Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 62
MENNING 14 NÝJAR BÆKUR Heitar laugar á Íslandi eftir Jón G. Snæland og Þóru Sigur- björnsdóttur er komin út. Í bókinni er fjallað um hið sérstæða fyrirbæri í náttúru Íslands, heitar laugar, bæði frá ósnortnum náttúrulaugum og manngerðum laugum sem skemmtilegt er að skoða og njóta. Þær eru bæði í byggð og í óbyggðum og á misfjölförnum slóðum. Bókin hentar vel á ferðalögum ef fólk vill bregða sér í heitt bað. Þar sem oft getur reynst erfitt að finna ein- stakar laugar, sérstaklega á hálendinu, fylgja GPS-punktar öllum laugunum sem fjallað er um en þær eru á annað hundrað. Ljósmyndir eru af þeim öllum og fjörlegar leiðar- og náttúrulýsingar gera bókina að ómissandi förunaut á ferðalögum. Loks eru vönduð kort í bókinni til að auðvelda notkun hennar. Skrudda gefur út. Flóttinn frá Reykjavík eftir Hugleik Dagsson er blóðsósa fram- hald sögunnar af eineygða kisanum og ástandinu. Kisi er snúinn aftur, úrræðagóður og morðóður sem aldrei fyrr, en í fjórðu bókinni um eineygðu hetjuna glímir hann enn ásamt félögum sínum við „ástandið“. Við sögu koma meðal ann- ars andsetinn krullhærður píslarvottur, skilningslaus útgefandi og undirheimar Íslenskrar erfðagreiningar sem ef til vill geyma lykilinn að framtíð þessar- ar hrjáðu þjóðar. Hugleikur Dagsson má kallast ókrýndur myndasöguprins íslensku þjóðarinnar. Hann hefur ennfremur séð um útvarpsþætti, gert vídeóverk, sinnt myndlist og skrifað leikrit. JPV forlag gefur út. Í nýrri útgáfu af Ritinu, tímariti Hugvísindastofnunar, er sjónum beint að hugtakinu „tilbrigði“ (e. variation), sem hefur verið mjög á döfinni í hugvísindum síðustu áratugi í kjölfar efasemda um ótvírætt gildi hins „upprunalega“ og ráðandi stöðu hins staðlaða. Í heftinu eru þrjár greinar um tilbrigði í máli eftir íslenska málvísindamenn, Höskuld Þráinsson, sem fjallar um tilbrigði frá sjónarhóli málkunnáttufræði, Sigríði Sigurjóns- dóttur, sem fæst við tilbrigði í máli barna, og Helga Skúla Kjartansson, sem fjallar um nýjungagildi tilbrigða í máli. Einnig er birt grein eftir bandaríska mál- fræðinginn Anthony Kroch í þýðingu Sölku Guðmundsdóttur. Til viðbótar eru greinar um annars konar tilbrigði. Yelena Sesselja Helgadóttir fjallar um tilbrigði í byggingu færeyskra skjaldra sem eru náfrændur íslensku þulunnar. Tvær greinar fjalla um myndasögur eftir Úlfhildi Dagsdóttur og Bergljótu S. Kristjánsdóttur. Ritið er tímarit Hug- vísindastofnunar.Gestaritstjórar þessa heftis eru Ásta Svavarsdóttir og Þórhall- ur Eyþórsson. ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 4 20 40 0 4. 20 08 Þ að verður um tvöleytið í dag sem þær stöllur Helena Hansdóttir og Elín Anna Þórisdóttir arka af stað frá sultu- gerð sinni með hlaðinn barnavagn, Emmaljunga árgerð ‘78, fullan af sultunni Eldmóði. Erindi þeirra í bæinn er að hressa upp á mædda þjóð en sult- una gefa þær í stroku á ost til að hressa mönnum geð. Helena segir uppskriftina vera leyndarmál en þó megi geta þess að sterkur chili- pipar gefi henni bragð. „Hann eykur mönnum kynorku og eykur blóðið líka til heilans,“ segir hún. „Menn verða langtum hressari eftir að hafa fengið sér flís af osti með Eldmóði.“ það er víst ekki hollt að missa hófsemd í skömmtum af Eldmóði. Þó er stutt í að menn fái hugmyndir sem ekki er skynsamlegt að framkvæma. Þær arka af stað upp úr tvö í dag og ef menn vilja ná í þær fljótt og vel er pöntunarsími opinn 842 5642. Þær eru glaðar að fá hring- ingu meðan birgðir endast. Næturhrafnar skulu samt ekki hringja seint þegar þrekið er tekið að dofna. Eldmóður er fyrir alls- gátt fólk. MÁ BJÓÐA ÞÉR Eldmóð á ostinn Mörg eru uppátækin sem munu gleðja mann í dag á göngu. Tvær myndlistar- konur verða á ferðinni með undralyf fyrir mædda þjóð. MYNDLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON Helena og Elín við æfingar á myndlistargerningi sínum í túninu heima. MYND/ELDMÓÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.