Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 8
8 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
1 Hver er ritstjóri tímaritsins
Vísbendingar?
2 Hvað heitir forstjóri
Straums?
3 Hver er heimsmetstími Usa-
ins Bolt í 200 metra hlaupi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62
URÐUR SLE IPN IR F ISH ERMAN
Pottþéttur í skólann fyrir athafnasöm börn. Sportlegur, vindheldur og vatnsfráhrindandi. Vatnsheldur sjóara bakpoki.
jakki og buxur jakki og buxur bakpoki
Verð jakki: 8.400 kr.
Verð buxur: 5.800 kr.
Verð jakki: 19.800 kr.
Verð buxur: 16.800 kr.
Verð: 8.800 kr.
LÖGREGLA Fimmtíu grömm af
amfetamíni fundust við leit í bif-
reið rétt fyrir utan Blönduós á
tíunda tímanum á fimmtudags-
kvöldið. Farþegar bifreiðarinnar
voru tveir, karl og kona á þrítugs-
aldri. Um var að ræða efni sem
voru mjög hrein og hægt að
drýgja verulega. Voru þau ætluð
til sölu á Norðurlandi, aðallega á
Eyjafjarðarsvæðinu.
Grunur vaknaði hjá lögreglu
við reglubundið eftirlit þegar
sást til bifreiðar á norðurleið.
Kallaður var til lögreglumaður
með fíkniefnahund lögreglunnar
á Blönduósi og fundust efnin
fljótlega. Eftir skýrslutökur hjá
lögreglu var fólkið frjálst ferða
sinna. - vsp
Amfetamín á Blönduósi:
Hægt að drýgja
efnin verulega
BANDARÍKIN, AP Tæpur helmingur
Bandaríkjamanna, um 49 prósent
þeirra sem tóku
þátt í nýrri
skoðanakönnun,
segist trúa
því að Barack
Obama Banda-
ríkjaforseti
muni taka rétt-
ar ákvarðanir.
Könnunin var
gerð á vegum
dagblaðsins
Washington Post og ABC-frétta-
stofunnar, og niðurstöður birtar í
gær. Í könnun sem gerð var eftir
að Obama hafði setið 100 daga í
embætti sögðust sextíu prósent
aðspurðra treysta ákvörðunum
hans.
Um 57 prósent aðspurðra í nýju
könnuninni sögðust ánægð með
störf forsetans, sem er tólf pró-
sentustigum minna en í apríl. - bj
Ljómi breytinganna dofnar:
Um helmingur
treystir Obama
BARACK OBAMA
FJÖLMIÐLAR Framkvæmdastjóri
útgáfufélagsins Birtíngs, Elín
G. Ragnarsdóttir, vill að lögmað-
urinn Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son biðji blaðamenn sem starfa
hjá útgáfunni afsökunar á þeim
orðum sínum að þeir séu síbrota-
menn á sviði ærumeiðinga og
annarra brota á prentlögum. Elín
hótar því í fréttatilkynningu að
kæra ella Vilhjálm til siðanefnd-
ar lögmannafélagsins fyrir ýmis
brot.
Í Fréttablaðinu í gær var greint
frá fyrirhugaðri stefnu fjölskyldu
úr Sandgerði á hendur ritstjóra
Vikunnar, vegna ummæla við-
mælanda Vikunnar um fjöl-
skylduföðurinn og dóttur hans.
Vilhjálmur rekur málið og sagð-
ist meðal annars ætla að byggja
á því að Birtíngur og starfsfólk
útgáfunnar væru síbrotamenn
á sviði ærumeiðinga og annarra
brota á lögum um prentrétt.
Í tilkynningunni frá Elínu
segir að enginn starfsmaður Birt-
íngs hafi verið dæmdur tvisvar
eða oftar fyrir meiðyrði í starfi
sínu hjá félaginu. Því sé ósvífni
að kalla þá síbrotamenn.
Þá segir einnig að Vilhjálmur
hafi ítrekað gerst brotlegur við
siðareglur lögmannafélagsins,
meðal annars með því að láta
fyrirfarast að bjóða sættir áður
en stefnt er. Biðjist Vilhjálmur
ekki afsökunar hljóti að koma
til álita að siðanefnd lögmanna-
félagsins fái að taka afstöðu til
þess hvort Vilhjálmur sé sjálfur
síbrotamaður.
Vilhjálmur segir að honum hafi
ekki borist nein krafa um afsök-
unarbeiðni frá Birtíngi og geti því
að svo stöddu ekki tekið afstöðu
til málsins. Hins vegar hafi hann
ekkert sagt við Fréttablaðið í gær
sem hann geti ekki staðið við.
„Ég hef kannski misskilið eitt-
hvað. Ég hélt að það væri Birt-
íngur sem skuldaði skjólstæð-
ingum mínum afsökunarbeiðni,“
segir hann og vísar að öðru leyti
í grein sem hann birtir í Frétta-
blaðinu í dag.
- sh
Framkvæmdastjóri Birtíngs vill að lögmaður biðjist afsökunar á orðum sínum:
Birtíngur hótar að kæra Vilhjálm til siðanefndar
ELÍN G.
RAGNARSDÓTTIR
VILHJÁLMUR
VILHJÁLMSSON
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur
óskað eftir því að Bjarki Freyr
Sigurgeirsson, sem grunaður
er um að hafa banað kunningja
sínum í Dalshrauni í Hafnarfirði
á mánudagskvöld, sæti geðrann-
sókn til að skera úr um sakhæfi
hans. Það mun vera vanalegt í
málum sem þessum að rannsaka
geðheilbrigði manna.
Bjarki er talinn hafa barið
manninn til bana með eldhús-
áhaldi, að öllum líkindum sam-
lokugrilli, eftir að þeim sinnaðist.
Ekki hefur fengist gefið upp
hvort Bjarki hefur játað glæpinn.
Hann mun sitja í gæsluvarðhaldi
til 1. september. - sh
Morðið í Dalshrauni:
Sá grunaði sæt-
ir geðrannsókn
Í DALSHRAUNI Það var í þessu húsi sem
Bjarki bankaði alblóðugur upp á hjá
nágranna sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fangi vill ekki til Bosníu
Alsírskur fangi, sem Bandaríkjastjórn
hefur ákveðið að sleppa úr fanga-
búðunum við Guantanamo-flóa á
Kúbu, berst gegn því að vera sendur
til Bosníu, þar sem hann var hand-
tekinn árið 2001, því þaðan verði
hann líklega sendur til Alsír þar sem
fangavist bíður.
BANDARÍKINN
Grjóthrun á sólarströnd
Fimm manns fórust og að minnsta
kosti fjórir særðust á sólarströnd í
bænum Albufeira á Algarve í Portúgal
í gær þegar grjót hrundi úr klettum
fyrir ofan ströndina.
PORTÚGAL
ATVINNUMÁL Rúmlega tólf og hálf-
ur milljarður króna var greiddur
út í atvinnuleysisbætur fyrstu sex
mánuði ársins.
Þetta þýðir að
kostnaður við
atvinnuleysis-
bætur var rúm-
lega 69 milljónir
á dag. Sömu sex
mánuði í fyrra
var rúmur millj-
arður greiddur
út. Greiðslurnar
tólffölduðust því
á milli ára.
„Það er engum blöðum um það
að fletta að þetta er gífurlega mikil
breyting,“ segir Gissur Pétursson,
forstjóri Vinnumálastofnunar. „Við
erum oft og tíðum að borga svipað
á mánuði nú og við gerðum í heilt
ár á meðan góðærið var.“
Í fjárlögum ársins 2009 er gert
ráð fyrir rúmum sautján og hálfum
milljarði króna í atvinnuleysisbæt-
ur. Fór 71 prósent þeirrar upphæð-
ar í greiðslur fyrstu sex mánuði
ársins. Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir sjóð-
inn þó fara langleiðina með að
standa undir útgjöldum ársins.
„Það kemur til af því að við áttum
inni frá fyrri árum. Svo skilar sér
tryggingagjald, iðgjaldagreiðslur
atvinnulífsins, í sjóðinn. Það hækk-
aði 1. júlí,“ segir hann.
„Á næsta ári mun innistæð-
an tæmast, og fjármögnunin mun
ekki dekka það mikla atvinnuleysi
sem fyrirsjáanlegt er á næsta ári,
nema að hluta. Það rjátlast í sjóð-
inn alltaf, á meðan einhverjir eru
að greiða laun í landinu.“ Gissur
segir þó að ekki megi setja málin
þannig upp að þegar sjóðurinn
tæmist verði hætt að borga. „Þá
er tvennt til ráða. Annars vegar að
hækka skattinn á atvinnulífið enn
meira, sem er nú kannski ekki mjög
ráðlegt, eða að ríkisvaldið hlaupi
undir bagga, eins og búið er að
gera undanfarin ár með ábyrgðar-
sjóð launa til dæmis. Þetta er bara
úrvinnsluefni ríkisfjármála hvern-
ig fjármögnunin er tryggð.“
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segist vona að sjóð-
urinn dugi út þetta ár. „En það er
alveg á hreinu að við munum ekki
láta hann komast í vanda. það verð-
ur staðið á bak við það fram í rauð-
an dauðann að hann geti greitt út
bætur og það er augljóst að þá
þarf að koma til viðbótarfjármagn
úr ríkissjóði ef hans tekjustofnar
duga ekki til.“
Meðalatvinnuleysi þennan fyrri
helming ársins var 8,3 prósent. Á
sama tíma í fyrra var það eitt pró-
sent. Í fyrra námu grunnatvinnu-
leysisbætur um 136 þúsund krón-
um, en sú upphæð var hækkuð um
síðustu áramót í tæpar 150 þús-
und krónur. Fyrstu þrjá mánuði
atvinnuleysis eru bæturnar tekju-
tengdar. Þær nema þó aldrei hærri
upphæð en 242 þúsundum. Gissur
segir tekjutenginguna ekki svo
dýra fyrir sjóðinn. „Það eru ein-
hver hundruð milljóna, ekki millj-
arðar. Það er fyrst og fremst fjöldi
atvinnulausra sem skýrir þetta
ástand.“ thorunn@frettabladid.is
Greiðslurnar tólf-
faldast á milli ára
Tólf og hálfur milljarður króna var greiddur út í atvinnuleysisbætur á fyrstu
sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra var greiddur út milljarður. Atvinnu-
leysistryggingasjóður mun ekki standa undir sér á næsta ári nema að hluta.
GISSUR
PÉTURSSON
HJÁ VINNUMÁLASTOFNUN Tæplega 16 þúsund manns eru nú skráðir á atvinnuleys-
isskrá. Vinnumálastofnun greiddi út rúmlega tólf og hálfan milljarð króna fyrstu sex
mánuði ársins. Það er 71 prósent þeirrar upphæðar sem sjóðnum var áætlað fyrir
árið í fjárlögum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?