Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 10
10 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI Þóknun sem lögmanns-
stofan Lögmál innheimti af bruna-
tryggingu hjá Tryggingamiðstöð-
inni (TM) er tæplega sjöfalt hærri
en lög gera ráð
fyrir. Þetta er
mat Lögmanna-
félagsins og
talsmanns neyt-
enda.
Fréttablað-
ið sagði frá því
á þriðjudaginn
að maður sem
skuldaði 1.549
krónur í bruna-
tryggingu hjá TM fékk rukkun
upp á 14.613 krónur, eftir að upp-
hæðin fór í innheimtu. Samkvæmt
nýlegri reglugerð var sett þak á
innheimtuþóknanir. Ef höfuðstóll
er undir 3.000 krónum má þóknun
vera hæst 1.250 krónur.
Ingimar Ingimarsson, fram-
kvæmdastjóri Lögmannafélags-
ins, telur að í máli eins og þessu
sé um milliinnheimtu að ræða
og því hefði einungis mátt rukka
1.250 krónur. Með milliinnheimtu
er átt við það þegar skuldari
hefur fengið innheimtuviðvörun
en löginnheimta ekki hafin. Gerir
hann ráð fyrir að senda lögmönn-
um áréttingu um gildissvið nýju
reglugerðarinnar sem tók gildi 1.
febrúar.
Segir Ingimar þetta í annað
sinn sem Lögmannafélagið hafi
orðið vart við misskilning lög-
manna frá því að reglugerðin tók
gildi.
Elvar Örn Unnsteinsson, einn
eigenda Lögmáls, er ósammála
túlkun Lögmannafélagsins og
talsmanns neytenda. Segir hann
að þegar umbjóðandi hans, í þessu
tilviki TM, hafi varað skuldara
við þrisvar sinnum sé innheimtu-
bréf lögmanns löginnheimta.
Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, segir að löginnheimta
sé aðeins þegar mál sé komið
til sýslumanns eða dómstóla og
hægt sé að grípa til úrræða eins
og fjárnáms.
„Ég vona að svona misskiln-
ingur eins og þessi tíðkist ekki
almennt en ég hafði veður af
því fyrr í vor að einhverjar lög-
mannsstofur kynnu að hafa mis-
skilið þetta,“ segir Gísli Tryggva-
son sem taldi ástæðu til að
leiðrétta þennan misskilning í
kjölfar fréttar Fréttablaðsins á
þriðjudaginn.
Gísli hefur beint því til Lög-
mannafélagsins að minna lög-
menn á gildissvið innheimtulag-
anna. Hægt er að skjóta málum
er varða innheimtukostnað til
úrskurðarnefndar lögmanna.
vidir@frettabladid.is
Þóknun til
lögmanns-
stofu alltof há
Þóknun sem lögmannsstofa innheimti er sjöfalt
hærri en lög leyfa. Lögmenn misskilja lögin segir
Lögmannafélagsið. Talsmaður neytenda vonar að
misskilningurinn sé ekki útbreiddur.
INNHEIMTUBRÉFIÐ Eins og sjá má rukkaði Lögmál 8.302 krónur í innheimtuþóknun.
Samkvæmt reglugerð er þak á svona lágri skuld 1.250 krónur.
GÍSLI TRYGGVASON
ALLAR Í RÖÐ Í Niteroi-dýragarðinum
í Brasilíu er dýrasjúkrahús þar sem
þessar uglur stilltu sér upp í beina röð
nýverið. Nú er vetur í Brasilíu og fleiri
dýr á sjúkrahúsinu en vant er.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AFGANISTAN, AP Bæði Hamid Karz-
ai, núverandi forseti, og Abdullah
Abdullah, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra í stjórn Karzais, sögð-
ust í gær sannfærðir um að hafa
unnið sigur í forsetakosningunum
í Afganistan sem haldnar voru dag-
inn áður.
Fyrstu bráðabirgðaniðurstöður
atkvæðatalningar verða þó ekki
birtar fyrr en á þriðjudag. Taln-
ingu atkvæða í mörgum kjördæm-
um er þó lokið, en atkvæðin voru
send eftir talningu til höfuðborgar-
innar Kabúl.
Stuðningsmenn Abdullahs segj-
ast vera að kanna fullyrðingar
um kosningasvindl víða í héruð-
um Pastúna í suðurhluta landsins,
þar sem búist er við að Karzai nái
góðum árangri, enda er hann sjálf-
ur Pastúni.
Nái hvorki Karzai né Abdullah
einföldum meirihluta atkvæða þá
þarf að efna til annarrar umferð-
ar kosninganna, þar sem kosið
verður á milli þeirra tveggja sem
flest atkvæðin fengu, sem að öllum
líkindum verða þeir Karzai og
Abdullah.
„Ég ráðlegg öllum frambjóðend-
um að sýna þolinmæði og bíða þang-
að til niðurstöður talningar fara í
gegnum rétta aðila og úrslitin verða
tilkynnt,“ sagði Daoud Ali Najafi,
yfirmaður aðalkjörstjórnar. - gb
Bið verður á því að úrslit fáist úr forsetakosningunum í Afganistan:
Tveir segjast vera sigurvegarar
ATKVÆÐIN TALIN Fyrstu niðurstöður úr
talningu atkvæða verða ekki birtar fyrr
en á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Fyrirvarar við Icesave-
samninginn, sem fjárlaganefnd
samþykkti á dögunum, gætu haft
jákvæð áhrif á lánshæfiseinkunn
ríkissjóðs. Þetta er mat lánshæfis
matsfyrirtækisins Moody‘s.
Segir Moody‘s að fyrirvararnir
veiti ákveðið öryggi í fjármálum
landsins þar sem þeir komi í
veg fyrir að skuldin verði mjög
há. Einnig séu ákvæði um end-
ursamninga við Breta og Hol-
lendinga. Þetta tvennt er talið
geta haft góð áhrif á lánshæfis-
einkunnina. Þrátt fyrir þetta
eru nokkur atriði óleyst, að mati
Moody‘s og horfur áfram nei-
kvæðar. - vsp
Lánshæfiseinkunn ríkisins:
Gæti hækkað
vegna fyrirvara
Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið