Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 41
www.tskoli.is Innritun í kvöld- og f jarnám stendur til 26. ágúst Lækkað verð Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ verður opið á Menningarnótt til 22.30 og er ókeypis á allar sýningar. Boðið verður upp á fléttudagskrá þar sem spunnið er út frá tveggja alda afmæli landsyfirráða Jörundar hundadaga- konungs. Sýndir verða margvíslegir munir frá veru hans hér á landi og spiluð verður tónlist sem ef til vill ómaði á dansleikjum Jörundar. Unnur B. Hansdóttir opnaði ásamt eiginmanni sínum, Pjetri Árnasyni, veitinga- og þjónustumiðstöðina Esjustofu í byrjun mánaðarins og þar ætla þau hjónin að verja stærst- um hluta helgarinnar. Staðurinn stendur við Esjurætur og er hann ætlaður gestum fjallsins og öðrum vegfarendum. Hjónin hafa í mörg ár stundað útivist í Esjuhlíðum og upplifað jákvæð áhrif sem hreyfing í nátt- úrunni gefur líkama og sál. Hug- mynd að veitinga- og þjónustu- miðstöð varð til í einni slíkri ferð fyrir tæpum áratug og er því ljóst að framkvæmdin er engin skyndi- ákvörðun. Þau Unnur og Pjetur festu kaup á gömlu húsi sem þau gerðu upp auk þess sem þau hafa látið gera tvær brýr yfir Mógilsá til að greiða götu göngugarpa að staðnum. „Við höfum haft hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi við endurgerð og hönnun húsnæðisins og má segja að næstum því hver einasta skrúfa hafi verið endurnýtt,“ segir Unnur. Hún segir þau hjónin leggja sig fram um að útbúa sem mest sjálf af því sem boðið er upp á og taka þau mið af náttúrunni í þeim efnum. „Þá reynum við að kaupa allar afurðir eins nálægt okkur og við getum.“ Á boðstólum eru til að mynda íslenskar spelt-vefjur, heimalöguð súpa og heilsubar með hreinsandi söfum og bústi. Einhver sætindi leynast þó inni á milli og er boðið upp á heimalagað súkkulaði, súkkulaði köku og vöfflur. Unnur segir staðinn ætlaðan göngufólki sem og öðrum gestum sem vilji njóta veitinga í vinalegu og fallegu umhverfi. „Þá verður viðburðadagskrá allan ársins hring auk þess sem boðið verður upp á salaleigu fyrir stórar sem smáar uppákomur.“ Að sögn Unnar leggja mun fleiri leið sína á fjallið nú en þegar hún og Pjetur byrjuðu að stunda þessa heilsurækt og vonast þau til að sjá sem flesta. vera@frettabladid.is Una sér við Esjurætur Helginni ætla hjónin Unnur B. Hansdóttir og Pjetur Árnason að eyða við Esjurætur en þar opnuðu þau nýverið veitingastaðinn Esjustofu. Þar er boðið upp á holla og næringarríka rétti fyrir rjóða göngugarpa. Unnur og Pjetur tóku ástfóstri við Esjuna fyrir löngu og hafa gengið með hugmyndina að veitingastað og þjónustumiðstöð við Esjurætur í maganum um margra ára skeið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.