er þetta að vísu lítið fé og ófull- nægjandi, en það er þó viður- kenning á þörfinni. Þetta fé þarf að stórauka, svo að fullur jöfnuður náist. Við tölum um velferðarþjóðfélag, sem jafni lífskjör og aðstæður með mikl- um fjármunatilfærslum. Þess vegna á engin fjölskylda í strjálbýli að þurfa að bera meiri kostnað vegna skóla- göngu barna en þéttbýlisfjöl- skyldan. Þetta er réttmæt krafa, sem getur haft úrslita- þýðingu fyrir það, að búseta haldist eðlileg í ýmsum sveit- um og sjávarþorpum. Það má engin grunnskólalög setja, án þess að þessi sjálf- sögðu mannréttindi séu að fullu tryggð. Guðmundur Ingi Kristjánsson. 13

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.