Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 22. ágúst 2009
Kysstu gamla tímann bless
Lifðu núna
Dell Inspiron mini
• Netfrelsi frá Vodafone
• Innbyggt 3G netkort
• 5 GB gagnamagn innfalið á mán.
0 kr. út
6.900 kr. á mán. í 24 mán.
Nánari upplýsingar á vodafone.is og í síma 1414
Hópur ungra listamanna sem
kalla sig Pretty Boys Group opnar
nýtt gallerí við Hverfisgötu 34 í
dag.
„Við vorum að leita að húsnæði
til að nýta sem vinnustofu og gall-
erí. Þar sem það er svo mikið af
tómum húsum í miðbænum ákváð-
um við að taka eitt yfir, gera það
upp og færa okkur svo yfir í það
næsta,“ segir Þórsteinn Sigurðs-
son, einn meðlima Pretty Boys
Group. „Þegar við vorum búnir
að gera húsið við Hverfisgötu upp
fengum við heimsókn frá borgar-
yfirvöldum og fengum leyfi til að
vera áfram í húsnæðinu. Þannig að
við erum búnir að vera hér síðan
og erum nú að fara að opna gallerí
sem mun bera nafnið Bosnía.“
Piltarnir eru allir listamenn að
mennt og eru að sögn Þórsteins að
gera ólíka hluti þó flestir tengist
þeir í gegnum götulist sem þeir
stunda.
Hópurinn fær að nýta húsnæð-
ið undir list sína í óákveðinn tíma,
eða þar til ráðist verður í frekari
framkvæmdir á húsinu. „Sýningin
sem opnar hér í dag verður sam-
sýning okkar sem að þessu stönd-
um. Veitingar verða í boði, lifandi
tónlist og dans þannig ég hvet alla
til að mæta,“ segir Þórsteinn.
Opnunin hefst klukkan 17.00.
- sm
Fallegir drengir opna
gallerí á Hverfisgötu
PRETTY BOYS GROUP Listahópurinn opnar gallerí við Hverfisgötu í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kristján Jónsson sigraði í
Bjórreið á Hellu um síðustu
helgi.
„Það eru níu hundruð eftir, það má
alveg brúka það, halda gott partí
eða eitthvað,“ segir Kristján Jóns-
son knapi, en hann sigraði í svo-
kallaðri bjórreið sem haldin var
á Hellu um síðustu helgi í tengsl-
um við Töðugjöld. Í sigurlaun voru
hundrað kassar af Egils Gulli sem
gerir um þúsund bjóra, reyndar
litlar dósir, en engu að síður tölu-
vert magn af bjór. Kristján gaf
strax um hundrað bjóra frá sér,
andstæðingar hans, sem voru sjö
talsins, fengu sinn kassann hver
og svo fékk mótstjórnin einn
kassa. Þannig að allir máttu una
glaðir við sitt í leikslok. Kristján
hélt síðan að sjálfsögðu upp á sig-
urinn með því að fá sér nokkra,
þannig að nú eru eftir níu bretti,
níu hundrað litlar dósir.
Hestur Kristjáns, Bróðir, stóð
svo sannarlega undir nafni líkt og
segir í Njálu: ber er hver að baki
nema sér bróður eigi. „Já, hann
stóð sig með stakri prýði, þetta er
höfðingi og stendur sig vel í öllu,“
segir Kristján, stoltur af gæðingn-
um. Knapinn er reyndar nýbyrjað-
ur í hestum sjálfur eftir smá hlé.
„Ég var í þessu þegar ég var
krakki, en svo fékk maður bílpróf
og fór að sinna öðrum hestöflum.
Maður setti það síðan alltaf fyrir
sig að það væri of dýrt að byrja en
svo komst maður í þá aðstöðu að
geta byrjað og þá varð ekki aftur
snúið.“
Þótt áfengi og hestamennska
hafi löngum verið óaðskiljanlegir
vinir í gegnum tíðina segir Kristj-
án menninguna hafa breyst til hins
betra. „Menn eru nánast alveg
hættir að vera fullir á hestbaki. En
hestamönnum finnst ekkert leiðin-
legt að fá sér í glas, þeir gera þetta
bara núna í sitthvoru lagi.“ - fgg
Vann þúsund
bjórdósir á Hellu
BRÓÐIR OG KRISTJÁN Kristján var að vonum sáttur með sína níu hundruð bjóra sem
ættu að duga honum eitthvað fram eftir ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON