Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 72
40 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is ÞÓRARINN ELDJÁRN RITHÖF- UNDUR ER SEXTUGUR Í DAG. „Það er best að vera hreinn og heill, í hug og verki traustu bjargi líkur.“ Þórarinn er rithöfundur og skáld. Einn fárra af sinni kyn- slóð sem jafnan notar hina hefðbundnu bragarhætti í ljóðum sínum. Íslendingar sigruðu Spánverja í handbolta í undanúrslitaleik Ól- ympíuleikanna þenn- an dag í fyrra. Það var magnþrungin stund enda ótrúleg frammi- staða hjá íslensku leikmönnunum sem eygðu þar með gull- ið ef tækist að vinna Frakkana. Leikmenn- irnir ærðust líka af gleði að leik loknum, ásamt allri íslensku þjóðinni sem á horfði. Leikurinn fór fram í Peking að viðstöddum forseta Íslands og fjölmörgum fleiri Íslending- um. Öllum var ljóst að þeir höfðu orðið vitni að einstökum viðburði í Íslandssögunni, silfur- verðlaun í hópíþrótt í hendi og gull á Ól- ympíuleikum raunhæf- ur möguleiki. „Þetta er mín stærsta stund í boltanum og skrítið að hægt sé að gera hana stærri,“ sagði Ólafur Stefánsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins, eftir leikinn. Íslendingar eru fimmta fámennasta þjóðin sem hefur unnið til verðlauna á sumarólympíuleikum. ÞETTA GERÐIST: 22. ÁGÚST 2008 Sigurstund í íslenskri íþróttasögu MERKISATBURÐIR 1809 Jörundur hundadagakon- ungur er handtekinn og valdatíma hans á Íslandi þar með lokið. 1916 Fyrsta lestarslysið verð- ur á Íslandi þegar telpa verður fyrir lest við Reykjavíkurhöfn. 1922 Íslandsmet sett í 5.000 metra hlaupi er Jón Kaldal hleypur vegalengd- ina á 15 mínútum og 23 sekúndum. 1981 Minnisvarði um Ara fróða Þorgilsson afhjúpaður á Staðarstað á Snæfells- nesi. 1992 Á Egilsstöðum lýkur vest- norrænu kvennaþingi með því að hlaða vörðu úr grjóti frá Grænlandi, Færeyjum og Íslandi. „Þetta eru sorgarlög í flutningi sem hentar við jarðarfarir því að útsetn- ingin er lágstemmd. Ég syng og Þórir Úlfarsson leikur undir á píanó,“ segir Snorri Snorrason, söngvari og upptöku- maður, um nýjan disk sem hann hefur sungið inn á. Hann segir diskinn þó ekki vera á leið í sölu heldur ætli hann að gefa hann í kirkjur og útfararstofur. „Þetta er bæði kynning fyrir mig sem söngvara og hugmyndabanki fyrir þá sem þurfa að velja lög til flutnings við jarðarfarir. Reyndar er verið að skoða það að gefa hann út en ákvörðun um það hefur ekki verið tekin.“ Margir muna eftir Snorra sem Idol- stjörnu Íslands 2006 þar sem hann heillaði fólk einkum með ljúfum ball- öðum. Síðan hefur hann meðal ann- ars sungið í hundruðum jarðarfara. „Ég er bestur í rólegu lögunum. Þess vegna hentar mér vel svona útfaratón- list,“ segir hann og kveðst hafa fengið hugmyndina að sorgardiskinum fyrir einu og hálfu ári þegar faðir hans dó úr krabbameini. „Þegar maður missir ein- hvern þá langar mann að hlusta á fal- leg lög í rólyndisflutningi, þess vegna fór ég í að setja saman þennan disk. Upphaflegu útsetningarnar eru stærri og með öðrum blæ.“ Beðinn að nefna lög af nýja diskin- um byrjar Snorri á Kveðju sem var á Idol-diskinum hans á sínum tíma. „Það er erlent lag sem systir mín gerði texta við,“ lýsir hann og kveðst langoftast hafa flutt það í jarðarförum. „Svo eru þarna Í bljúgri bæn, Dagný og Sökn- uður. Líka sálmarnir Drottinn er minn hirðir og Hærra minn Guð til þín svo einhver séu nefnd.“ Snorri hefur undanfarin ár aðallega fengist við útsetningar og upptökur enda er hann með eigið stúdíó í kjall- aranum heima. Hann kveðst hafa verið byrjaður á þeirri iðju áður en hann fór í Idolið. „Ég var einmitt að taka upp plötu með Jet Black Joe á meðan ég var í Idolinu,“ rifjar hann upp en kveðst hafa aukið við tækjakostinn síðan og verið á kafi í tónlistinni, útsett og tekið upp heilu plöturnar og líka stök lög. Hann bætti nýlega við sig aukabú- grein, www.fjarupptokur.is, sem hann segir sniðugt batterí. „Það eru til svo margir skúffulaga- höfundar,“ segir hann. „Fullt af fólki sem er að semja músík heima hjá sér en fer aldrei með hana lengra en að glamra hana á gítarinn eða gutla á píanóið. Þá eru fjarupptökur góð lausn. Fólk getur sent mér lagið eða komið og spilað það fyrir mig. Ég er með heila hljómsveit og við útsetjum og tökum upp, með eða án söngs eftir því sem lagahöfundurinn óskar. Ef hann vill syngja sjálfur þá kemur hann og bætir söngnum við í lokin. Þá er hann kom- inn með fullkomið lag sem hann getur átt fyrir sjálfan sig og fjölskylduna, eða jafnvel gefið út. Ég opnaði síðuna í vor og það eru komin lög í útvarpið úr þessari smiðju.“ Ekki er alveg hægt að sleppa Snorra án þess að spyrja um fjölskylduna því að hún skipaði stóran sess í lífi hans þegar hann var Idol-stjarna. „Mörg börn? Ég á þrettán,“ segir hann glettnislega en dregur svo tíu frá. „Nei, þau eru enn bara þrjú. Það er fín tala.“ gun@frettabladid.is SNORRI SNORRASON: HEFUR SAFNAÐ SORGARLÖGUM OG SUNGIÐ INN Á DISK Fékk hugmyndina þegar hann missti föður sinn úr krabba Í KJALLARANUM Snorri fæst við útsetningar og upptökur flesta daga og er með síðuna www.fjarupptokur.is fyrir þá sem vilja senda honum lög. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR STRÁKARNIR OKKAR FAGNA. Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður og afa, Friðriks Péturssonar fyrrv. kennara, Borgarholtsbraut 20, Kópavogi. Jóhanna Herdís Sveinbjörnsdóttir Ríkharður H. Friðriksson Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir Kristín Helga Ríkharðsdóttir Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Harðar Benediktssonar múrara, Skipholti 43, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks 11-B við Hringbraut, heimahlynningar og Örnu Daggar Einarsdóttur læknis. Hjördís M. Jóhannsdóttir Benedikt Harðarson Gylfi Harðarson Stella F. Sigurðardóttir Hilmar Harðarson Þorgerður L. Diðriksdóttir Hörður Harðarson Eva Jóhannsdóttir Áslaug Þ. Harðardóttir Ingólfur Arnarson barnabörn og langafabarn. Systir okkar og mágkona, Birna María Eggertsdóttir kennari, sem lést fimmtudaginn 13. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. ágúst kl. 13.00. Ásta Lóa Eggertsdóttir Ingigerður Eggertsdóttir Unnur Eggertsdóttir, Hermann Arnviðarson, Gunnhildur Hrefna Eggertsdóttir, Óskar Þorsteinsson, Kolbrún Eggertsdóttir, Arnaldur F. Axfjörð, Pétur Eggert Eggertsson, Sigurborg Steingrímsdóttir. MOSAIK Guðrún Arnbjörg Pétursdóttir (Adda) Kumbaravogi, Stokkseyri, sem lést 3. ágúst, verður jarðsungin mánudaginn 24. ágúst kl. 16 frá Stokkseyrarkirkju. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnar Júlíusson Luther Hróbjartsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.