Samvinnan - 01.06.1971, Side 47

Samvinnan - 01.06.1971, Side 47
Áshildur: 3 Ijóð Nóttin er eins og nakin kona innan úr frumskógum Afríku sem enginn þorir að nálgast ilmur hennar er sterkur og dans hennar er trylltur og hana þyrstir í blóð hvítra daga Ást mín sem hljóp alsköpuð út úr nóttinni ég óttaðist ætíð að þú mundir ekki þola daginn og verða að steini Græn hvönn sem slútir fram af vatnsbakka og börnin fylla hvíta lófa sína af sáðkornum hennar og fleygja út á vatnið þau vilja fæða vatnið eins og bra-bra og vatnið teygir bláa arma sína á móti þeim því vatnið er gráðugt það vill fá þau sjálf það er það sem vatnið vill Ernir Snorrason: Svartþröstur Inn yfir Faxaflóa flaug lítill svartþröstur og settist á Esjuna. Þar kvaddi hann sér hljóðs og ræddi þetta við steininn: ' Ah, þú úthagaföli klár sem berð vana minn í holdi þér svo að svlður undan aktygjunum. Hvað hvíslaði afi okkar í eyru þér er þú sprattst upp og löngun þín þar þig yfir holtin? Voru þau orð eins vel valin og þegar þú ungur fórst í hestaleit með hveitikringlu eina að nærast á? Drakkstu þá svalt vatnið úr heiðarsprænu og him- inninn tjáði þér að gamalt fólk lýgur alltaf. Og þá urðu þér Ijós orð nornarinnar sem seildist eftir þér á hvítþvegnu þurrkloftinu innan um rúmfötin, hengd upp til þerris. Og í því að hún gretti sig og vildi segja eitthvað vaknaðir þú. Ungt var Ijósið sem flæddi um vitund þér. Æ, morgunn, ég fæ ekki skynjað þig til fulls, því að sál mín er þegar þjökuð af erfðasyndinni. Sagði Svartþröstur við steininn. Hann hóf sig til flugs og hann sveigðist í golunni eins og pappírsfugl úr Austurbæjarskóla. Svartþröstur flaug yfir borgina. Siggi á Barónsstíg var einn til að sjá hann. Og hann veifaði til hans. Æ, Palli var einn í heiminum. Dísa í Undralandi. Svartþröstur sett- ist á Heilsuverndarstöðina og mælti eftirfarandi við vindhana: Ég gekk inn eftir götu [ gamla daga. Kennarinn var bezta skinn. Það er leikur að læra en langt í frímínútur. Snúðarnir og peli af mjólk. Lyktin af konunni sem afgreiddi var góð, svo góð. Ó, lífið sem ekkert skynjar fyrir tvöfaldri þrá í einfeldni. Mosavaxið eirðarleysi mitt skaut rótum i hraunsprungu. Blá var kinn hennar og heift í augum, sagði Svart- þröstur og allt lím var búið. Hann flosnaði upp af þakinu og feyktist til þar til hann hafnaði í skolpræsinu og hvarf niður götuna í vatnssvelg. Þá vaknaði ég í svitabaði. „Djúpir eru íslands álar” Sagt er að tröllkona nokkur hafi eitt sinn ætlað að vaða til ís- lands frá Norvegi. Reyndar hafði hún orð- ið þess áskynja að álar væri á leiðinni út hing- að og er því sagt hún hafi sagt við aðra tröll- konu, grannkonu sína, sem vildi letja hana fararinnar: TBKU. UAR. QUE>E>ERGSS ■-------------------- „Djúpir eru íslands álar en þó munu þeir væðir vera.“ En þó hafi hún sagt að áll einn mjór væri í miðju hafi svo djúpur að þar mundi kollur sinn vökna. Eftir það lagði hún af stað og kom að álnum sem hana óaði helzt við; ætlaði hún þá að ná í skip sem þar var á siglingu og styðjast við það yfir álinn. Var það lík hennar sem rak á Rauðasandi hér eitt sinn, og var það svo stórt að riðandi maður náði ekki með svipunni af hestbaki upp undir hnésbótina kreppta, þar sem hún lá stirðnuð og dauð í fjörunni. 47

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.