Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 28
28 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR Vertu latur Slepptu því að fara í ræktina. Freistastu ekki til að hlaupa upp stigann í stað þess að taka lyftuna. Eyddu ekki helgarfríinu í ærslafull- ar sundferðir með börnunum. Jafnvel hófleg líkamsrækt er nefnilega talin ein öflugasta leiðin til að viðhalda sterku ónæmiskerfi. Nuddaðu andlitið Leggðu hönd undir kinn, boraðu í nefið, nag- aðu neglurnar, veittu þér andlitsnudd eða losaðu um merginn í eyrunum. Ómeðvitað snerta flestir andlitið á sér allt að fimmt- án sinnum á klukkustund. Þannig bera þeir sýkla, veirur og hin ýmsu óhreinindi beint að öndunarfærunum þaðan sem þeir eiga greiða leið inn í líkamann. Stundaðu skyndikynni Er það tilviljun að fréttir berist af heilu hópunum af gleðiríkum unglingum sem fara til sólarlanda og snúa þaðan aftur allir með sömu pestina? Sennilega ekki. Hafir þú það fyrir reglu að stunda ekki skyndikynni er álíka áhrifarík leið að fara í hinn sívin- sæla skemmtistaðasleik, helst marga sama kvöldið. Hafir þú hins vegar óbeit á frönsk- um kossum getur þú líka sótt í fjölmenni. Kringlan á háannatíma, þétt pakkaðir tón- leikar og flugvélar eru dæmi um staði þar sem eflaust er pest að fá. Snertu og fiktaðu Taktu þétt í hurðarhúna, þrýstu á alla hnapp- ana í lyftunni, láttu klinkið leika í lófanum á þér og notaðu tölvuna á bókasafninu í stað þinnar eigin. Ef þú snertir og fiktar í sem flestu sem á vegi þínum verður munu ein- ungis líða nokkrir dagar þangað til flensu- veiran er komin í þig. Það þarf nefnilega lítið annað en að ein manneskja mæti sýkt í vinnuna til að kaffivélin, klósettið og matar- borðið geti sýkt þig. Veiran getur nefnilega lifað á dauðum fleti í nokkra klukkutíma. Ekki þvo þér Handþvottur er það fyrsta sem þú skalt van- rækja, viljir þú ná þér í svínaflensu. Finn- ir þú þig knúinn til að þvo þér gættu þess þá að hafa hendurnar einungis í nokkr- ar sekúndur undir bununni, því þá fara yfirborðsóhreinindin af en örverurnar halda velli. Það tekur nefnilega 15 til 30 sek- úndur að ráða niðurlögum þeirra. Athugaðu að á mörgum almenningssalernum hefur nú verið komið fyrir brúsum með glærum vökva. Það er sótthreinsunarspritt sem drepur allt. Haltu þig fjarri því. Lifðu stressuðu lífi Taugaveiklaðir g e t a ve r i ð berskjaldaðir fyrir flensunni þar sem stress og álag veikir ónæmiskerfið. Þú skalt því vinna baki brotnu og gæta þess að hafa lít- inn tíma til að slaka á yfir daginn. Það er gott að miða við að vera ávallt á Miklubraut eða öðrum umferðarslagæðum klukkan átta að morgni og klukkan fimm síðdegis. Hafðu áhyggjur af ástvinum þínum, hugsaðu um hrunið og áhrif þess á lífsgæði þín til æviloka, veltu þér upp úr glötuðum tækifærum og hafðu samviskubit yfir öllu því illa sem þú hefur gert öðru fólki um ævina. Haltu þér vakandi Leigðu þér nokkrar spólur, til dæmis ómót- stæðilega trílógíu eins og Godfather, og liggðu yfir þeim langt fram á nótt. Vaknaðu síðan snemma til að sinna skyldum þínum. Endurtaktu þetta alla daga vikunnar. Þreyta minnkar mótstöðu ónæmiskerfis- ins og langvarandi svefnleysi er ein vísasta leiðin til að verða lasinn. Slepptu hollustunni Komdu iðulega við á skyndibitastöð- um eftir vinnu og taktu kvöld- matinn þaðan með þér heim. Slepptu því að elda mat frá grunni og reyndu að sniðganga að mestu ávexti og grænmeti. Þannig getur þú verið viss um að þú fáir of lítið af vítamínum og stein- efnum og veikir þannig ónæmiskerf- ið. Varaðu þig sérstaklega á hvítlauk. Hann er stundum kallaður pensilín náttúrunnar. Í honum er mikið af andoxunarefnum og hann er talinn bakteríudrepandi. Það er því óvitlaust að sniðganga hann með öllu, vilji maður ekki byggja upp varnir líkamans. Reyktu og drekktu áfengi Sígarettureykur lamar bifhárin í nefi og öndunarvegi. Flensuveirurnar eiga því greiðari leið inn í líkama þeirra sem reykja að staðaldri. Drykkjufólki er líka hættara við því að fá hinar ýmsu pestir en öðrum. Dragðu úr vatnsdrykkju Vatn hreinsar líkam- ann. Auðvitað þarftu að drekka vökva en reyndu að fá þér frekar gos- drykk eða kaffi- sopa til að væta kverkarnar held- ur en að grípa til vatnsins. Tíu þjóðráð til að krækja sér í svínaflensu Svínaflensa, flensa eða bara kvefpest. Um þær gilda sömu lögmálin: þær berast með dropum og úða þegar sýkt fólk hóstar eða hnerrar og eru sérstaklega illskeyttar á haustin. Að lifa heilsu- samlegu lífi er áhrifaríkasta leiðin til að forðast þær. En sumir vilja ná sér í svínaflensu strax, frekar en að bíða eftir að hún kræki í þá. Ekki skal tekin afstaða til þess hvort það er gáfulegt en þeir viljugu gætu fylgt þessum tíu ráðum sem Hólmfríður Helga Sigurðardóttir tók saman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.