Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 6
6 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Óska eftir að kaupa
íslensk enskt lingapon tungumála námskeið.
Sem er útgefi ð ár 1976, 1977 eða 1978 en ekki English Course.
En útgáfuárið er auðfundið fremst í bókum , námskeiðið sem mig vantar
er alíslenskt og var á sínum tíma mikið auglýst, lærið ensku á 40 tímum,
án efa eiga margir námskeiðið á vísum stað uppí hillu.
Vinsamlega hringið strax og þú lest auglýsinguna, ég slökkvi á
gemsanum eftir að ég hef fengið námskeiðið. Ég borga 40,000.-
fyrir námskeiðið. Ómar s. 865-7013
BRETLAND, AP Bandarísk stjórnvöld
hafa gagnrýnt ákvörðun dóms-
málaráðherra Skotlands um að
leysa Líbíumanninn Abdel Baset
al-Megrahi úr haldi.
David Miliband, utanríkisráð-
herra Bretlands, segir að mót-
tökurnar sem al-Megrahi fékk í
Líbíu hafi verið afar óviðeigandi.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti segir það hins vegar mistök
að hafa látið hann lausan, og ætt-
ingjar hinna látnu hafa mótmælt
harðlega.
Al-Megrahi hélt til Líbíu á
fimmtudag, sama dag og hann
fékk frelsið. Hann er alvarlega
veikur af krabbameini og á ekki
langt eftir. Kenny MacAskill,
dómsmálaráðherra Skotlands,
segist hafa tekið ákvörðun sína
af mannúðarástæðum.
Þúsundir ungra manna mættu
á flugvöllinn í Trípólí, höfuðborg
Líbíu, til að fagna al-Megrahi
þegar hann kom þangað. Líbíu-
stjórn hefur hins vegar gætt þess
að al-Megrahi sjáist ekki opin-
berlega síðan hann kom þangað,
líklega af tillitssemi við bresk
og bandarísk stjórnvöld. Gordon
Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, hafði áður en al-Megrahi
var látinn laus skrifað Moammar
Gaddafi, leiðtoga Líbíu, og beðið
hann um að sýna nærgætni.
Richard Dalton, fyrrverandi
sendiherra Breta í Líbíu, segir að
móttökur al-Megrahis hafi verið
afar lágstemmdar miðað við það
sem hefðbundnar kurteisisvenjur
þar í landi boða.
Abdel Baset al-Megrahi er
eini maðurinn, sem hlotið hefur
dóm vegna Lockerbie-málsins.
Hann var starfsmaður leyniþjón-
ustu Líbíu þegar sprenging varð
í bandarískri farþegaþotu yfir
skoska bænum Lockerbie árið
1988. Allir farþegar og áhöfn
vélarinnar fórust, samtals 259
manns, auk ellefu manna á jörðu
niðri sem létu lífið þegar vélin
hrapaði.
Al-Megrahi hélt ávallt fram sak-
leysi sínu. Í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér þegar hann var lát-
inn laus á fimmtudag segist hann
þakklátur skosku þjóðinni, þrátt
fyrir að dvöl hans í fangelsinu
hafi verið ömurleg.
Jafnframt ítrekar hann enn sak-
leysi sitt, en segist hafa hætt við
að áfrýja málinu vegna veikinda
sinna. „Það sem eftir er af lífi
mínu þarf ég nú að lifa í skugga
þess að dómur minn var rangur.“
Fljótlega eftir hrap flugvélar-
innar beindust böndin að leyni-
þjónustu Líbíu. Árið 2001 var
al-Megrahi dæmdur í lífstíðar-
fangelsi og hafði afplánað átta ár
þegar hann var látinn laus.
gudsteinn@frettabladid.is
Lausn Líbíumanns
vekur reiði og deilur
Utanríkisráðherra Breta segir fögnuð Líbíumanna óviðeigandi en Bandaríkja-
forseti segir það mistök að hafa látið al-Megrahi lausan. Líbíustjórn virðist þó
hafa reynt að hafa opinber viðbrögð lágstemmd, að beiðni Gordons Brown.
FAGNAÐ Í LÍBÍU Líbíumenn tóku vel á móti Abdel Baset al-Megrahi á flugvellinum í
Trípólí þegar hann kom þangað í fyrrakvöld. NORDICPHOTOS/AFP
FÓLK Rúmlega fimmtán hundruð
fleiri fluttust frá landinu en til
þess á fyrstu sex mánuðum ársins.
Á sama tíma í fyrra höfðu 2.674
fleiri flutt til landsins en frá því.
Alls hafa 2.720 manns flutt til
landsins það sem af er ári, en 4.252
frá því. Flestir hinna brottfluttu
eru erlendir karlmenn.
Langflestir fóru til Póllands, eða
1.247 manns. Fluttu 676 til Dan-
merkur, 565 til Noregs og 317 til
Svíþjóðar. Færri fóru til annarra
landa. Flestir þeir sem fluttu til
landsins á tímabilinu komu einnig
frá Póllandi, eða 667 manns.
Hafa 1.900 Íslendingar flust burt
á árinu en 2.300 útlendingar. Hlut-
föll milli brottfluttra og aðfluttra
eru svipuð hjá íslenskum og erlend-
um ríkisborgurum. Rúmlega 700
fleiri Íslendingar og 700 fleiri
útlendingar fluttu frá landinu en
til þess á þessum sex mánuðum.
Miklu fleiri karlar en konur
fluttu burt á tímabilinu, ríflega
2.600 karlar fóru héðan en kon-
urnar voru ríflega 1.500.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær hefur dregið mikið úr
aðflutningi erlendra ríkisborgara
til landsins og það sem af er ári
hafa fleiri farið en komið. Það er
í fyrsta skipti frá árinu 1992 sem
það gerist.
- þeb
Nokkuð jafnt hlutfall íslenskra og erlendra ríkisborgara fer burt:
Mikill fjöldi fluttur frá Íslandi
Hefur þú farið í leikhús á
árinu?
Já 35,8%
Nei 64,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú hugsað um að flytja
af landi brott vegna efnahags-
ástandsins?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
KÍNA, AP Meira en þrettán hundr-
uð börn hafa greinst með blý-
eitrun vegna mengunar frá
manganbræðslu í bænum Wen-
ping í Hunan-héraði. Aðeins
fáeinir dagar eru frá því hundr-
uð manna greindust með blýeitr-
un vegna mengunar frá annarri
verksmiðju í Kína.
Blýeitrun barnanna hefur
vakið óróa og gagnrýni almenn-
ings í landinu, sem var órótt fyrir
vegna hvers hneykslismálsins á
fætur öðru þar sem öryggi barna
hefur verið í hættu. Skemmst
er að minnast bæði jarðskjálft-
ans mikla á síðasta ári þegar
fjöldi skóla hrundi og skemmdra
mjólkurvara sem seldar voru
víða um land.
Manganverksmiðjan í Wenping
var tekin í notkun í maí á síðasta
ári án þess að tilskilin leyfi væru
fyrir hendi. Grunnskóli er í innan
við 500 metra fjarlægð frá verk-
smiðjunni. Tveir yfirmenn í verk-
smiðjunni hafa verið handteknir
vegna málsins.
Í júlí byrjaði að vakna grunur
um blýeitrun þegar mörg börn
fengu kvef og aðra kvilla, og það
fékkst svo staðfest nú í vikunni,
þegar sjötíu prósent allra barna
sem prófuð voru reyndust hafa
orðið fyrir eitrun.
Blýeitrun getur skemmt bæði
taugakerfi og æxlunarfæri og
valdið minnistapi og háum blóð-
þrýstingi. - gb
Tveir menn handteknir í Kína vegna blýmengunar frá efnaverksmiðuju:
Þrettán hundruð börn með blýeitrun
Auglýsingasími
– Mest lesið
EITT BARNANNA Manganverksmiðja
var opnuð á síðasta ári í minna en 500
metra fjarlægð frá grunnskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Íslenska hugbúnaðar-
fyrirtækið Dohop hefur samið
við fyrirtækið Malaysia Air-
ports, sem rekur yfir þrjátíu
flugvelli í Malasíu, Indlandi
og Tyrklandi, um að þróa og
reka flugupplýsingakerfi fyrir
heimasíðu flugvallarins í Kuala
Lumpur.
Kerfið sem um ræðir gerir
notendum kleift að finna flug á
milli yfir þrjú þúsund flugvalla
víðs vegar um heiminn, með
áherslu á tengingu í gegnum
flugvöllinn í Kuala Lumpur. Um
þrjátíu milljónir farþega fara
um flugvöllinn á hverju ári.
- þeb
Þróa flugupplýsingakerfi:
Dohop semur
við flugvallarisa
KJÖRKASSINN