Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 94
62 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. sólarhringa, 6. í röð, 8. hár, 9. loga, 11. á fæti, 12. verslað, 14. mont, 16. í röð, 17. þrí, 18. til viðbótar, 20. fisk, 21. skjótur. LÓÐRÉTT 1. afl, 3. tvíhljóði, 4. planta, 5. einkar, 7. vonsvikinn, 10. inngangur, 13. ot, 15. ökutæki, 16. húðpoki, 19. átt. LAUSN LÁRÉTT: 2. daga, 6. rs, 8. ull, 9. eld, 11. il, 12. keypt, 14. grobb, 16. hi, 17. trí, 18. enn, 20. ál, 21. snar. LÓÐRÉTT: 1. þrek, 3. au, 4. glitbrá, 5. all, 7. sleginn, 10. dyr, 13. pot, 15. bíll, 16. hes, 19. na. PERSÓNAN Pétur Grétarsson Aldur: 50 ára. Stjörnumerki: Bogmaður. Starf: Tónlistarmaður og jazzhátíðarstjóri. Fjölskylda: Er giftur Margréti Gísla- dóttur, útibússtjóra í Landsbankan- um, og við eigum Berglindi sem er 20 ára og Gísla sem er 35 ára. Búseta: Við búum í smáíbúða- hverfinu. Pétur Grétarsson er framkvæmdastjóri Jazzhátíðar Reykjavíkur sem nú stendur yfir. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8. 1 Benedikt Jóhannesson. 2 Óttar Pálsson. 3 19,19 sekúndur. „Þetta er bara byrjunin. Ísland hefur verið að vaxa í áliti hjá Ind- verjum og þeim á eftir að fjölga mikið sem koma hingað til lands,“ segir veitingakonan Chandrika Gunnarsson hjá Austur-Indíafélag- inu við Hverfisgötu. Sífellt færist í vöxt að tökulið frá Indlandi taki upp tónlistarmyndbönd fyrir kvikmynd- ir sínar hér á landi. Fréttablaðið hefur greint frá tveimur; annars vegar kvikmyndagerðarfólki frá Kollywood og svo frá Tollywood en bæði þessi nöfn draga heiti sín af þeim hluta Indlands eða tungu þar sem framleiðslan fer fram. Chand- rika og hennar fólk hefur séð um að indversku gestirnir hafi fengið mat við sitt hæfi. Ef marka má vefsíðu Thaiindia er væntanlegt annað tökulið frá Kollywood með einhverri skærustu stjörnu þess kvikmyndaiðnaðar. Sá heitir Chiyaan Vikram og er þekkt- ur um allt Indland. Kvikmynda- gerðarfólkið hyggst samkvæmt fyrstu fréttum taka upp heila kvik- mynd hér á landi og yrði það þá í fyrsta skipti. Þá hefur Fréttablað- ið heimildir fyrir því að aðilar frá Bollywood séu mjög áhugasamir um að koma hingað til lands, en það verkefni yrði væntanlega mun stærra í sniðum en þau sem hafa ratað hingað nú þegar. Chandrika upplýsir að þeir hópar sem hingað hafi komið séu mjög þekktir í sínu héraði, þó þeir hafi kannski ekki náð hylli á öllu Ind- landi. „En það má ekki gleyma því að íbúar í hverju héraði eru margar milljónir og því er þetta mjög stór markhópur,“ útskýrir Chandrika. Hún telur að opinber heimsókn for- seta Indlands, Abdul Kalam, fyrir rúmum þremur árum hafi gert mikið fyrir íslenska landkynn- ingu á Indlandi. „Augu fólks á Ind- landi opnuðust fyrir Íslandi og fólk er betur upplýst um landið og hvað það hefur upp á að bjóða.“ Aust- ur-Indíafélagið hefur haft í nægu að snúast fyrir kvikmyndagerðar- fólkið sem hefur komið hingað að undanförnu og séð um að fæða stjörnurnar. „Þau hafa verið alveg ótrúlega ánægð með matinn, þau bjuggust ekki við því að hér væri hægt að fá alvöru indverskan mat og þetta kom þeim því skemmti- lega á óvart.“ Chandrika hefur varla haft undan að taka á móti indversku frægðarfólki. Stjörnur frá Bolly- wood, sem fá engan frið fyrir ljós- myndurum og aðdáendum heima fyrir en kollegar þeirra í Holly- wood, hafa verið tíðir gestir á Íslandi að undanförnu og svo kom einhver þekktasti krikketleikari heims, Satchin Tendulkar, hingað til lands og naut veðurblíðunnar í sumar. Sé einhver í vafa um frægð Tendulkars má geta þess að Gor- don Brown, forsætisráðherra Bret- lands, lagði til að hann yrði aðlaður af drottningunni fyrir framlag sitt til íþróttarinnar. freyrgigja@frettabladid.is CHANDRIKA: INDVERSKI FORSETINN OPNAÐI DYRNAR AÐ ÍSLANDI Innrás Indverja rétt að byrja CHANDRIKA GUNNARSSON Vitað er að Harrison Ford hefur mikið dálæti á Austur- Indíafélaginu en veitingastaðurinn hefur eldað ofan í indversku kvikmyndastjörn- urnar sem hafa komið hingað til lands að undanförnu og séð til þess að þær fái almennilegan indverskan mat. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Auðvitað ætti bara að skipta út hvalaskoðunarferðum fyrir þetta, menn gætu bara farið á hvalveið- ar, komist í almennilegt návígi við dýrið,“ segir Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel. Ný þátta- röð með bakaranum er í bígerð og í fyrsta þættinum fer Jói á hvalveið- ar með hvalveiðibátnum Jóhönnu, skammt frá Akranesi. Jói var engin hvalafæla því áhöfnin á Jóhönnu skaut tvær myndarlegar hrefnur; önnur var sex tonn en hinn sjö. Jói segir þetta hafa verið alveg ótrúlega upplifun. „Bara geðveikt, þegar maður er nýbúinn að landa einum tíu punda laxi og fer svo á svona, þetta er bara ólýsanlegt,“ segir Jói, sem fékk þó ekki að taka í skutulinn enda er slíkt aðeins fyrir vana menn. Hvalveiðitúrinn stóð yfir frá klukkan átta um morguninn til ell- efu um kvöldið og var hvalurinn verkaður um borð. „Þetta var allt öðruvísi en maður hafði gert sér í hugarlund, kannski vegna þess að maður er búinn að sjá svo margar myndir frá Hvalfirði, þar sem hval- urinn er verkaður á þurru landi,“ segir Jói, sem ber skipverjunum á Jóhönnu vel söguna. „Maður var bara kominn með í eyrun, þessir menn höfðu séð svo margt og höfðu frá ótrúlega mörgu að segja.“ Jói nýtur svo liðsinnis Úlfars Eysteins- sonar á Þremur frökkum við að elda úr hráefninu. - fgg Jói Fel á hrefnuveiðum „Ég veit ekki hvort það sé Facebook-liðið eða eitthvað fólk sem vill mig burt. Ég hef engar skýringar á þessu og er eiginlega bara þreytt og pirruð. Ég sem hélt að þetta ætti að vera eitthvað gaman,“ segir Ragnheiður Elín Clau- sen, fyrrum sjónvarpsþula. Henni hefur nú verið hent, aftur, útaf Facebook-vinasamfélag- inu án skýringa. Mikla athygli vakti í júní á þessu ári þegar fjölmiðlar greindu frá því að Ragnheiði hefði verið vísa útaf samskiptavefnum Facebook. Fjöldi fólks skráði sig á stuðningssíðu henni til heiðurs og að endingu fékk Ragnheiður gömlu síðuna sína aftur með ákveðnum skilmál- um, meðal annars að hún mætti ekki skrifa athugasemdir hjá öðru fólki. Hún brá því á það ráð að stofna nýja síðu, nú undir nafn- inu Ragnheiður Elín Clausen Hauksdóttir, en þeirri síðu hefur nú verið lokað. „Og það án viðvörunar, það voru einhverjar viðvaranir á gömlu síðunni um að ég væri að gera eitt- hvað af mér en síðunni var bara lokað þegar ég var að setja inn ljóð um hund og skrifa um tvö hundruð metra hlaupið hans Usuain Bolt,“ segir Ragnheiður sem kveðst ekki hafa stund- að neina auglýsingamennsku né áróður heldur hafi hún einmitt gætt orða sinna. Ragnheiður tekur reyndar fram að hún hafi slasast fremur illa á ökla í sumar og þurft að vera rúmliggjandi í smá tíma. Þá hafi hún getað fylgst með hvernig annað fólk notaði Facebook og komist að því að notkun hennar væri ekkert öðruvísi en margra annarra þar inni. Ragnheiður efast um að hún muni snúa aftur til leiks á Facebook. „Ég veit ekki hvort ég nenni þessu eitthvað lengur.“ - fgg Ragnheiði Clausen aftur hent út af Facebook FACEBOOK-LAUS Ragnheiður Clausen efast um að hún nenni aftur á Facebook eftir að hafa verið hent út í annað sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT HREFNAN Í HÖFN Jói Fel tekur mynd af nýveiddri hrefnu sem skipverjar á Jóhönnu skutu rétt fyrir utan Akranes. Yoga 1. September í Drafnarhúsinu í Hafnarfi rði, Strandgata 75 Styrkur - liðleiki – kyrrð - orka - mataræði Aldur fólks mælist ekki í árum heldur sveigjanleika hryggjarsúlunnar. Yoga 2 x í viku kl. 18.15 þriðjudaga og fi mmtudaga Sanngjarnt verð Skráning í síma 6910381 og 5650381 Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær dulbjuggu þeir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór sig sem útigangsmenn og héldu út í óviss- una. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að grínistarnir tveir myndu lifa sem rónar í Reykjavík í heilan dag, þar á meðal sofa úti um nóttina. En öðruvísi fór en ætlað var því að einn af þeim ógæfumönnum sem Sveppi og Auddi hittu hótaði því að ná í riffilinn sinn og skjóta Sveppa. Klukkan tvö um nóttina gáfust félagarnir upp á kuldanum og létu lögguna hirða sig upp við Hótel Borg. Ingibjörg Egilsdóttir, fulltrúi Íslands í Miss Universe, virðist hafa heillað íbúa Bahamas og aðra aðdáendur keppn- innar upp úr skónum. Aðdáendasíða keppn- innar á Facebook spáir því meðal annars að Ingibjörg muni berjast um titilinn við ungfrú Ekvador og heimasíða Playboy, playboy.com, er einnig bjartsýn fyrir hönd Ingibjarg- ar því að fulltrúar Hughs Hefner eru sannfærðir um að Miss Universe- titillinn fari til Íslands þetta árið. Óprúttnir þjófar brutust inn í Borgarleikhúsið meðan starfsemi var með minnsta móti í sumar. Þjófarnir höfðu lítið sem ekkert upp úr krafsinu annað en nokkra diska og flakkara í hljóðdeildinni. Karl Ágúst Úlfsson hefur þó eflaust bölvað þjófunum þegar í ljós kom að á einum diskanna var hljóðmyndin úr Harry og Heimi sem frumsýnt verður 12. september. Þeir félagar þurfa því að taka öll aukahljóðin í sýning- unni upp á nýtt. Vart þarf að taka fram að öryggiskerfi Borgarleik- hússins hefur verið eflt til muna. - fgg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.