Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 57
9 MENNING
ing á sextíu ára afmæli hússins og
er það í fjórða sinn sem sagan ratar
upp á svið þar í leikbúningi. Hittari
Ólafs Hauks Símonarsonar, Gaura-
gangur, sem vinsæll var í Þjóðleik-
húsinu fyrir áratugum, birtist nú í
Borgarleikhúsinu með nýrri áhöfn.
Loks gefst Akureyringum tæki-
færi til að heyra Rocky Horror sem
komið hefur upp í tvígang í Reykja-
vík í vinsælum sviðsetningum. Þá
má ekki gleyma söngleik Barts, Oli-
ver! sem nú verður fluttur í þriðja
sinn hér á landi.
Hver eru þá nýmælin: í Þjóðleik-
húsinu er verk Brynhildar Guðjóns-
dóttur um Fridu Kahlo með tónlist
Egils Ólafssonar, leikgerð Balt-
asars á Gerplu og nýtt verk eftir
Braga Ólafsson, Hænuungarnir.
Og samstarfsverk Ilmar Stefáns-
dóttur, Kristjáns Ingimarssonar,
Ólafíu Hrannar og Vals Freys
Einarssonar: Af ástum manns og
hrærivélar.
Nyrðra vekur mesta forvitni leik-
gerð Jóns Gunnars Þórðarsonar á
kvikmyndasögu Luke Moodysson,
Lilja4ever, skondin hugmynd um
að taka gamla sakamálasögu sem
síðar varð kvikmynd og gera úr
henni maraþonsýningu fjögurra
leikara sem fara með 139 hlut-
verk.
Borgarleikhúsið er með stærstu
efnisskrána í skjóli þriggja
aðgengilegra leiksviða. Þar er
margt athyglisvert í boði: hjónin
Benedikt Erlingsson og Charlotte
Böving leiða spunavinnu í tveimur
sviðsetningum: Jesú litla og Bláa
gullinu. Nýr höfundur kemur fram,
Heiðar Sumarliðason, með verk í
sviðsetningu Kristínar Eysteins-
dóttur, Rautt brennur fyrir.
Vesturportsmenn skoða söguna
um Faust í nýju verki og þríeykið
Jón Páll, Jón Atli og Hallur Ingólfs-
son, heldur áfram könnun um þjóð-
arsálina í Góðum íslendingum. Þá
snúa Þorleifur Arnarsson og Andri
Snær aftur í Eilífri óhamingju sem
einnig tekur á stöðu okkar.
Oft er verkefnastaða leikhús-
anna greind frá þeim nýju erlendu
verkum sem á boðstólum eru: á
því sviði stendur Borgarleikhúsið
sig betur en Þjóðleikhúsið en liðin
ár hefur leikhúsið í Skuggahverf-
inu eins og Arnar Jónsson kall-
aði flaggskip íslenskrar leiklistar
fyrir margt löngu staðið dyggi-
lega við þá skyldu sína að kynna ný
erlend verk en nú er lát á; við Lista-
braut munum við í vetur sjá verk
eftir David Gieselman hinn þýska
og Enda Walsh hinn írska. Að
ógleymdu vinsældaverkinu Aug-
ust – Osaga Country sem hér verð-
ur sýnt undir nafninu Fjölskyld-
an. Kynningartexti minnir mest
á söguþráðinn úr Blessuðu barna-
láni eftir Kjartan Ragnarsson, en
líkast til er gamanið grárra. Þetta
verðlaunaverk vestan úr Ameríku
er þegar á leið á hvíta tjaldið og
verður forvitnilegt að sjá hvernig
amerískt fjölskylduuppgjör hljóð-
ar á okkar tímum og hvernig það
rímar við okkar eyju.
Leikhússtjórarnir leggja allir
ríka áherslu á samtímalegt gildi
verkefnaskrárinnar, enda ríkt til-
efni til. Krepputímar hafa löngum
verið sagðir ýta undir aðsókn að
leikhúsum: samvera hóps við ávarp
sviðsins sem má þá sjaldnast vera
tómt spaug: fastinn sem sækir leik-
sýningar og byggir þannig grunn-
inn undir rekstur leikhúsanna er
að sækjast eftir öðru bragði líka.
Hin sundraða fjölskylda, grimm
ytri og innri örlög þjóðar; greining
á fáránleika samtíðarinnar virðist
lenda ofarlega á markmiðalista
leikhússtjóranna. Og svo er bara
sjá hvernig tekst til: heildarmark-
aður miðasölu í atvinnuleikhúsum
virðist hafa aukist á þessum ára-
tug og vera kominn nærri hálfri
milljón seldra miða. Á þessu hausti
renna leikhúsin í gruggugt vatn
og verður fróðlegt að sjá hvern-
ig áhorfendur taka við því mikla
framboði sem fram undan er.
Og enginn veit um hinn listræna
árangur enda verður hann aðeins
mældur í huga og hjarta hvers
einstaks manns sem leiksýning-
ar nýtur þótt sumum gangi vel að
smíða hrós sjálfum sér til ágætis
að ókönnuðu máli.
KHÚSGESTINA
Magnús Geir siglir seglum þöndum en
velgengni er mönnum hættulegust.
Tinna er í nauðvörn eftir gott ár í Borgó
en heldur sjó.
Farsæl útgerð Maríu þykir sumum rislág
en hún lítur til allra átta.
Á liðnum árum hefur komið fram nokkur gagnrýni um að stóru
leikhúsin telji samstarfsverkefni inni í áhorfendatölum sínum.
Þau hafa nú um nokkurt skeið sett svip sinn á verkefnaskrár
leikhúsanna: samkvæmt kynningarbæklingi Borgarleikhússins
verða þar á boðstólum átta samvinnuverkefni við sjálfstæða
leikhópa. Þjóðleikhúsið býður upp á þrjú samstarfsverkefni við
sjálfstæða leikhópa. Nyrðra er samstarf um eitt verkefni en frá
fyrra ári var samstarf milla LA og LR um Flóna sem líklega malar
norðanmönnum enn gull …
SAMSTARFSVERKEFNI
Lánsfötum flíkað
Nokkuð hefur verið áberandi í fjölmiðlaumfjöllun að hinn og
þessi leikarinn eða leikstjórinn hafi flutt sig milli leikhúsa eins
og í gangi sé eitthvert stríð milli stóru leikhúsanna um mann-
skap. Þannig þótti það frétt að Hilmir Snær sem verið hefur
lausamaður um langt skeið skyldi fastráða sig í Borgarleikhús
þar sem hann mun leikstýra og taka þátt í nokkrum sýningum.
Eins var með Ingvar E. Sigurðsson sem hefur starfað í báðum
húsunum og að auki verið einn burðarása í sýningarhaldi
Vesturports erlendis auk þess að sinna kvikmyndaleik. Borgar-
leikhúsið hefur bætt við sig fleiri kröftum: Ilmur Kristjánsdóttir
verður í vetur að æfa í Gerplu hjá Baltasar í Þjóðleikhúsinu og
leikur þar meðan hún æfir strax á eftir Gauragang í Borgarleik-
húsi. Jóhannes Haukur sem var einn af ásum Magnúsar Geirs
fyrsta vetur hans í Borgó er nú farinn í Hellisbúann og leggur svo
í Gerplu hjá Balta, eins Björn Thors sem átti að verða burðarás
í karlaliði Magnúsar. Þannig flyst fólk á milli og þeir sem eru
eftirsóttir og með lausa samninga eða fasta og fá sig lausa
tímabundið geta ef vel tekst til verið á fullum launum í tveimur
húsum. Leikhússtjórar eiga á hættu að sýningarkvöld rekist á
og sami maðurinn þurfi að vera í tveimur húsum sama kvöldið.
Þetta er þess bagalegra ef sýningarskeiðið er knappt. Ef Gerpla
gengur von úr viti á Hverfisgötunni er hætt við að Ilmur leiki lítið
í Gauragangi á meðan og Þjóðleikhússtjóri ráði í raun sýningar-
skrá Borgarleikhussins. Það fer eftir því hver réði Ilmi fyrst …
VISTASKIPTI LEIKARA OG LEIKSTJÓRA
Auglýsingabrellur
Fyrsta stóra frumsýning ársins
er í Þjóðleikhúsinu; Frida eftir
Brynhildi Guðjónsdóttur. Lofa
kynningarmyndir frá liðnu vori
sjónarspili um hin grimmilegu
örlög listakonunnar ástsælu.
M
YN
D
/Þ
JÓ
Ð
LE
IK
H
Ú
SI
Ð
/E
D
D
I
Hin sundraða fjölskylda, grimm ytri og innri örlög þjóðar; grein-
ing á fáranleika samtíðarinnar virðist lenda ofarlega á markmiða-
lista leikhússtjóranna.
M
YN
D
/V
ES
TU
RP
O
RT
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.