Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 60
MENNING 12
Þ
að linnir ekki uppákom-
um í dramadeildinni.
Enn stendur yfir leik-
listarstefna grasrótar-
innar − artFart og strax
eftir mánaðamót hefst Alþjóð-
lega leiklistar hátíðin í Reykjavík
− sprottin upp af engu − Lókal.
Hún fer fram í Reykjavík helgina
3.-6. september. Hátíðin, sem er
sú eina sinnar tegundar hérlend-
is, var haldin í fyrsta sinn í mars
2008. Þá var athyglinni beint að
nokkrum atvinnuleikhópum sem
hafa verið í fararbroddi í nýsköp-
un í leiklist í Evrópu og Banda-
ríkjunum.
Í ár verður lögð áhersla á að
sýna metnaðarfullar íslenskar
leiksýningar frá liðnum vetri
og því gefst leikhúsáhugafólki
kjörið tækifæri til þess að með-
taka á einni helgi nokkuð af því
markverðasta sem er á seyði í
leiklistarlífi landans. Leikfélag
Reykjavíkur býður upp á Dauða-
syndirnar og Þú ert hér, Þjóð-
leikhúsið sýnir Utangátta, Ég
og vinir mínir sýna Húmanímal
og Áhugaleikhús atvinnumanna
frumsýnir Ódauðlegt verk um
stríð og frið auk þess að sýna
Ódauðlegt verk um samhengi
hlutanna og Ódauðlegt verk um
stjórn og stjórnleysi.
Þá verða einnig sýnd þrjú
útskriftarverkefni nemenda í
Fræði og framkvæmd frá síðast-
liðnu vori, þeirra Leifs Þorvalds-
sonar, Ástbjargar Rutar Jóns-
dóttur og Hlyns Páls Pálssonar.
Erlendir gestir hátíðarinnar
koma frá Dublin; Fishamble;
The New Play Company sýnir
Forgotten eftir Pat Kinevane
í leikstjórn Jims Culleton, en
leikhúsið hefur ferðast með
þessa sýningu um Evrópu og til
Bandaríkjanna og hlotið frábær-
ar viðtökur áhorfenda.
Eitt af markmiðum aðstand-
enda Lókal að þessu sinni er að
fá til landsins listræna stjórn-
endur leiklistarhátíða vestan
hafs og austan til þess að kynna
þeim íslenskt leikhús. Útsendar-
ar frá mörgum af virtustu leik-
listarhátíðum hafa boðað komu
sína, meðal annars frá Wiener
Festwochen, Dublin Theatre
Festival og listahátíðinni Trans-
america í Montréal.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðu hátíðarinnar
www.lokal.is
Á eftir artFart er Lókal
Þ
að er orðinn
fastur passi á
Menningar nótt
í Reykjavík að
Sálmafoss, dag-
skrá sem daglangt er
helguð sálmasöng, leikra
og lærðra, dregur til sín
straum af gestum. Hall-
grímskirkja liggur þannig
miðsvæðis við athafna-
svæði borgarlífsins að það
er í leiðinni fyrir marga
að koma þar við. Kunnugir
vita að þar er í boði frum-
flutningur á nýjum íslensk-
um sálmum og eftir því sem
á daginn líður má setjast
framarlega í kirkjuskipinu
þar sem gestir eru leiddir
í gegnum hin nýju lög sem
eru allir samdir við ný ljóð.
Þetta er fallegur siður og
þau eru í ár sjö nýju sálma-
blómin sem springa út
nokkrum sinnum þennan
dag í kirkjunni á holtinu.
Frumflutningur er kl. 15
í dag: þá flytur Mótettu-
kór Hallgrímskirkju sálm-
ana sjö undir stjórn Harð-
ar Áskelssonar: höfundar
þeirra og heiti eru: Sigurð-
ur Pálsson/Margrét Krist-
ín Sigurðardóttir – „Ákall“,
KK – „Á hverjum degi,
Drottinn minn ég bið“, Jóna
Hrönn Bolladóttir/Gunnar
Gunnarsson – „Hún laug-
aði fætur Jesú“, Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson/Sig-
urður Flosason – „Lifandi
Guð“, Sveinbjörn I. Bald-
vinsson/Tryggvi Baldvins-
son – „Höfundur húmblárra
fjalla“, Böðvar Guðmunds-
son/Jón Hlöðver Áskelsson
– „Ég heyri þig“, Gerður
Kristný/Bára Grímsdóttir –
„Verndarvængur“. Síðar um
daginn verða gestir leiddir
nokkrum sinnum gegnum
þessa nýju sálma í samsöng:
kl. 16, 17, 18, og 20.
Milli samsöngsatriða er
flutningur á kirkjulegri
tónlist af ýmsu tagi þar
sem fram koma Graduale-
kór Langholtskirkju sem
syngur undir stjórn Jóns
Stefánssonar. Kór Áskirkju
syngur undir stjórn Magn-
úsar Ragnarssonar, Kór
Lágafellskirkju undir stjórn
Jónasar Þóris sem einn-
ig leikur á orgel, og Schola
cantorum. Þá er fléttað inn í
dagskrána orgelleik á orgel
hússins og kl. 20.15 verður
„Hammond hymnódía“ þar
sem þeir Þórir Baldursson
á Hammond-orgel, Gunnar
Gunnarsson á Klais-orgelið
og Sigurður Flosason á saxó-
fón leiða saman hesta sína.
Dagskránni lýkur svo með
kvöldbæn og lokasálmi kl.
21.40.
Innlit á dagskrána í kirkj-
unni er löngu orðið fastur
liður hjá mörgum sem eru
á ferðinni í miðborginni á
Menningarnótt. Þú ert vel-
kominn í hópinn.
HLEYPT Á SÁLMAFOSSI
Gerður Kristný er meðal þeirra skálda sem eiga ljóð við lag í sjö nýjum
sálmum dagsins í Hallgrímskirkju. Hún fær lag frá Báru Grímsdóttur
við ljóðið sitt en sálmurinn heitir Verndarvængur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sjö nýir
sálmar eftir
sjö skáld og
sex hljóm-
smiði verða
fl uttir í
kirkjunni
á holtinu í
dag kl. 15.
TÓNLIST PÁLL
BALDVIN
BALDVINSSON
Áhugaleikhús atvinnumanna verður með þrjár þematengdar sýningar á hátíðinni.
MYND/ÁLAM
Dalir
Hólar
Handverk
Myndlistarsýning í
Ólafsdal í Gilsfirði
og nærsveitum
9. - 31. ágúst
www.artinfo.is
MENNINGARRÁÐ
VESTFJARÐA
Frístundakor t
Ástvaldur Traustason
skólastjóri Tónheima
“Markmið mitt er að gefa sem flestum
tækifæri til að stunda tónlistarnám því
tónlist er stór hluti af lífi okkar og veitir
ómælda gleði og ánægju .
Nú gefst þér tækifæri til þess að stunda
skemmtilegt tónlistarnám - sem fyrr eru
allir velkomnir, byrjendur sem lengra
komnir, ungir og aldnir.”
Upplýsingar og skráning á tonheimar.is
og í síma 846 8888
Skráning hafin á haustönn - enginn biðlisti!
Bassagítar
Lagasmíðar
Harmónika
Raf- og kassagítar
Píanó
Tónheimar - Fákafeni 9 - tonheimar@tonheimar.is