Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er laugardagurinn 22.
ágúst 2009, 234. dagur ársins.
ÉG gerði mér grein fyrir því
þegar ég fór að ganga á Esjuna í
sumar að það þótti svo sannarlega
ekki töff. Kannski fyrir þrem-
ur árum – þegar enginn gekk
hana. En núna? Nei, ekki þegar
allir eru að gera það. Í sama pytt
hefur ýmis góð tónlist, matargerð
og jafnvel heilu rithöfundarnir
dottið þegar þeir öðlast hylli alls
lýðsins. Vinsældirnar verða þá að
holdsveiki. Fína fólkið getur ekki
lengur lesið Arnald Indriðason –
því „pakkið“ er að lesa hann.
„ JAÐARFÓLKIГ hefur
þessi hópur fólks, sem virðir
að vettugi vinsæla hluti, stund-
um verið nefndur síðustu árin.
Eyðimerkurganga þess er löng
og endalaus enda neyðist það til
að finna alltaf eitthvað nýtt. Um
leið og jaðarfólkið maukar sér
nýja tegund af hummus er Jói
Fel kominn með hana. Og þá er
þetta búið.
HVAÐ næst? Best að fara að
rækta kál. En nei. Þá eru allir
farnir að gera það. Best að fara
að vefja sínar eigin sígó. En nei.
Þá eru hnakkarnir farnir að gera
það. Þetta er fullt starf í raun –
að vera jaðar. Ætti helst að setja
þetta á bætur. Jaðarbætur.
EINU sinni drakk þetta viskí.
Ekki lengur. Ekki eftir að Gilz
sást sveifla viskíglasi á barnum.
Versti dagur í lífi jaðarfólksins
var eflaust þegar tvöfaldur macc-
hiato fór að fást á öllum kaffihús-
um. Allt sem er vinsælt er dæmt
úr leik. Sama hversu verðskuld-
að eða óverðskuldað það er. Um
leið og þú ert á allra vörum ertu
„out“.
ÞANNIG hafa hinir ótrúlegustu
hlutir misst vægi sitt hjá ákveðn-
um hópi þegar þeir öðlast lýðhylli
og sumir listamenn forðast jafn-
vel að selja margar bækur af
ótta við að lenda utan girðing-
arinnar. Það veit ekki á gott að
vakna í sama almenningsgarði og
Bubbi Morthens, Hemmi Gunn og
Sirrý.
UM leið hefur þetta fólk oftar en
ekki haldið stólræður um hvern-
ig bjóða eigi nýjungar úr undir-
heimum velkomnar – án allra for-
dóma. Talið sér víðsýni til tekna
– en um leið verið það allra for-
dómafyllsta. Kannski þess vegna
hef ég alltaf haft horn í síðu þessa
fólks – þar liggja mínir fordóm-
ar.
Lítt þokkaðar
vinsældir
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur
5.40 13.31 21.18
5.16 13.15 21.12
www.tskoli.is
Innritun í kvöld- og f jarnám
stendur til 26. ágúst
Lækkað verð