Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 18
18 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son Á undanförnum mánuð-um hafa nokkrir aðil- ar séð ástæðu til að draga REI-málið svonefnda aftur fram í dagsljósið. Þetta hefur verið gert í tvenns konar tilgangi: Stjórnmálafræðingur og frétta- menn sáu ástæðu til þess fyrir kosningar að velta fyrir sér hugs- anlegum tengslum milli fjárstyrks FL til Sjálfstæðisflokksins í árs- lok 2006, og fyrirhugaðs samruna Geysis Green Energy og Reykja- vík Energy Invest, haustið 2007. Aðrir spekingar hafa svo verið að rifja upp REI-málið í þeim aug- ljósa tilgangi að viðhalda og skerpa á þeirri fjölmiðlagoðsögn að fyrir- hugaður samruni áður nefndra fyrirtækja, haustið 2007, hafi verið hneyksli, og jafnvel mjög alvarleg mistök. Engan þátt átti þó sam- runi REI og Geysir Green Energy í bankahruninu ári síðar. En ein- hverjir fjölmiðlamenn kusu að reyna að tengja það saman. Í smiðju áróðursmeistara Í stað þess að vinda sér í það að reyna að sanna eða afsanna sam- særiskenningu um mútur, létu fjölmiðlar sér lynda að velta þeim möguleika á milli sín í eina viku eða svo, örfáum dögum fyrir síð- ustu alþingiskosningar. Þetta er eitt af mörgum – og sífellt fleiri – dæmum þess, hvernig sumir íslenskir fjölmiðlar virðast líta m.a. á það sem meginhlutverk sitt að hafa skoðanamyndandi áhrif á almenning – oft með dylgjum og almennum vangaveltum – í stað þess að leggja fyrst og fremst áherslu á að upplýsa og flytja frétt- ir af mikilvægum málefnum. Er þessi innrætingarárátta ef til vill skýringin á þverrandi trausti sem almenningur ber til íslenskra fjöl- miðla eins og fram hefur komið í skoðanakönnunum? Um vangaveltur hinna speking- anna er þess að geta að þar hefur ekkert nýtt verið dregið fram og hvergi bólar á röksemdum. Þvert á móti eru rifjaðar upp gamlar rang- færslur og hamrað á gildishlöðnum hugtökum á borð við REI-hneyksl- ið, í trausti þess að almenningur trúi því á endanum sem hann heyr- ir nógu oft endurtekið. Og þá eru óupptaldar dylgjurnar, almenn- ar vangaveltur í fjölmiðlum sem staðhæfa ekkert, en snúast um það eitt að tengja menn og málefni við neikvæða, gildishlaðna umfjöllun. Þetta heitir rógburður á kjarnyrtu, íslensku máli. Leiðaraspeki Morgunblaðsins Í leiðara Morgunblaðsins þann 30. mars sl. er lýst sérstakri ánægju með orkuútrás Enex og Geysir Green Energy. Með hliðsjón af því hefði leiðarahöfundur mátt hafa í huga að Orkuveitan, Landsvirkjun og Geysir Green Energy, voru á sínum tíma aðaleigendur Enex, og að Geysir Green Energy og nokk- ur önnur fyrirtæki stóðu, ásamt Orkuveitunni, að stofnun sameig- inlegs fyrirtækis sem skyldi hasla sér völl á sviði orkuframkvæmda erlendis. En í sama leiðara víkur höfund- ur að REI-málinu, og þá er talað um „REI hneykslið, þar sem fólk fékk á tilfinninguna að gráðugustu útrásarvíkingarnir væru að reyna að læsa klónum í eigur almenn- ings“. Hér er lifandi komin sú fjöl- miðlaumfjöllun sem ekkert rök- styður og ekkert staðfestir, en hefur þann eina tilgang, að við- halda rangfærslum og fordómum. Eins og fyrri daginn er talað um REI-hneykslið án nokkurs rök- stuðnings. Síðan kemur fullyrð- ing um það hvað „fólk fékk á til- finninguna“ – eins og það komi REI-málinu eitthvað við. Og þegar leiðarahöfundurinn hefur falið sig á bak við „tilfinningar fólks“ er óhætt að draga upp ískyggi- lega, gildishlaðna mynd þar sem „gráðugustu úrrásarvíkingarnir [...] reyna að læsa klónum í eigur almennings“. Hinu pólitíska mark- miði hefur verið náð, að viðhalda rangfærslum og fordómum um REI-málið, án þess að rökstyðja, upp- lýsa eða sanna nokkurn skapaðan hlut. Aðrir REI-spekingar hafa svo verið ögn hug- rakkari og herskárri. Þeir hafa hamrað á fyrirhug- aðri „sölu á hluta eigna Orkuveitu Reykjavík- ur“ og „afsali auðlinda Orkuveitu Reykjavíkur“. Í slíkum málflutn- ingi er alltént eitthvað staðhæft þó staðhæfingarnar séu alrangar og hvergi bóli á minnstu viðleitni til að rökstyðja þær. Mútukenningu hafnað Vegna ummæla Svandísar Svav- arsdóttur, borgarfulltrúa og núver- andi umhverfisráðherra, í aðdrag- anda þingkosninganna apríl sl. um fjárhagsstuðning FL til Sjálf- stæðisflokksins í árslok 2006 og umfjöllunar um hugsanleg tengsl þess styrks við fyrirhugaða sam- einingu REI og Geysis Green Energy í borgarstjóratíð minni í október 2007, tel ég rétt að taka fram eftirfarandi: 1. Ég hef aldrei setið í fjáröfl- unarnefnd Sjálfstæðisflokks- ins og aldrei komið að fjáröfl- un fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Aldrei verið beðinn um það og aldrei sóst eftir því. 2. Ég hafði ekki minnsta hug- boð um þann styrk sem hér um ræðir fyrr en ég heyrði hans getið í fréttum í aprílmánuði sl. 3. Í tilefni af fjölmiðlaumfjöll- um um hugsanleg tengsl milli styrksins og fyrirhugaðrar sameiningar REI og Geys- is Green Energy, rúmum níu mánuðum síðar, fór ég þess á leit í aprílmánuði sl. við Innri endurskoðun Reykjavíkur- borgar, að hún rannsakaði embættisverk mín er lúta að fyrrnefndri og fyrirhugaðri sameiningu, vegna aðdróttana um hugsanleg tengsl mín. Innri endurskoðun taldi ekki ástæðu til að fara yfir málið þar sem ekkert nýtt lægi fyrir í málinu og vísaði í því sambandi m.a. til niðurstöðu stýrihóps borgar- ráðs um REI-málið. 4. Hugmyndir um sameiningu REI og Geysis Green Energy voru ekki viðraðar við mig fyrr en á seinni helmingi árs- ins 2007. 5. Til eru skjalfastar heimildir fyrir því að í júní 2007 beitti ég mér eindregið gegn þeim áformum að Geysir Green Energy tækist að eignast allt að 70% í Hitaveitu Suðurnesja. Þá hafði verið ákveðið af hálfu ríkisstjórnarinnar, að íslensk orkufyrirtæki fengju ekki að bjóða í hlut ríkisins í Hita- veitu Suðurnesja. Geysir Green Energy eignaðist að lokum 30% í fyrirtækinu. Það gerðist ekki vegna minnar viðleitni, heldur þrátt fyrir hana. Öll framangreind atriði lágu ljós fyrir af minni hálfu þá apríl- daga fyrir kosningar sem nokkr- ir af helstu fjölmiðlum landsins töngluðust á mútukenningunni, dag eftir dag, þar sem ég hefði þá átt að fara með eitt hlutverkið. En þrátt fyrir alla þá „umfjöllun“ sá aðeins einn fréttamaður ástæðu til að hafa samband við mig, frétta- maður hjá RÚV. Hann gætti þess auðvitað að hafa ekki eftir mér það sem mestu máli skipti og getið er hér að framan, enda líklegt að það hefði dregið úr tortryggninni. 2. Mannauður myndast Allt frá því að íslenskir verk- fræðingar fóru fyrst að huga að þeim möguleika að nýta jarð- varma til húshitunar, hefur safn- ast saman sífellt verðmætari sér- þekking á þessu sviði hér á landi. Á kreppuárunum á fjórða áratugn- um bjuggu landsmenn við dáðlausa vinstri stjórn sem kenndi sig við „vinnandi stéttir“ en hafði ekki önnur úrræði en innflutnings- höft, skammtanir, ríkiseinokun og ranga gengisskráningu. Á sama tíma nutu Reykvíking- ar hins vegar góðs af samhentri, framtaksamri og framfarasinn- aðri bæjarstjórn sjálfstæðismanna sem réðst í fyrstu stórvirkjun- ina hér á landi, Ljósafossvirkj- un í Sogi, sem opnuð var haustið 1937. Framkvæmdir við virkjun- ina höfðu kallað á fjölda starfa í atvinnuleysinu og rafmagnsverð í Reykjavík varð nú einungis þriðj- ungur af því sem áður hafði verið. Sú staðreynd örvaði mjög atvinnu- lífið í bænum, skipti út kolaelda- vélum fyrir rafmagnsvélar, dró úr kostnaðarsömum kolainnflutn- ingi og útrýmdi á endanum reyk- mengun sem oft var umtalsverð í Reykjavík. Þegar Ljósafossstöðin var komin í gagnið, í miðri kreppunni, sneru bæjaryfirvöld sér strax að fjár- mögnun næstu stórframkvæmda. Borgarstjórinn, Pétur Halldórs- son, leitaði hófanna hjá þekktu, bresku fjármálafyrirtæki um lán til að hefja framkvæmdir við Hita- veitu Reykjavíkur, fyrstu almenn- ingshitaveitu í heiminum. Bretarn- ir báðu um öll verkfræðileg gögn og mælingar vegna þessara furðu- framkvæmda og létu meta íslensku áætlunina hjá virtri, breskri verk- fræði- og ráðgjafarstofu. Nið- urstaðan úr því mati varð sú að framkvæmdin var talin arðbær og lánshæf og lokið var lofsorði á vinnu, mælingar, útreikninga og áætlanir íslensku verkfræðing- anna. Okkar eigin saga er oft býsna lærdómsrík. Allt frá þessum tíma, eða í rúm sjötíu ár, hefur verðmæt sérþekking Hitaveitu Reykjavík- ur og síðar Orkuveitu Reykjavík- ur vaxið jafnt og þétt. Þar munar ekki minnst um kaupin á Nesjavöll- um og þær djúpboranir eftir heitu vatni sem hófust í kjölfarið. Við höfum viljað framfleyta okkar þekkingu Vegna þeirrar sérþekkingar sem Hitaveitan og síðan Orkuveitan hafa búið yfir, hafa þessi fyrir- tæki komið að ýmsum verkefnum á erlendri grund um langt árabil – ýmist að ráðgjöf eða með beinni þátttöku í framkvæmdum. Þessi umsvif hafa gefið af sér mismiklar og því miður oft óverulegar tekj- ur, ef nokkrar. Í flestum tilfellum hafa þau verið áhættufjárfesting og oftast haft kostnað í för með sér. Ekki er rétt að útiloka sóknar- færi á þessum vettvangi en á hinn bóginn er ljóst að möguleikarn- ir eru takamarkaðir. Verðmæta- og atvinnusköpun á þessu sviði á alþjóðlegum vettvangi er samt mikil og spennandi og fer augljós- lega ört vaxandi. Íslensk þekking á sviði vist- vænnar orkunýtingar er því engin nýlunda. Það er heldur engin nýlunda að Hitaveitan og síðan Orkuveitan hafi starfað á erlend- um vettvangi í samvinnu við önnur íslensk fyrirtæki, oft einkafyrir- tæki, svo sem verkfræðistofur, verktakafyrirtæki og ráðgjafar- fyrirtæki. Sú var t.d. tíðin að Hita- veita Reykjavíkur var aðili að fyr- irtækinu Orknir hf. sem var í eigu ýmissa aðila og vann að vistvænni orkunýtingu á erlendri grund um árabil. Orkuveita Reykjavíkur varð síðan einn af stofnendum Enex hf., árið 1997, sem var sameigin- legt útrásarfyrirtæki orkufyrir- tækja, verkfræðistofa og fjár- festa. Sú ráðstöfun vakti á sínum tíma hverfandi athygli fjölmiðla og fráleitt slíkt fjölmiðlafár sem REI- málið tíu árum síðar. Enex sinnti fyrst og fremst verkefnum í Evr- ópu og Kína. Seint á árinu 2006 stofnuðu Glitnir og íslenskir einkaaðilar orkuverktakafyrirtækið Geys- ir Green Energy. Þetta nýja fyr- irtæki hafði uppi stór áform, hóf fljótlega að ásælast hluti í Enex og varð á skömmum tíma stærsti eigandi fyrirtækisins, keypti m.a. 24% hlut Landsvirkjunar í fyrir- tækinu, Þann 25. janúar 2007 samþykkti stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samhljóða á fundi sínum, að fela forstjóra Orkuveitunnar og fram- kvæmdastjóra lögfræðisviðs fyr- irtækisins að vinna tillögur til stefnumótunar, um það hvernig Orkuveita Reykjavíkur kæmi að miðlun íslenskrar þekkingar varð- andi endurnýjanlega orku í fram- tíðinni, bæði hérlendis og erlend- is. Grunnhugmyndin með stofnun REI Þrátt fyrir aðkomu embættis- manna að þessari stefnumótun átti hún sín pólitísku markmið sem rædd höfðu verið í stjórninni. Þau voru einkum eftirfarandi: 1. Að nýta sem best þá miklu og sívaxandi sérfræðiþekkingu á sviði vistvænnar orkunýting- ar sem Orkuveitan býr yfir, og sem síaukin eftirspurn er eftir víða um heim – Orkuveitunni og borgarbúum til hagsbóta. 2. Að gera skýran greinar- mun á og aðskilja Orkuveitu Reykjavíkur sem veitustofn- un í almannaeigu, frá öðrum óhefðbundnari verkefnum, s.s. áhættuverkefnum á erlendri grund. 3. Að firra Orkuveituna ábyrgð og áhættu með því að koma þeim umsvifum og verkefnum sem ekki heyra undir grunn- starfsemi Orkuveitunnar í sér- stakt félag með takmarkaðri ábyrgð. Allir þeir stjórnmálamenn og embættismenn sem að málinu komu töldu að með þessum mark- miðum væri með ábyrgum hætti verið að slá skjaldborg um Orku- veituna sem mikilvæga þjónustu- stofnun í almenningseigu. Þau umsvif á erlendri grund sem fyr- irtækið hafði áður komið að fengju jafnframt eðlilegri starfsskil- yrði á alþjóðlegum markaði, óháð rekstri og eignum tengdum grunn- starfsemi Orkuveitunnar. Enginn borgarfulltrúi sá ástæðu til að and- mæla þessum markmiðum. REI stofnað Á stjórnarfundi Orkuveitunnar 7. mars 2007 var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum (ein hjáseta) að stofna hlutafélagið Reykjavík Energy Invest, til að halda utan um og annast verkefni Orkuveitunnar á erlendri grund. Jafnframt var samþykkt að félagið hefði sérstakan fjárhag og stjórn. Til félagsins var lagt hlutafé Orku- veitunnar í Enex og Enex Kína sem og verkefni sem Orkuveitan stóð að erlendis. Þá var samþykkt að Orkuveitan legði auk þess til hlutafé, allt að tveimur milljörðum króna, er nýta skyldi til þátttöku í verkefnum með öðrum aðilum sem leggja til tækniþekkingu erlendis, og til fjárfestinga í erlendum, vist- vænum orkufyrirtækjum. Með stofnun REI var nú loku fyrir það skotið að Orkuveitan tæki lengur beinan þátt í útrásarverk- efnum sem oft geta verið áhættu- söm. Orkuveitan var þar með firrt þeirri áhættu og ábyrgð sem slík- um verkefnum fylgir og henni ein- göngu ætlað að sinna hefðbundinni grunnþjónustu við almenning. Þá er athyglisvert að í stofnsam- þykktinni frá 7. mars er strax gert ráð fyrir að REI vinni að verkefn- um í samvinnu við önnur fyrirtæki enda var töluverður hluti hluta- fjárins bundinn í öðrum félögum. Þá var sjóður félagsins einn og sér ekki til stórra fjárfestinga. Fyrirhuguð sameining REI og Geys- is Green Energy Eins og fram kom hér að framan voru hugmyndir um sameiningu REI og Geysis Green Energy ekki viðraðar við mig fyrr en komið var fram yfir mitt ár 2007. Forsvars- menn félaganna hittust 20. sept- ember 2007 og ræddu hugsanlega sameiningu. Þeir sem að málinu komu töldu einsýnt að slík sam- eining væri í fullu samræmi við stofnsamþykktir stjórnar Orku- veitunnar frá 7. mars. Ákveð- ið var að halda ferlinu áfram og stjórnarformenn félaganna leiddu viðræður sem lögðu grunn að þeim þáttum er lutu að verðmætamati félaganna og hlutafjáraukningu. Eins og alþjóð veit gekk samein- ingin ekki eftir og stjórn og eig- endafundur Orkuveitunnar ákvað síðan að afturkalla allar ákvarð- anir er lutu að fyrirhugaðri sam- einingu. Nokkrar lífseigar rangfærslur Það er óvinnandi verk að elta ólar við allar þær rangfærslur sem boðið hefur verið upp á í REI-mál- inu. Í „upprifjunum“ þessa máls undanfarna mánuði hefur þó helst borið á fullyrðingum um það að REI væri örugglega orðið gjald- þrota núna með tilheyrandi fjár- hagstjóni fyrir Orkuveituna, enda séu gamli Glitnir og FL Group, sem stóðu að mestu á bak við Geys- ir Green Energy, að mestu horfin af sjónarsviðinu. GGE virðist þó enn lifa þokkalegu lífi í dag eins og fréttir bera með sér. Hluti OR Þegar rykið sest – kjarni REI-málsins VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON ÞINGAÐ UM REI Borgarstjórnarhópur Sjálfstæðisflokksins útskýrir sína hlið á REI-málinu á blaðamannafundi. Hart var deilt um málið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.