Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 76
44 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR OKKUR LANGAR Í … utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Hönnuðir víðs vegar um heim sýndu ýmis konar útgáfur af svarta mótorhjólajakkanum fyrir komandi haust. Flíkin öðlaðist fyrst vinsældir hjá konum á sjöunda áratugnum þegar til dæmis Marianne Faithful og Brigitte Bardot tóku að klæða sig í mót- orhjólaleður frá toppi til táar. Frakkinn Christophe Decarnin hefur aðhyllst rokkstelputískuna síðan hann tók við tískuhúsinu Balmain og bauð upp á ýmis konar rennda jakka, kjóla og buxur fyrir veturinn. Einnig mátti sjá svipuð áhrif hjá Gucci, Alex- ander Wang, Roland Mouret og Haider Ackerman. - amb Af einhverjum ástæðum finnst mér alltaf að ákveðin æði grípi auð- veldlegar um sig hér á litla landinu okkar en víðast hvar annars staðar í heiminum. Flestir aðrir heimspartar búa yfir ögn meiri fjölbreytni en litla íslenska samfélagið og þá ríkir meiri breidd í tískusveiflunum. Hér klæðir fólk sig oft svipað eða þá að ákveðin tískutrend ná fótfestu og þá sjást gersamlega allir í því. Í sumar tók ég eftir því að lang- flestar ungar píur voru komnar í svipað júniform: svartar leggings sem ná niður á ökkla, berfættar í háum hælum og við þetta ganga þær í afskaplega flegnum babydoll kjól í ýmiss konar litum úr einhvers konar teygjanlegu gerviefni. Ég veit ekki hvaðan þetta trend eigin- lega kom en persónulega finnst mér þetta yfirleitt óklæðilegt og leiði- gjarnt. Einhvern tímann fyrir löngu síðan lærði ég líka að það að sýna eins mikið af brjóstaskorunni og mögulegt er væri ekkert sérstaklega smart né kynþokkafullt. Þar gildir jú „less is more“ reglan eins og annars staðar. Um daginn átti ég þó spjall við vinkonu mína sem spáði því að skvísur færu að klæða sig í djarfari og djarfari föt út á lífið þar sem eitt væri jú ókeypis í kreppunni: kynlíf. Kannski að það verði bara heitt eftir allt saman að vera skinkuleg. Íslenskar tískubólur LEÐUR OG TÖFFARASKAPUR Í HAUST Mótorhjólajakkarnir koma sterkir inn SEXÍ Níð- þröngt leður hjá Alexander Wang RENNILÁS Kynþokka- fullur stutt- ur kjóll hjá Balmain KLASSÍSKT Leðurjakki við silkiskyrtu og svart- ar buxur hjá Gucci ROKKA- BILLI Flottur leð- urjakki með áberandi herðum við svartar þröngar buxur hjá Balmain SÍÐUR Renndur leðurjakki við rauðan bol hjá franska tískuhúsinu Barbara Bui TÖFFARI Breski hönnuðurinn Gareth Pugh sýnir hér útgáfu af mótorhjóla- lúkkinu fyrir strákana í vetur Fallegt heklað hálsmen eftir Elínu Hrund Þor- geirsdóttur sem fæst í Kisunni. Ilmvatn í dós frá L- Occitane með hinum einstaklega frískandi Verveine ilmi. Stór- sniðugt í ræktina eða vinnuna. Dásamlegt kinnalitabox frá Yves Saint Laurent sem er með brúnum, bleikum og glimm- ertónum til að fríska upp á andlitið. > SÝNIR Í KRONKRON Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir hefur vakið mikla athygli fyrir sérstakar tískumyndir. Á Menningarnótt opnar hún sýningu í verslun- inni KronKron þar sem hún notast við fatnað seldan þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.