Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 75
LAUGARDAGUR 22. ágúst 2009 43
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 22. ágúst 2009
➜ Leiklist
19.00 Gjörn-
ingurinn Ég man
eina stund fluttur í
Leikhús-Batteríinu
á artFart. Aðgang-
ur ókeypis.
22.00 Frumsýn-
ing á verkinu Kata-
Dori !!Seagal!! í
Leikhús-Batteríinu
á vegum artFart. Miðaverð 1000 krónur.
➜ Sýningar
20.00 Írska kvikmyndagerðarkonan
Moira Tierney sýnir og fjallar um kvik-
myndir sínar í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
➜ Markaðir
17.00 Dúsan er þjóðlegur skyndibita-
staður sem starfræktur verður í dag á
Óðinstorgi.
➜ Uppákomur
14.00 Landsmót í
Hrútadómum í Sauð-
fjársetrinu í Sævangi
á Ströndum. Mótið
hefst kl. 14.00.
➜ Ljóðahátíð
14.00 Jórunn Sigurðardóttir stjórnar
pallborðsumræðum um ljóðlist í Nor-
ræna húsinu. Þátttakendur verða Mor-
ten Søndergaard, Vivek Narayanan, Cia
Rinne, UKON, Bryndís Björgvinsdóttir,
Ingólfur Gíslason og Valur Brynjar Ant-
onsson.
21.00 Ljóðapartí með fjórum erlend-
um og sjö íslenskum skáldum að
Tryggvagötu 11. Fallegir menn spila að
upplestri loknum.
➜ Dans
17.30 Frumflutningur á nýju dans- og
tónverki í Hafnarhúsinu. Verkið er eftir
Irmu Gunnarsdóttur danshöfund og
Einar Braga Bragason tónlistarmann.
Frumflutt kl.17.30 og sýnt aftur um
kvöldið kl.20.30.
18.00 Dansverkið Fresh Meat flutt á
artFart í síðasta skipti í Leikhús Batterí-
inu. Miðaverð 1000 krónur.
21.00 Dansverkið Ég sé þig flutt í Aust-
urbæ á vegum artFart. Miðaverð 1000
krónur.
➜ Tónlist
14.00 Á rás
fyrir Grensás við
Óðinstorg. Meðal
þeirra listamanna
sem koma fram
á sviði eru Ragn-
heiður Gröndal
og Guðmundur
Pétursson, Lay
Low, Mammút og
Hilmar Örn Hilm-
arsson og Stein-
dór Andersen.
17.00 Brasilíska
söngkonan Jussanam ásamt íslenskri
hljómsveit hennar á Kjarvalsstöðum.
19.00 Marc Ducret, einn besti jassgítar-
leikari Frakka nú um stundir, leikur ýmis
lög af fingrum fram í Alliance Française
Tryggvagötu 8 í Reykjavik.
23.00 Þýska plötufyrirtækið Kompakt á
Jacobsen. Þar munu Pan/Tone spila og
Shumi þeyta vinylplötum ásamt Margeiri
og Sexy Lazer sem halda uppi heiðri
víkinga.
➜ Myndlist
12.00 Guðrún Kristjánsdóttir, Hiroyuki
Nakamura, Katrín Elvarsdóttir, Marta
María Jónsdóttir og Steingrímur Eyfjörð
opna sýningu í Gallerí Ágúst.
Sunnudagur 23. ágúst 2009
➜ Jazzhátíð
12.00 Hádegis-
jazz í Vatns-
mýrinni á Dill
Restaurant.
16.00 Ragn-
heiður Gröndal
og Kristjana
Stefánsdóttir
bjóða til söng-
veislu á Kjar-
valsstöðum.
17.00 Síðdegisjazz á veitingastaðnum
Basil and Lime, Klapparstíg.
20.00 Í tilefni áttræðisafmælis Guð-
mundar Steingrímssonar býður Jazzhátíð
upp á dúndursveifluveislu í anda Guð-
mundanna, Ingólfssonar og Steingríms-
sonar í Iðnó.
21.00 Scott McLemore sýður saman
dagskrá úr ýmsum áttum á Café Ros-
enberg.
22.30 Andri Ólafsson bassaleikari leiðir
eðalhóp á minningartónleikum um
Charles Mingus á Kúltúra.
➜ Afmæliskaffi
15.30 Aldarafmæli Jóns Jóhannesson-
ar prófessors í sagnfræði við Háskóla
Íslands. Af því tilefni standa Sagnfræði-
stofnun Háskóla Íslands og afkomendur
Jóns fyrir samkomu til minningar um
hann í samkomusal Þjóðminjasafns
Íslands við Suðurgötu.
➜ Síðustu Forvöð
10.00 Sýningunni Möguleikar - List-
sjóður Guðmundu S. Kristinsdóttur í
Hafnarhúsinu lýkur í dag. Á sýningunni
eru verk tíu íslenskra samtímalista-
kvenna sem allar hafa hlotið viður-
kenningu úr Listsjóði Guðmundu S.
Kristinsdóttur.
12.00 Síðasti sýningardagur á sýning-
unni Kreppumálararnir í Listasafninu á
Akureyri. Aðgangur ókeypis.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni verður að
Stangarhyl 4. Danshljómsveitin Klassík
leikur danslög við allra hæfi.
➜ Tónlist
16.00 Kirstín Erna Blöndal, söngkona
og Gunnar Gunnarsson, píanóleikari
flytja tónlist sem gerð hefur verið við
texta Halldórs Laxness á tónleikunum
í Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er 500
krónur.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Frábært land
til ferðalaga
Ljósifoss
Blanda
Laxá
Krafla
Végarður
Búrfell
Nánari upplýsingar um heimsókn til Landsvirkjunar eru
á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000. Árangur fyrir alla
28
9
A
•
P
Merktu þína uppáhalds áfangastaði inn á kortið.
Er ekki upplagt að koma við hjá okkur í leiðinni?
Nú fer hver að vera síðastur.
Sýningum okkar fer að ljúka.
Dimmir hratt á draugaslóð í Blöndustöð opið til 23. ágúst
Andlit Þjórsdæla í Búrfellsstöð opið til 23. ágúst
Afl úr iðrum jarðar í Kröflustöð opið til 7. sept
Hvað er með Ásum? í Laxárstöð lokað
List Kristjönu Samper í Ljósafossstöð opið til 23. ágúst
Orkan frá Kárahnjúkum í Végarði opið til 30. ágúst
Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Aðgangur er ókeypis.
VÉLASALAN
Klettagörðum 25. Sími:5200000
www.velasalan.is
velasalan@velasalan.is
VÉLASALAN
Nordic Terhi bátar
Terhi 385